Fréttatíminn - 23.12.2016, Qupperneq 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Jólin á Spotify
Tónlist er stór hluti jólanna. Réttu stemningunni
má ná með því að syngja saman, setja snarkandi
jólaplötu á plötuspilarann eða skella gömlum
uppáhalds geisladiski í tækið. Tónlistarveitan Spotify,
sem margir nýta sér, er líka uppfull af fínni jólatónlist.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Beach Boys – The Beach
Boys’ Christmas Album.
Við minnumst allra þeirra
sem halda jólin í steikj-
andi hita og sól, verði
þeim að því. Þá er best
að setja Beach Boys á
fóninn og sveifla sér í
lendunum.
Destiny’s Child – 8 Days of
Christmas.
Meðan allt lék í lyndi gerðu Beyoncé
og stöllur hennar í Destiny’s Child
atlögu að því að hrista aðeins upp í
jólunum. Árangurinn var ágætur.
Frank Sinatra – A jolly Christmas from
Frank Sinatra.
Eðal amerísk jólaplata. Jólin höfðu mikil
áhrif á feril Franks þegar hann var að byrja
um miðjan fimmta áratuginn og áttu þátt í
að gera hann að súperstjörnu, skiljanlega.
Svanhildur Jakobsdóttir
– Jólin jólin.
Þessi brosmilda og glaðlega
dægurlagadrottning kann svo
sannarlega að syngja mann í
jólaskap. Takk fyrir það.
Elly og Vilhjálmur
syngja jólalög
Þessi tvö eiga alltaf við,
ekki síst um jólin. Elly og
Villi eru jólasystkin Ís-
lands, án nokkurs vafa.
Vince Guaraldi – A Charlie
Brown Christmas.
Kalli Bjarna er svo sannar-
lega djassgeggjari og Vince
Guaraldi gerir stemninguna
þægilega.
Elvis Presley – Elvis’ Christmas Album
Kóngurinn er alltaf við hæfi og hann er
nauðsynlegur um jól. Þarf maður að nefna
fleira en „Blue Christmas“?
Bob Dylan – Christmas in the Heart.
Það eiga ekki allir Nóbelsverðlaunahafar
jólaplötu í safninu. Hér er herra Zimmerman
með grófa sandpappírinn í hálsinum og Dylan
áhugamenn elska að rífast um plötuna.
Jólaóratóría Bachs
Þegar kemur að þessu meistaraverki
gefur Spotify manni tækifæri á að
verja jólunum í samanburð á upptök-
um. Til dæmis er hægt að hlusta á
fína upptöku undir stjórn hljómsveit-
arstjórans Nikolausar Harnoncourt.
She & Him – A very She &
Him Christmas.
Zooey Deschanel og M. Ward
blanda hér í aldeilis dásam-
legan jólakokteil. Þetta er
platan til að setja réttu stemn-
inguna og skapa fyrirtaks
hippsterajól.
Brunaliðið – Með eld í hjarta.
Það er mikilvægt að fara varlega
með eld yfir hátíðirnar. Ef illa fer má
alltaf hringja í Brunaliðið. Það reddar
þessu.
Eddukórinn –
Jól yfir borg
og bæ.
Þessi plata er
löngu orðin
klassík. Hver
vill ekki smá
lummóheit um
jólin?
Í hátíðarskapi
Þessi safnplata er perla og síðan er
umslagið svo hrikalega flott! Hvern
langar ekki í svona jólapartí?
Stevie Wonder –
Someday at Christmas.
Það eru engin jól án þess
að jólaplötunni hans
Stevie Wonder sé snúið
nokkrum sinnum. Fátt er
betra til að koma manni í
rétta gírinn.
Ella Fitzgerald – Ella wishes you a
swinging Christmas.
Það er ekki á allra færi að setja
„swing“ í jólin og teygja og lengja
snyrtilega í nótunum. Í þessum efnum
getur Ella, drottning djasssöngsins,
gert betur en aðrir.
Sufijan
Stevens
– Songs for
Christmas.
Íslandsvinur-
inn geðþekki
frá Michgan
býður okkur
hér að raula
með í mörg-
um þekktum
jólalögum.
Sigurður Guðmundsson
– Nú stendur mikið til.
Einhver best heppnaða íslenska jóla-
plata síðari ára. Alveg rétti tóninn, vel
útsett og flutt.
A Christmas Gift For You
From Phil Spector
Óheillakrákan og glæpamaðurinn Phil
Spector var eitt sinn stórkostlegur
upptökustjóri. Þessi frábæra jóla-
plata hans er meðal þess sem mun
gera hann eilífan. The Ronettes, The
Crystals og fleiri listamenn hljóma
frábærlega í hinum fræga „vegg-
hljómi“ Spectors.
Carpenters – Christmas Collection.
Karen Carpenter getur dimmu í
dagsljós breytt. Þegar hún syngur
um sleðabjöllurnar verða jólin rómó.
Hljómurinn er líka hæfilega hallæris-
legur.