Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 1
Hópur ættleiddra einstaklinga frá
Kóreu er væntanlegur til landsins
til að bjóða þeim sem ættleiddir
hafa verið frá Kóreu til íslands
að fara í genarannsókn, hafi þeir
áhuga á að vita meira um uppruna
sinn. Hópurinn er á vegum banda-
rísku samtakanna 325 Kamra og
segist hafa rakið skyldleika í 10%
tilfella.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Anna-Lena Engström er ein þeirra
200 þúsund barna sem ættleidd
voru frá Kóreu eftir árið 1950. „Ég
var ættleidd til Svíþjóðar og, eins
og svo margir, veit ég ekkert um líf-
fræðilegan uppruna.“ Anna-Lena
kemur til Íslands í febrúar á vegum
samtakanna 325 Kamra. Þau vinna
að því að safna lífsýnum þeirra sem
ættleiddir hafa verið frá Kóreu til
útlanda. Lífsýnin fara í gagnabanka
sem notaður er til að rekja ættir og
skyldleika ættleiddu einstakling-
anna. Markmið samtakanna er að
aðstoða þá sem vilja við að tengjast
blóðforeldrum eða blóðskyldum
ættmennum. Samtökin voru stofn-
uð í Bandaríkjunum en þangað voru
150 þúsund kóresk börn ættleidd.
Velunnari samtakanna, Thom-
as Park Clemens, sem sjálfur var
ættleiddur frá Kóreu, styrkir starf
þeirra með því að borga fyrir gena-
rannsóknirnar. Hvert próf kostar
um það bil 100 dollara. Clemens
er nokkuð þekktur viðskiptamað-
ur í Bandaríkjunum og hefur skrif-
að bókina The Unforgotten War um
reynslu sína af því að vera ættleidd-
ur eftir Kóreustríðið.
Að undanförnu hafa 325 Kamra
fengið fjölmargar fyrirspurnir frá
þeim sem ættleiddir voru frá Kóreu
til Evrópu og ákvað Clemens því að
borga fyrir genarannsóknir þeirra
líka.
Anna-Lena hefur ásamt fleirum
ferðast um Evrópu og safnað lífsýn-
um í gagnabankann. „Í desember
fórum við til Svíþjóðar, Noregs og
Danmerkur og tókum um 170 sýni.
Við bjóðum þeim sem hafa áhuga
á að fara í svona próf að gera það,
þeim að kostnarlausu. Prófin eru
frá Familyteedna en bankinn sem
vinnur úr þeim kallast GEDmatch.
Við verðum í Reykjavík að kvöldi
föstudagsins 3. febrúar og þeir sem
vilja, mega endilega hafa samband.
Hingað til höfum við fundið nokk-
uð náinn skyldleika í um 10% til-
vika.“ Hún telur að minnsta kosti 22
einstaklingar hafa verið ættleidda
frá Kóreu til Íslands.
Þóra Vésteinsdóttir er meðal
þeirra fyrstu sem komu frá Kóreu til
Íslands. „Þetta vekur ekki vonir hjá
mér. Ég var borin út og tel því afar
ólíklegt að nokkur leið sé að rekja
hverjir blóðforeldrar mínir eru. Ég
hef aldrei haft neina þörf fyrir að
vita meira um þau og mun ekki nýta
mér þetta.“
Önnur kona sem ekki vill láta
nafns síns getið, segir rannsóknina
áhugaverða. „Ég er ekki blóðskyld
neinum í Íslendingabók og gæti því
vel hugsað mér að að öðlast frek-
ari upplýsinga um uppruna minn,
um hvort ég sé með einhverja undir-
liggjandi sjúkdóma eða annað slíkt.
Ég hef samt enga þörf fyrir að finna
blóðforeldra mína.“
Anna-Lena Engström svarar fyrir-
spurnum á Facebook og tölvupóstum
á anna_lena.engstrom@yahoo.se
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
94. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 30.12.2016
28 20
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
Betri þjónusta Við kappkostum að veita viðskiptavinum
okkar skjóta og góða þjónustu.
Ef tæki keypt hjá okkur bilar lánum við
samskonar tæki á meðan viðgerð stendur.
Við gerum betur í þjónustu
Anna-Lena Engström
leitar þeirra sem
ættleiddir voru frá
Kóreu til Íslands.
Þessi sýning er ykkur
öllum til skammar
Jón Viðar skrifar um Óþelló
Tjáknmál eru
hellaristur
nútímans
Ár ástar og
ótta, sannleika
og lygi
Kyn skiptir litlu
máli – kynja-
misrétti miklu
Margrét Örn-
ólfsdóttir segir
að framtíðin sé í
sjónvarpinu
Kunta Kinte sogar
ferðamenn til Gambíu
Guðrún Bjarnadóttir heimsótti
Jufureh, heimabæ Kunta Kinte
Bandarísk staðgöngu
móðir fæddi tvíbura
Íslensk kennarahjón
borguðu rúmar 11 milljónir
fyrir börnin
Bróðirinn kallar ríkis-
stjórnina til ábyrgðar
Hælisleitandinn sem kveikti
í sér vildi ekki fara í fangelsi í
Makedóníu
Bjóða ættleiddum frá Kóreu
í rannsókn á uppruna þeirra
Matartískan
2017 verður ár
blómkálsins
24
36
2
10
16
14
Lífgaðu upp á hátíðirnar
og notaðu lífræna kraftinn
frá Knorr í jólasósuna.
...KEMUR MEÐ GÓÐA BRAGÐIÐ!
Lífrænn
hátíðarkraftur
MSG
Opið í dag
9-22
*Reyðarfjörður 9-20