Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 6
Kjaramál Þingmenn tóku sér 4 klukkustundir og 18 mínútur í það fyrir jólin að ræða jöfnun líf- eyrisréttinda en þau eru nú orðin lög frá Alþingi. Þegar eftirlauna- lögum ráðherra og þingmanna var breytt árið 2009 var þess vandlega gætt að hrófla ekki við áunnum réttindum. Það sama virðist ekki vera uppi á teningn- um núna. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Innan við sólarhring eftir að lög- in um jöfnun lífeyrisréttinda voru samþykkt hafði stjórn Kennarasam- bands Íslands ákveðið að kæra ríkið vegna lagasetningarinnar, þar sem hún bryti gegn eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar. BSRB hefur nú bæst í hópinn en samkvæmt lögun- um er ríkisábyrgð afnuminn á líf- eyri þeirra sem ekki hafa náð sex- tugsaldri. Þórður Hjaltested formaður KÍ segir þingmenn hafa talað gegn betri vitund í þinginu þegar þeir héldu því fram að málið hefði ver- ið unnið í samkomulagi við forystu opinberra starfsmanna. Hann seg- ir að lífeyrir í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, hafi jafnan verið tryggður og iðgjöld sjóðfél- aga hækkað strax ef lífeyrir væri skertur. Með samþykkt frumvarps- ins sé þetta tekið úr sambandi. „Núna á lífeyrir allra sjóðfélaga undir sextugu að taka breytingum eftir því hvernig sjóðurinn ávaxt- ar sig,“ segir hann. „Þetta er ekk- ert annað en eignaupptaka að okk- ar mati enda hafa félagsmenn KÍ margir hverjir greitt í opinberu líf- eyrissjóðina allan sinn starfsaldur og þegið lægri laun fyrir vikið gegn tryggari lífeyrisréttindum. Það er því verið að brjóta réttindi sem eru varin af stjórnarskrá.“ Með eftirlaunalögunum voru æðstu embættismönnum þjóðar- innar veitt betri eftirlaunaréttindi en almennt tíðkast og þeim tryggð ákveðin lágmarksréttindi til eftir- launa umfram þau réttindi sem op- inberir starfsmenn njóta. Yfirlýstur tilgangur laganna var að gera al- þingismönnum og ráðherrum sem verið höfðu lengi í störfum á opin- berum vettvangi kleift að draga sig í hlé og stuðla þannig að meiri endur- nýjun í þjóðmálum. Þegar þau lög voru numin úr gildi í febrúar 2009 fól breytingin í sér að þingmenn og ráðherrar hættu að ávinna sér réttindi samkvæmt eldri lögunum. Alls áttu 633 einstak- lingar réttindi samkvæmt lögun- um í árslok 2007 og nam áfallin eftirlaunaskuldbinding ríkissjóðs vegna þeirra rúmlega 12 milljörðum króna. Þau réttindi voru varðveitt og gert ráð fyrir því að áhrif þess á skuldbindingar ríkissjóðs komi fram eftir því sem árin líða enda kom aldrei til álita að skerða réttindi þeirra sem höfðu áunnið sér þau. Samkvæmt því sem er uppi á teningnum núna er ekki hægt að tryggja áunnin réttindi ef ávöxtun til framtíðar verður dræm, enda ekki lengur ríkisábyrgð á lífeyri op- inberra starfsmanna, nema þeirra sem hafa náð sextugsaldri við laga- breytinguna. Ef farin hefði verið sú leið að loka A-deildinni en star- frækja hana áfram fyrir þá sem þegar hafa áunnið sér réttindi þar, hefði verið hægt að komast hjá því að skerða áunnin réttindi. Þá telja forystumenn margra launþega eng an veg inn trúverðugt að jafna skuli launa kjör eft ir á en engin trygging er fyrir efndum. Þá fellur réttur sjóðfélaga til lífeyris- auka almennt niður falli iðgjalda- greiðslur þeirra niður, til lengri tíma en tólf mánaða. Opinber starfsmað- ur, sem hefur þurft að sætta sig við jafna ávinnslu réttinda fyrri hluta starfsævinnar, getur ekki gert meira en árs hlé frá störfum hjá hinu opin- bera, vilji hann ekki glata réttinum. Smári McCarthy þingmaður Pírata sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu segir að það megi því segja að hann sé í reynd í vist- arbandi út starfsævina. Það sé því sérstaklega einkennilegt í ljósi þess að eitt markmiða frumvarpsins sé að auðvelda flæði starfsfólks milli opinbera og almenna markaðarins. Sjúkraliðafélag Íslands sem hefur lagst eindregið gegn breytingunni þar sem hún brjóti gegn stjórn- arskrá og skerði samningsbund- in réttindi hefur ennfremur talið nauðsynlegt að sjúkraliðar geti hafið töku lífeyris um 65 ára aldur. „Sjúkraliðar geta hætt störfum 65 ára í dag án þess að skerða lífeyri, en við breytingu á lögunum er öll- um skylt að vinna til 67 ára. Þá eru í farvatninu breytingar sem gera fólki að vinna til sjötugs,“ segir Krist- ín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélagsins. „Ef sjúkraliðar vinna lengur bæta þeir í lífeyrinn en margir þeirra geta það ekki þar sem starfið er svo líkamlega erfitt. Sumir þurfa reyndar að fara á ör- orku fyrir 65 ára aldur.“ Kristín bendir ennfremur á að fæstir sjúkraliðar vinni 100 prósent vinnu þar sem starfið sé of erfitt og víðast hvar sé það ekki í boði. Þeir beri því enn minnni lífeyri úr být- um en annars. „Ég tel að lögin séu stórslys, hvorki meira né minna,” segir Krist- ín en BSRB hefur ákveðið láta á það reyna hvort lögin séu brot á stjórn- arskránni. 6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Borgin Starfsemi Múlalunds, vinnustofu Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, er í uppnámi eftir að innkaupadeild Reykjavíkurborgar sá sig knúna til að hafna tilboði vinnustofunn- ar í ritföng og skrifstofuvörur vegna annmarka á útboðsgögn- um. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Sigurður Viktor Úlfarsson, fram- kvæmdastjóri Múlalunds, seg- ir að borgin sé mikilvægur við- skiptavinur og vonast hann til þess að málið verði leyst. Sjálf- stæðismenn í borgarstjórn lögðu fram fyrirspurn vegna málsins sem var svarað stuttu fyrir jól. Í svari við fyrirspurninni kemur fram að innkaupadeild hafi flokkað tilboð Múlalundar sem frávikstil- boð þar sem vinnustofan bauð ekki í allar vörur tilboðsskrár. Innkaupa- deild Reykjavíkurborgar telur að það hefði brotið í bága við lög um opinber innkaup að samþykkja slíkt tilboð. Í tölvupósti Sigurðar Viktors til innkaupadeildar, sem er birtur á vef Reykjavíkurborgar vegna fyrir- spurnarinnar, furðar hann sig á því tilboðið hafi verið svo flokkað sem frávikstilboð þar sem í útboðslýs- ingu hafi komið skýrt fram að heim- ilt væri að bjóða í einstaka hluta til- boðsskrár. Sigurður Viktor segir í samtali við Fréttatímann að Múlalundur eigi nú í viðræðum við Reykjavíkur- borg og er hann bjartsýnn á hægt verði að finna lausn á málinu. Að sögn Halldórs Halldórssonar, odd- vita Sjálfstæðisflokksins, kom fram í máli borgarlögmanns á borgarráðs- fundi fyrir jól að reynt yrði að koma til móts við Múlalund. „Það var nú ekki alveg skýrt með hvaða hætti það yrði,“ segir Halldór. Telja að tilboðið hefði brotið lög Sigurður Viktor Úlfarsson, framkvæmdastjóri Múlalunds, vonast til þess að málið leysist. Kristín Á. Guðmundsdóttir segir lögin stórslys. Þórður Hjaltested segir þetta ekkert annað en eigna­ upptöku REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR www.husgagnahollin.is 558 1100 afsláttur 60% Allt að ÚTSALA RISA Hefst í dag kl. 1000 Opið í dag 30. desember 1000–1800 Lokað á gamlársdag og nýársdag Opnum aftur á nýju ári 2. janúar kl. 1000 < 60 = missa ríkisábyrgð Segja lögin stórslys Stjórn Kennarasambands Íslands og BSRB hafa ákveðið að kæra ríkið vegna lagasetningarinnar. Mynd | Getty

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.