Fréttatíminn - 23.12.2016, Page 22
Marta Niebieszczanska, blaðamaður og ljósmyndari, segir frá pólskum
jólahefðum en þar má enginn vera einn á aðfangadag.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Í Póllandi er hefð fyrir því að hafa alltaf einn auðan stól við jólaborðið því það má enginn vera einn eða svangur á aðfangadagskvöld.
Stóllinn er fyrir gest sem gæti
komið óvænt, hvort sem það er ná-
granni sem er einn á aðfangadag,
ókunnugur gestur af götunni eða
einhver úr fjölskyldunni. Sumir
segja reyndar að stóllinn sé líka
til að heiðra minningu þeirra fjöl-
skyldumeðlima sem hafa fallið frá.
Þetta er hefð sem allir halda í og í
minni fjölskyldu er líka alltaf lagt
á borð fyrir óvænta gestinn,“ segir
Marta sem man ekki til þess að
stóllinn hafi nokkurn tíma verið
nýttur. „Við höfum boðið fólki í
mat sem hefði annars verið eitt, en
það er samt alltaf settur einn auð-
ur stóll, fyrir óvænta gesti.“
„Önnur pólsk hefð er að setja
þurrkuð strá undir borðstofu-
borðið eða undir dúkinn. Stráið
er til að minna okkur á að Jesús
fæddist í fjósi og var lagður í hey í
jötu fyrstu nóttina sína. Mér hefur
alltaf þótt þessi hefð mjög falleg
því við fjölskyldan fórum alltaf í
sveitina til afa til að ná í heyið og
settum svo lítið búnt af því undir
borðið,“ segir Marta sem á smá
heybúnt á Íslandi sem hún setur
undir dúkinn á aðfangadag.
„Í Póllandi er einnig hefð fyrir
því að borða tólf rétti á aðfanga-
dagskvöld, jafn marga og læri-
sveinarnir, en áður en við byrjum
að borða þá deilum við stórri
oblátu á milli okkar, og ef það eru
gæludýr á heimilinu fá þau líka
einn lítinn bita. Allir taka sér lít-
inn bita og meðan hún gengur á
milli manna óskum við hvert öðru
gleðilegra jóla.“
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Jólahefðir
Tólf réttir, auður stóll
og hey undir borði
Marta Niebieszczanska. Móðir Mörtu sendir henni alltaf stóra
oblátu fyrir jólin sem Marta deilir með vinum sínum á aðfangadag.
Auði stóllinn.
Það er alltaf einn
auður stóll við matar-
borðið á aðfangadag
á heimili Mörtu, fyrir
óvæntan gest.
VIÐ
FÆRUM
ÞÉR
HEIMINN
GEFÐU ÓGLEYMANLEGT
FRÍ MEÐ WOW AIR
Nú á einhver von á góðu. Gjafabréf WOW air gilda í eitt
ár til allra áfangastaða okkar. Þú velur þá upphæð sem
þú vilt og gildir hún sem greiðsla inn á ferð út í heim
með WOW air. Gjafabréfið er svo sent til kaupanda eða
viðtakanda, hvort sem hentar betur. Nánar á wowair.is.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Hey úr jesújötunni.
Marta á hey úr garði afa síns
sem hún setur alltaf undir
dúkinn á aðfangadag.