Fréttatíminn - 23.12.2016, Side 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
„Dagbók Kidda klaufa er alltaf
vinsæl,“ segir Þorbjörg Karlsdótt-
ir, bókasafnsfræðingur Borgar-
bókasafns í Grófinni, um vinsælu-
stu bækur fyrir börn og unglinga í
desember.
„Doddi, bók sannleikans, hefur
líka verið mikið í útláni hjá okkur.
Amma óþekka, Afi sterki og Dem-
antaráðgátan. Vetrarhörkur
eftir Hildi Knútsdóttur. Ekki
má gleyma Þorgrími Þráins-
syni, Gunnari Helga og Ævari
vísindamanni. Ævar er með
bók í ár sem er hrollvekja.
Hrollvekjurnar eru
alltaf vinsælar.“
Hún segir bækur sem fjalla um
jólin einnig sígildar. „Grýlusaga,
Jólagrauturinn, Þegar Trölli stal
jólunum. Bæði íslenskar og erlendar
bækur um jólasveinana. Síðan
er bókin Jólin koma eftir Jó-
hannes úr Kötlum alltaf mikið
í útláni,“ segir Þorbjörg.
Þorbjörg Karls-
dóttir segir frá vin-
sælum bókum des-
embermánaðar.
Bækur um jólin sígildar
Fyrir börn og unglinga.
Doddi: Bók
Sannleikans eftir
Hildi Knútsdóttur
og Þórdísi Gísla
dóttur.
Jóla
grauturinn
eftir Sven
Nordqvist.
Afi sterki
og skessu
skammirn
ar eftir J.
K. Kolsöe.
Demanta
ráðgátan
eftir Martin
Widmark.
Vetrarhörk
ur eftir Hildi
Knútsdóttur.
Grýlusagan
sígilda
Gunnars
Karlssonar.
Á
náttfötunum
í jólaboðið
Ef þú ert ein/n af þeim sem ert nú þegar farin að kvíða því að
sleppa frá þér jólabókinni eða jóladagskránni til að dressa þig
upp og fara á mannamót þá skaltu ekki örvænta. Farðu bara
á náttfötunum og vertu mesta tískudrósin á svæðinu því eitt
heitasta tískutrend ársins sem er að líða er náttfatatískan.
Buxur, jakkar og buxnadragt-
ir í náttfatastíl voru ekki bara á
tískupöllunum í vor heldur líka í
haust og fræga og fína fólkið lét
sjá sig í náttfötum við hverskyns
tækifæri.
Það er gott að eiga klassískt nátt-
fatadress, víðar buxur og jakka,
en undirkjólar og sloppar duga
líka. Silkið er auðvitað hátíðleg-
ast en bómullin virkar líka, ekki
síst ef þú poppar dressið upp með
fínu skarti, háum hælum eða belti.
Rúllukragabolur undir náttfata-
jakkann eða stór kósí peysa yfir
virka líka vel því að klæða sig
upp í lögum er annað af trendum
ársins, skotheld blanda. Ef þú vilt
vera minna kósí og meira sexí er
kannski betra að sleppa lögun-
um og leyfa náttfötunum að njóta
sín á berum líkamanum. En allra
mikilvægast er að örvænta ekki og
vera afslöppunin holdi klædd, öll
jólin. | hh
Þorbjörg Karlsdóttir.
Mynd | Hari
Vantar kraft og nýjungar í hinsegin senuna
Úlfar Loga þarf aldrei að útskýra
kynhneigð sína í Berlín þar sem
hann stundar nám.
„Það er allt svo ýkt á Íslandi. Að
vera samkynhneigður á Íslandi er
meira tengt sjálfsmyndinni, það
er allt öðruvísi í Berlín. Ég er
búinn að búa hérna í 3 ár og
hef aldrei þurft að taka það
fram að ég sé samkynhneigð-
ur. Það er meira karakter-
einkenni á Íslandi en kyn-
hneigð,“ segir Úlfar Loga,
ljósmyndanemi í Berlín.
„Þegar ég fer til Íslands
þarf ég alltaf að taka á
móti allskyns athugasemdum um
kynhneigð mína. Ég finn fyrir meiri
stuðningi í Berlín og er frjálsari.“
Nú á dögunum tók Úlfar þátt
í ljósmyndaverkefni sem snérist
að dragi í Berlín. Að sögn Úlfars
er dragsenan þar mun þróaðri og
opnari en á Íslandi. „Við fengum
að fylgjast með dragdrottn-
ingunni Kelly frá Brasilíu
undirbúa sig undir dragkvöld
á skemmtistaðnum Chantals
House of Shame sem gefur
sig út fyrir það að bjóða alla
jafn velkomna, allir gestirn-
ir eru jafnir.“
„Í hreinskilni sagt finnst mér
dragsenan á Íslandi frekar einsleit
og ómerkileg. Það vantar meiri
dirfsku og karaktersköpun. Hérna
úti er mikið lagt upp úr karakter-
sköpun og það er meiri kraftur og
dragdrottningar þora meira að leika
sér. En þetta er rosalega nýtt á Ís-
landi og á eftir að þróast og fanga
því að þetta sé að þróast,“ segir
Úlfar um ólíka heima dragsins hér á
landi og í Berlín.
„Það vantar meiri kraft og nýj-
ungar í hinsegin senuna á Íslandi.
Það er allt voðalega svart og hvítt,
mér finnst vanta meiri grósku á
jaðrinum.“ | hdó.
Dragdrottningin Kelly frá Brasilíu sem
Úlfar fékk að fylgjast með gera sig til
fyrir dragsýningu. Mynd | Úlfar Loga
Úlfar Loga.