Fréttatíminn - 23.12.2016, Side 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Já ég vildi að alla daga væru jól
Þá gætu allir dansað og sungið jólalag
Ég held að þetta jólalag hafi farið
langt með að eyðileggja fyrir mér
desember lengst fram eftir tíunda
áratugnum.
Hugmyndin um jól alla daga
er auðvitað heimskuleg og geð
veikisleg og ekki skánar hún við
frekjulegan undirtóninn í laginu og
dósahljóðið í undirspilinu.
Verslunareigendur höfðu mikið
dálæti á þessu lagi og það hljómaði
nánast undantekningarlaust úr há
talarakerfum stórverslana á píslar
göngunni með lokað krítarkort og
tóma buddu.
Samt voru jólin yndisleg þegar þau
komu en ég lærði ekki að meta að
ventuna fyrr en löngu seinna. Enn
dregur ský fyrir sólu ef ég heyri svo
mikið sem óminn af laginu, Jól alla
daga.
Aðdragandi jólanna er uppfullur
af mótsögnum, græðgi, gjafmildi,
helgi og hávaða, rangsleitni og kær
leika, blikkandi rafmagnsljósum,
myrkri og hlýju kertaljósi. Og síðast
en ekki síst hræsni.
Jólin eru stórkostlegt sköpunar
verk með allar sínar öfgar og til
finningar.
Fátæklingar og einstæðingar eru
velkomnir í jólaleikritið, öfugt við
aðra tíma ársins er beinlínis gert
ráð fyrir þeim í handritinu. Það er
enginn svo aumur, enginn svo út
skúfaður að hann eigi ekki að geta
haldið gleðileg jól, þótt hann megi
éta það sem úti frýs alla aðra daga
ársins.
Þannig fyllast blöðin af frásögn
um af þeim sem eiga í engin hús
að venda á aðfangadag og flýja í
fang Hjálpræðishersins. Þeir sem fá
jólin í poka frá Fjölskylduhjálpinni,
eftir að hafa staðið í biðröð langan
dag óvarðir fyrir veðri og vindum,
verða endalaus uppspretta frétta.
Jólasögur af fátæklingum, syrgj
endum, einstæðingum og óheppnu
fólki eru jafn nauðsynlegar og
skata, greni, mandarínur og hangi
kjöt til að skapa stemningu, þótt
það sé röð fyrir framan Fjölskyldu
hjálpina allt árið og einstæðings
skapur einskorðist ekki við 24.
desember.
En af hverju ætli það sé?
Um daginn hitti í rúmenska konu
í verslunarmiðstöð í Dublin. Hún
reyndi að selja mér smyrsl og nudd
aði lengi á mér hendurnar með
salti og spurði hvaðan ég kæmi.
Ég sagði henni það og hún ljóm
aði öll í framan. Ísland, já, þar sem
jólakötturinn er. Ég hváði, já stóri,
ljóti kötturinn sem étur börnin
sem fá engar gjafir og engin föt
og jólasveinarnir sem hrekkja og
stríða litlu börnunum. Ég leyfði
konunni að láta móðan mása en fór
óneitanlega að hugsa hvaðan koma
þessir ljótu siðir? Af hverju bjugg
um við til skrímsli sem étur fátæk
börn og ljóta karla sem koma inn til
barna á næturnar? Mér er til efs að
nokkur önnur þjóð eigi sér svona
grimmdarlega jólasiði.
En við erum bara svo góðir sögu
menn.
Jólin og aðdragandi þeirra eru eins
og handrit að góðri spennusögu.
Þau eru háskaleg og það eru hetjur
og skúrkar, hörð átök milli góðs og
ills. Í lok sögunnar er einskonar
uppskeruhátíð þar sem við njótum
góðs af baráttu daganna á undan.
Þess vegna reyna þeir sem ekki eru
á vonarvöl að troðast undir í biðröð
eftir upptrekktum leikfangabangsa
eða baðherbergishillu í Söstrene
Grene.
Þegar ég var lítil var háð grimmileg
húsmæðrakeppni í desember, þar
sem konur reyndu með sér í heimil
isþrifum og smákökubakstri. Til að
æsa leika var stundum fundinn upp
yfirvofandi hráefnisskortur, gjarn
an á eggjum, um að það leyti sem
desember gekk í garð og duglegar
húsmæður kepptust við að hamstra
egg og sáu við öllum tilburðum
til að skammta þessar nauðsynj
ar, jafnvel með því að sveipa sig
í dulargervi, alveg þar til þær
hrifsuðu síðasta eggið úr hillunum
sigrihrósandi á svipinn. En allar
kærulausu druslurnar gripu í tómt
og áttu á hættu að glata jólunum og
verða sér til ævarandi skammar.
Svo hófust miklar framkvæmd
ir innanhúss á þessum árstíma,
gjarnan við flísalagnir eða máln
ingarvinnu sem tvísýnt var að næð
ist að klára fyrir hátíðina.
Best er ef jólin eru raunverulega
í hættu, nánast ónýt en er bjarg
að á síðustu stundu. Rétt áður en
klukkurnar hringja inn jólin.
Þetta er uppskriftin að góðum jól
um.
Reynum samt að hálsbrjóta hvorki
okkur né aðra þótt við fylgjum
henni.
Og munum að það er ekki alltaf
það versta að hafa lítið á jólunum ef
maður kann að meta það. Og þarf
að hafa svolítið fyrir því.
En þökkum guði fyrir að engum
brjálæðingi hefur dottið í hug, í fúl
ustu alvöru, að hafa jólin alla daga
ársins.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
UPPSKRIFTIN
AÐ JÓLUM
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
eru komin
. Vestfirsk jólabrauð . Ítölsk jólabrauð
Jólabrauðin
Strikinu 3 • Iðnbúð 2
Garðabæ • 565 8070
facebook.com/okkarbakari
Verið
velkomin
Vissir þú að Átthagar voru söluhæsta
bókin á Ísafirði fyrir nokkrum dögum
og er kannski enn?
Fæst í bóka-
verslunum
um land allt