Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 15

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 15
| 15FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Þjóðleg matreiðsla Þeir sem voru hræddir við að alþjóðavæðingin myndi þurrka rótgrónar matarhefðir út geta slakað á því þær hafa aldrei verið vinsælli. Við munum sjá nor- ræn brauð, kúbanska pottrétti, mexíkósk takó og rússneskar súpur í fáguðum útgáfum á fínum matseðlum árið 2017. Innan í heimagert takó úr rauðum maís verður hægeld- aðari nautasíðu eða mauksoðn- um svínabóg blandað saman við heimaræktað salat og spænskt hvítlauksmæjónes og á eldbökuðu súrdeigsbrauði frá Þrándheimi verður villtur lax úr Fljótunum í stað eldislax frá Noregi. Matur frá Portúgal og Filippseyjum verður það allra heitasta á árinu. Gerjaður matur Gerjaður matur verður ein af stjörnum ársins svo ekki láta þér bregða ef súrsaðar gúrkur, kóreskt kimschi eða þýskt sauerkraut fer að poppa upp á matseðlum bæj- arins. Sé grænmetið súrsað með hefðbundnum aðferðum mynd- ast í því bakteríur og mjólkur- sýrugerlar sem eru nauðsynlegar fyrir þarmaflóruna. Gerjun hefur verið notuð í öllum heimshlutum til að súrsa grænmeti, og halda um leið lífi í manninum, en auk þess til að búa til áfengi, brauð, mísó, tófú, osta og jógúrt svo eitthvað sé nefnt. Peningar renna í matarbransann Fjárfestar í sílíkondalnum í Kaliforníu horfa í sífellt meira mæli til sprotafyrirtækja í mat- ariðnaði og þangað mun mest- allur þeirra peningur fara árið 2017, samkvæmt viðskipta- blaðinu Forbes. Það sem helst er verið að fjárfesta í er sjálfbær fram- leiðsla og tímasparnaður: • Heilsumatvæli úr sjálfbærri framleiðslu, mestmegnis úr hnetum, grænmeti og skor- dýrum. • Heimsendingaþjónusta frá veitingahúsum. • Matvælasendingar fyrir starfsmenn fyrirtækja. • Heimsendingar beint frá býli. • Heimsendingar á hráefni í rétti, líkt og Eldum rétt á Íslandi. • Matvæli, heilsu og snyrti- vörur út kannabis, en kannabis hefur nú verið lögleitt í níu ríkjum Banda- ríkjanna, og í 21 einu ríki er það löglegt í lækningaskyni. Minni sóun og meiri hagsýni Hluti af sókn heimagerðra afurða, hvort sem það er í pylsu- og skin- kugerð, niðursuðu eða frystingu má rekja til aukinnar áherslu á að minnka matarsóun. Það að nota bita af kjötinu sem hraðneyslu- samfélagið hefur hent síðastliðin ár, líkt og hefur verið gert við mat sem stenst ekki útlitskröfur, er ein leið til að minnka sóun og auka hagsýni. Veitingahús munu á nýju ári leggja mikla áherslu á að elda upp úr því sem hingað til hefur farið í ruslið og matvælaframleið- endur munu í auknum mæli sýna samfé- lagslega ábyrgð og þróa vörur í sátt við umhverfið. Rauðrófur. Þetta ágæta grænmeti er og hefur verið ein helsta uppistaðan í rússneskri matargerð og á sínar góðu stundir, eins og til dæmis í Borch-súpunni, en það er eins og íslenskir kokkar hafi verið að uppgötva tegundina, slík hefur innkoma hennar verið í íslenskum eldhúsum síðustu ár. Nú er nóg komið. Það sem við losnum blessunarlega við árið 2017 Avókadó. Í öllum sínum myndum, líka ristaðar brauðsneiðar með einni avókadósneið og kálblaði á rándýrum hipsterakaffihúsum. Grænkál. Grænkál er ágætt en ekki svo gott að það verðskuldi að vera í öllum réttum, hvað þá að taka við af kartöflunni sem uppistaðan í snakki. „Hér með tilkynnist að tíð grænmetis sem með- læti með dýraafurðum er liðin.“

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.