Fréttatíminn - 23.12.2016, Page 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Hefðirnar koma ekki af himnum ofan
Hverju breyta fimmtíu ár? Ef hoppað er örfáu
sinnum um 50 ár aftur í tímann til að skoða
jólahald kemur í ljós að tíminn líður hratt. Það
er örstutt í gamla sveitasamfélagið, jafnvel þó
að nútímagæði hafi einkennt undanfarin ár.
Fréttatíminn fer í tímavél milli jóla.
Jón Páll Björnsson og
Sigurlaugur Ingólfsson eru
fyrir löngu komnir í jóla-
skap enda hafa þeir verið
að tala um jólin á árum
áður við gesti Borgarsögu-
safns alla aðventuna.
Myndir | Hari
J
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
ólin á Íslandi árið 2016 eru
haldin í friði og spekt, þó að
óvissa ríki víða og barist sé í
fjarlægum löndum. Aðfanga-
dagur er laugardagur en að-
föngin eru löngu komin í hús,
í mörgum tilfellum eru allsnægtirn-
ar meiri en þörf er á. Þorláksmessa
er nýtt til að ná í það sem út af stend-
ur.
Það er nóg rafmagn og rafmagns-
leysi heyrir nokkurn veginn sögunni
til á aðfangadag, jafnvel þó að ofn-
ar séu kynntir í botn út um allt land
fyrir veglegar jólasteikur af ýmsum
sortum, innlendum og erlendum.
Jólaveislur á aðfangadag eru oft-
ast fyrir nánustu fjölskylduna þó
að stærri veislur komi líka greina.
Eftir mikið kauphlaup dagana fyr-
ir jól standa litríkir pakkar af ýms-
um stærðum upp við rafmagnslýst
jólatré. Það sem inn í pökkunum
leynist er keypt í úttroðnum versl-
unum eða á netinu úr risastórum
vöruhúsum.
Könnun MMR sýnir að færri og
færri senda jólakort í föstu formi en
þeim fjölgar eilítið sem senda raf-
ræna útgáfu. Tölvur og snjallsím-
ar þykja nauðsyn og nýtast til að
breiða út jólaandann milli fólks og
hafa samband yfir höf og land. Við
vitum í hvað stefnir, bökkum því 50
ár aftur í tímann.
Jólin 1966
Það geisar kalt stríð og í Víetnam er
barist á banaspjótum. Á Íslandi er
kalt og snjór yfir mestöllu landinu.
Tjörnin í Reykjavík er frosin á jólum
en aðfangadagur jóla er laugardag-
ur, rétt eins og núna. Á Vestfjörðum
fer jólahaldið fram í rafmagnsleysi
vegna ísingar á línum.
Jón Páll Björnsson, hjá fræðslu-
deild Borgarsögusafns, segir að
jólin fyrir fimmtíu árum hafi verið
komin nokkuð vel í þær föstu skorð-
ur sem við þekkjum nú, þó vitan-
lega hafi þau verið fábreyttari um
margt. „Margar hefðir dagsins í dag
voru komnar til sögunnar. Flestir
skreyttu á Þorláksmessu og lang-
flest heimili voru með innflutt jóla-
tré en færri með gervitré. Kertaljós
voru kveikt um jól en þau voru ekki í
nærri jafn almennri notkun alla hina
daga ársins og nú.
Varðandi skreytingarnar eru það
helst aðventuljós og -kransar sem
vantar árið 1966 miðað við daginn í
dag. Þær skreytingar eru sænskætt-
aðar, ólíkt mörgum af þeim dönsku
hefðum sem við höfum tekið upp,
og þær koma ekki til fyrr en um og
eftir 1970.
Rétt eins og nú var svínakjöt al-
gengt á borðum á aðfangadag og
þá einkum hamborgarhryggur, en
enginn kalkúnn var í boði. Hægt
var að útvega sér alifugla, endur og
hænur en villibráð var yfirleitt ekki
sparimatur eins og nú til dags. Rjúp-
ur voru sjaldgæfar en það var samt
hægt að kaupa þær hjá SS. Meðlæti
var að miklu leyti niðursoðið úr dós
enda stóð íslensk niðursuða í blóma
á þessum tíma. Á Þorláksmessu var
skata ekki komin mikið á dagskrá í
Reykjavík, hún var algengari fyrir
vestan, en fólk borðaði þá gjarnan
fisk.“
Árið 1966 var algengt að fólk
keypti goskassa fyrir jólin, auðvitað í
glerjum. „Margar fjölskyldur keyptu
malt, appelsín og kók og blönduðu
þessu jafnvel öllu þrennu saman.
Eins voru kassar af appelsínum og
eplum algengir enda tengja margir
enn eplalyktina við jólin, þó að mörg
okkar séu hætt að gefa þeirri lykt
gaum.“
Verslanir voru harðlokaðar á
jóladag og annan í jólum en nokk-
uð var um tónleika- og skemmtana-
hald. Um þetta leyti stendur ung-
lingabyltingin sem hæst og milli
jóla og nýárs halda hljómsveitir sem
heita til dæmis Sfinx, Pops og Pónik
og Einar dansleiki fyrir æskulýðinn
á meðan Haukur Morthens og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson syngja fyrir
ráðsettari gesti á öðrum veitinga-
Varðandi skreytingarnar
eru það helst aðventuljós
og -kransar sem vant-
ar árið 1966 miðað við
daginn í dag.
BEINT FLUG FRÁ KEFLAVÍK
OG AKUREYRI 2017
Allar borgirnar hafa flest það sem ferðamaðurinn girnist,
hagstætt verðlag bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera
góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Þá
bjóðum við uppá spennandi skoðunarferðir.
BÚDAPEST, UNGVERJALAND
22. - 25. september
Ein stórkostlegasta borg Evróp, hún er þekkt fyrir
sínar glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá
Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir.
Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en
baðmenningu Ungverja má rekja hundruði ára aftur
í tímann. Þar hefur í árhundraði blandast saman
ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka.
Meðalhiti 20°C.
GRANADA, SPÁNN
6. - 9. október
Hin stórfenglega Máraborg, Granada, er ein allra
fallegasta borg Spánar. Hún er staðsett við rætur
Sierra Nevada fjallanna í ægifögru umhverfi. Áhrif
frá tímum Mára eru þar mjög sterk og má m.a. nefna
Madraza, fyrsta arabíska háskólann frá 3. öld og
arabísku böðin frá 11. öld. Hæst ber þó að nefna
Alhambra höllina sem talin er ein fegursta bygging
heims. Ekki er síðra úrval verslana, veitingahúsa og
allt það sem hinn venjulegi ferðamaður þarfnast.
Meðalhiti 20°C.
WWW.TRANSATLANTIC.IS
SÍMI: 588 8900
DUBROVNIK, KRÓATÍA
13. - 16. október
Dubrovnik - perlan við Adríahafið. Borgin Dubrovnik
er talin ein fegursta borg veraldar og má rekja upphaf
hennar allt til 7. aldar. Borgin er heimsþekkt, mikið
til vegna þáttanna Game of Thrones sem teknir hafa
verið í borginni og aukið á frægð hennar. Dubrovnik
er staðsett í Suður hluta Króatíu eða við Adríahafið,
veður er þar gott nánast allt árið, í sept./okt. má
búast við um og yfir 20°C. Allt umhverfi borgarinnar
er töfrum líkast, kristaltær sjórinn, eyjarnar úti
fyrir ströndum og skógi vaxnar hlíðarnar. Fallegar
strendur eru við borgina, enda er hún síður vinsæl
sem sólarlandastaður.
GDANSK, PÓLLAND
19. - 23. apríl
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta
borg Póllands og þó víða væri leitað. Saga hennar
nær aftur til ársins 997. Þetta er borg með mikla
sögu en hún var helsta vígi Hansakaupmanna í
Evrópu. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og
tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu
ferðamannaborg Póllands.
Verð á mann 98.900 í 2ja manna herb.
Innifalið: Flug, hótel með morgunmat, íslenskur
fararstjóri og rúta til og frá flugvelli.
Verð á mann 103.312 í 2ja manna herb.
Innifalið: Flug, hótel með morgunmat, íslenskur
fararstjóri og rúta til og frá flugvelli.
Verð á mann 114.900 í 2ja manna herb.
Innifalið: Flug, hótel með morgunmat, íslenskur
fararstjóri og rúta til og frá flugvelli.
Verð á mann 111.287 í 2ja manna herb.
Innifalið: Flug, hótel með morgunmat, íslenskur
fararstjóri og rúta til og frá flugvelli.
MIKIÐ AF
SÆTUM
SELD!