Fréttatíminn - 23.12.2016, Qupperneq 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Jólaboð
ekki svo ólík
ristilspeglun
Bylgja Babýlons ráðleggur þeim sem leiðist.
Bylgja Babýlons ráðleggur fólki að fara í „Ég hef aldrei“ með
stórfjölskyldunni. Mynd | Emilía Kristín
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Yfir jólin fara margir í fjölda jólaboða með stórfjölskyldunni. Sum-um finnst boðin stór-skemmtileg en öðrum
ekki og leiðist þeim alla jafna
umrædd boð. Bylgja Babýlons
er með ráð á reiðum höndum til
að gera jólaboðin bærilegri.
„Það leiðist mörgum í jóla-
boðum enda eru þau að mörgu
leyti ekki svo ólík ristilspeglun-
um. Mér finnst oft létta stemn-
inguna töluvert að mæta
með Fireball-flösku og draga
fjölskylduna í einn góðan „Ég
hef aldrei“-hring. Fátt er betri
ísbrjótur en að komast að því
hvort móðursystir þín hafi ein-
hvern tímann stundað kyn-
líf á víðavangi. Planið á þó til
að enda illa fyrir þá sem eiga
fjölskyldur þar sem mikið er af
ungum börnum.“
„Fyrir þá sem eru á lausu
um jólin er sniðugt að plata vin
eða vinkonu til að þykjast vera
nýr maki. Búa til skemmtilega
baksögu og mæta með risastóra
ístertu. Þegar fólk hrósar tert-
unni er til dæmis hægt að segja:
Þetta er Bjarki. Hann er nýkom-
inn frá Amsterdam og tókst að
koma heilu kílói af amfetamíni
inn í landið svo við ákváðum að
splæsa köku á liðið.“
„Fyrir þá sem kvíða jólun-
um og vilja ekki mæta er mjög
skynsamlegt að sviðsetja bara
eigin dauða. Það er líka svo auð-
velt á Íslandi. Ég ætla persónu-
lega að skilja föt af mér niðri í
fjöru, flytja til Spánar, fá mér
gæludýr sem er eðla og skíra
hana Vilborgu.“
Mér finnst oft létta
stemninguna tölu-
vert að mæta með
Fireball- flösku og
draga fjölskylduna í
einn góðan „Ég hef
aldrei“-hring.
Saga um reiðan, eldri,
samkynhneigðan mann
Bruce the angry bear: Hinsegin myndasaga.
Fékk skeyti frá fyrri íbúum
Stígur Steinþórsson
leikmyndahönnuður
er að gera upp gamalt
hús í miðbænum.
Þegar hann var að
rífa niður gamla
eldhúsinnréttingu
kom í ljós skeyti úr
fortíðinni.
„Þetta var dálítið eins og lenda í
tímavél,“ segir Stígur Steinþórs-
son um skeyti sem hann fann inn í
vegg í húsi sínu. „Við erum að gera
upp gamalt bakhús við Njálsgötu
sem er meira en hundrað ára gam-
alt og býr því yfir heilmikilli sögu.
Ég var í sakleysi mínu að taka
niður þunnar plötur utan
af veggjunum og þá kom
í ljós rautt hólf sem hefur
verið gömul innbyggð hilla
á sínum tíma. Þar hékk
þetta líka fína brúna um-
slag sem búið er að skrifa á
smá orðsendingu inni
í framtíðina:“
Reykjavík, 24. júlí 1979
Erum að breyta og setja upp nýja
eldhúsinnréttingu. Þess vegna datt
okkur í hug að setja þetta inn í veg-
inn og vonum að einhver finni þetta
bréf. Og vonum að Guð og gæfan
fylgi þessu húsi um ókomin ár. Við
keyptum þetta hús 12. desember
1978.
„Þar fyrir neðan eru allir þáver-
andi íbúar hússins skráðir og til-
tekið hvenær hver og einn þeirra
fæddist. 1978 býr átta manna fjöl-
skylda hérna auk heimilishunds-
ins Perlu sem fæddist í júní 1977,“
segir Stígur.
„Það er gaman að fá svona
sendingu. Mér finnst þetta hlýlegt
og gefur manni tilfinningu fyrir
fortíðinni. Við eigum örugglega
eftir að stinga svona bréfi ein-
hvers staðar milli þilja, núna þegar
við erum að breyta og gera upp.
Vonandi finnur síðan einhver þau
skilaboð, kannski langt inn í fram-
tíðinni.“ | gt
Stígur Steinþórsson tengdist
fyrri íbúum hússins síns.
Bréfið góða frá 1979.
„Mér vitandi þá er þetta í fyrsta
skipti sem íslensk, hinsegin
myndasaga lítur dagsins ljós –
allavega á íslenskum miðli,“ segir
Roald Viðar Eyvindsson, ritstjóri
vefsíðunnar Gayiceland.is, sem
birtir nú vikulega teiknimynda-
sögu sem ber yfirskriftina
Bruce The Angry Bear
eða Reiði Björninn
Bruce. Hugmynda-
smiður sögunnar er
ástralski uppistandar-
inn Jonathan Duffy og
teiknari er Einar Másson.
„Myndasagan fjallar um sögu-
persónuna Bruce sem er upp-
finning Jonathans Duffy. Bruce er
reiður björn, eins og titillinn gefur
til kynna. Loðinn, eldri, samkyn-
hneigður maður. Mynda-
sagan fjallar svolítið um
hans ævi í hinni
súrrealísku Gaykja-
vík sem er eins og
Reykjavík nema
talsvert samkyn-
hneigðari. Sagan
er um ævintýri hans
og Spencer, kærastans
hans. Þegar lengra
líður á söguna
kynnumst við fleiri persónum,“
segir Einar.
„Það er eitthvað sem angr-
ar Bruce og hann er reiður. Það
birtist alltaf bara brot af mynda-
sögunni á vefsíðunni en það gerir
hana spennandi. Það sem ég er
svo spenntur fyrir er að komast að
því af hverju hann er svona reiður.
Svo komumst við kannski að því í
sögunni hvernig hann er ef hann
er ekki reiður.“
„Það er mikið um svart-
an húmor í þessu. Ekki svona
„politically correct“. Sem er ágætt
mótvægi við alla umræðu í dag
sem er mjög mikið á þá vegu. Sjá-
um til hvernig þetta leggst í fólk.
Vonandi heldur þetta áfram,“
segir Einar.
„Með myndasögunni erum
að brjóta ákveðið blað í þessum
málum,“ segir Roald.
Reiði björninn og aðal
persónan Bruce.
Bruce á kærasta. Þetta er hann.
HEILSUTÍMINN
Þann 7. janúar
Heilsutíminn
auglysingar@frettatiminn.is 531 3300