Fréttatíminn - 23.12.2016, Síða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Kraká. Í stóru bókasafni mágs
síns fann Agnes bók um líf í klaustr-
um þar sem var að finna texta frá
sextándu öld eftir Jóhannes af
krossinum, en hann var spænskur
munkur af Karmelreglunni.
„Textinn talaði svo sterkt til mín
að mér leið eins og ég hefði fundið
sannleikann, þarna var ég samt alls
ekkert farin að velta því fyrir mér
að fara í klaustur sjálf. En seinna
um haustið, þegar ég var komin
aftur í skólann og sat eitt kvöldið
ein í herberginu mínu, varð ég
fyrir andlegri upplifun. Ég sá ekk-
ert og heyrði ekkert en fann mjög
sterkt fyrir miklum kærleika, og
svo heyrði ég innra mér að Jesús
spurði mig hvort ég myndi vilja
verða Karmelnunna. Þarna vissi ég
ekkert um Karmelregluna og gat
því ekki svarað strax en það fyrsta
sem ég hugsaði var um allt sem ég
þyrfti að fórna ef ég gerðist nunna.
Ég hugsaði um að ég myndi aldrei
eignast börn eða fjölskyldu og að
ég þyrfti að hætta að læra og búa
á sama stað alla ævi,“ segir Agnes.
Það tók hana samt ekki nema einn
dag að ákveða sig.
„Um leið og ég tók ákvörðun-
ina fann ég fyrir svo mikilli gleði
að fólk sem þekkti mig spurði mig
hvort ég væri ástfangin því það
streymdi frá mér hamingjan.“
Ákvað að strjúka
Agnes hafði samband við nunnur í
eina Karmelklaustrinu í Póllandi, í
Elblag, og þær samþykktu að taka
hana inn á reynslutíma. Þar sem
Agnes var orðin sjálfráða þurfti
hún ekki samþykki foreldra sinna.
„Foreldrar mínir skildu ekkert
hvað var að gerast og spurðu hvort
ég væri nokkuð orðin geðveik.
Þetta var mjög erfitt fyrir þau og
ég fann hvað ég særði þau mikið.
Pabbi skildi ekki af hverju ég vildi
endilega fara í reglu sem væri jafn
lokuð af og Karmelreglan, af hverju
ég færi ekki í reglu þar sem ég gæti
tekið meiri þátt í samfélaginu og
heimsótt þau. Þau skildu þetta alls
ekki svo ég ákvað að strjúka. Ég
flúði að heiman og skildi eftir bréf
þar sem ég sagði þeim að ég væri
farin.“
Agnes segist aldrei hafa hikað
eftir ákvörðun sína og aldrei hafa
hugsað til baka. Foreldrar hennar
voru aftur á móti lengi að sætta sig
við þá leið sem dóttirin hafði valið
sér. „Þau komu stöðugt í klaustr-
ið fyrsta árið og hringdu mikið en
eftir fyrsta árið fóru þau að sjá að
ég væri ekki að koma til baka. Þau
voru svo nokkurn vegin búin að
sætta sig við ákvörðun mína þegar
það var ákveðið að ég færi til Ís-
lands og það var hálfgert áfall fyrir
þau. En þau skildu þetta með tím-
anum og ég held að á endanum hafi
þau verið þakklát fyrir köllun mína
þó hún hafi reynst þeim erfið,“ seg-
ir Agnes en foreldrar hennar eru
látnir. „Systir mín hefur komið og
heimsótt mig enda er það miklu
auðveldara í dag en fyrir þrjátíu
árum. Ísland er ekki jafn einangr-
að í dag.“
Verður hér til æviloka
Þrjátíu og þrjú ár eru liðin frá því
að Agnes kom til Íslands og seg-
ir hún það óneitanlega hafa verið
mikil viðbrigði.
„Þetta var alveg nýtt land, nýtt
tungumál og nýr matur. Og nýtt
veður,“ segir Agnes og skellihlær.
Það var dálítið annað að ætla
að rækta grænmeti á melnum í
Hafnarfirði en í aldagömlum klaust-
urgarðinum í Póllandi þar sem epli,
plómur og kirsuber spruttu eins og
ekkert væri. „Þetta var eins og eyði-
mörk en smátt og smátt lærðum við
hvernig best væri að rækta græn-
meti en hér erum við auðvitað ekki
með nein ávaxtatré. Við gerum því
ekki neina sultur en við sjóðum
niður grænmeti og eigum það út
veturinn.“
„Í dag lít ég á það sem mína
köllun að vera á Íslandi og ég, og
við allar, elskum Ísland og viljum
hvergi annarsstaðar vera. Auðvitað
er veðrið stundum erfitt en þetta er
okkar köllun. Við tölum íslensku
því við verðum að lifa hér til ævi-
loka,“ segir Agnes á sinni lýtalausu
íslensku en systurnar tala nær allar
íslensku þó þær tali á pólsku sín á
milli og allar messur, sem fara fram
í kapellu systranna, fara fram á ís-
lensku.
Alls ekkert fangelsi
„Við lifum hér inni en það þýðir
ekki að þetta sé eins og fangelsi. Við
förum stundum út, eins og ef við
þurfum að fara til læknis, í banka
eða að kjósa, eða þá ef við þurf-
Systurnar eru miklar tónlistarkonur og spila langflestar á hljóðfæri. Þær syngja
og spila saman í hverri einustu messu, en þær eru haldnar klukkan átta alla
morgna í kapellu klaustursins og eru öllum opnar.
Karmelnunnur sauma öll sín föt sjálfar og rækta sitt eigið grænmeti auk þess að
sjá sjálfar um flest allt viðhald í klaustrinu. Auk þess vinna þær handverk sem
þær selja í lítilli verslun í klaustrinu. Hér sjást þær við jólaskrautsframleiðslu.
„Við getum verið með ólík-
ar skoðanir á hlutunum
og verið pirraðar út í hver
aðra, en þá lítum við á það
sem tækifæri til að læra.“
Agnes segir lífið í klaustrinu ekki breytast mikið í aðdraganda jólanna. „Við förum
ekki út í búð og kaupum það sem okkur langar en á jólunum megum við biðja um
hluti sem okkur langar í, þá skrifum við bréf til abbadísarinnar og segjum hvað
okkur langar mest í, kannski sokka, nýja pensla eða eitthvert sælgæti að utan.“
280cm
98cm
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 1 -
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega most.c_tiskaost.tiskufataverslu
KLJÓLL
KR 6.930
ÚLPA
KR. 16.030
KÁPA
KR 9.030
VESKI
SKART
KÁPUR
SKÓR
30% afsláttur
af öllum vörum
fram að jólum
Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum
og stórmörkuðum landsins.