Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Matarvölvan 2017 Blómkálið verður stjarna ársins Árið 2017 verður árið sem við förum aftur til upprunans, í matreiðslu og hráefnum. Þetta verður ár blómkálsins og reyndar alls jurta­ ríkisins, ár niðursuðu og gerjaðs matar, kola­ kokteila, þjóðlegra rétta, upprunamerkinga og heimsendinga. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Kjötskurðir og hægeldun Önnur afleiðing aukinnar meðvit- undar um verksmiðjuframleiðslu er sú að fókusinn verður settur á kjötmenningu. Kjötið mun taka sér aukið rými í formi heimagerðra afurða, nýj- um skurð- um og gamal- grónum upp- skrift- um sem hafa fallið í skuggann af fitusnauðum lífsstíl síðustu ára. Ef þessi bylgja nær til Íslands munum við kannski sjá kjötborð á ný í verslunum þar sem hægt verður að biðja um sérstaka skurði af dýrinu, á mun hagstæðara verði en til dæmis hina klassísku lund. Bitar á borð við frampart, háls, bóg, bringu eða síðu, eru mun ódýrari en alls ekki síðri ef fólk gefur sér tíma til hægeldunar. Hægeldun og mar- ínering, eða réttara sagt það að gefa sér tíma til að elda, verður einmitt annað af matartrendum næsta árs. Ár grænmetisins Þennan síðasta mánuð ársins hafa matarspekúlantar víðs vegar um heim spáð því sem koma skal á nýju ári í matarmenningu. Það sem allir eru algjörlega sam- mála um er að árið 2017 verður ár jurtaríkisins. Undanfarin ár hefur grænmetið tekið æ meira pláss í hillum stórmarkaða og á matseðl- um veitingastaða en á næsta ári mun grænmetið allsstaðar verða í algjöru aðalhlutverki. Hér með tilkynnist að tíð grænmetis sem meðlæti með dýraafurðum er liðin. Það þýðir samt ekki að allir kokkar gerist grænmetisætur eða verði vegan og að við þurfum öll að verða það, heldur að græn- metið mun taka við aðalhlutverki kjötsins á disknum. „Flexitarian“ er orð sem við munum heyra mik- ið af á árinu, en það er manneskja sem er mestmegnis grænmetisæta en borðar kjöt einstaka sinnum, og þá kjöt sem kemur af býli en ekki úr verksmiðju. Hluta þessara róttæku breytinga, sem hafa ver- ið að gerjast undanfarin ár, má rekja til aukinnar meðvitundar um verksmiðjuframleidd matvæli, ekki bara vegna áhrifa á heilbrigði og velferð mannskepnunnar held- ur líka dýra og jarðarinnar allrar. Blómkálið verður stjarna ársins Það eru alltaf einhver hráefni sem skína skærar en önnur og kokkar helstu matarblaða heims eru sam- mála um að stjarna næsta árs verði grænmeti sem hefur aldrei verið í sviðsljósinu áður; blómkálið. Blómkálið er nú þegar byrjað að læðast inn á matseðla en þegar líða fer á árið verður það alveg búið að taka sess grænmetis sem hefur verið áberandi á liðnu ári, eins og grænkáls, avókadós og rauðrófa. Vinsældir avókadós hafa reyndar verið svo miklar á liðnu ári, ekki síst á hipsterastöðum í Bandaríkjunum, að einn helsti matargagnrýnandi vestanhafs sagði að fengi hann eina ósk varð- andi mat á næsta ári yrði hún að útrýma rándýrum avókadobrauð- sneiðum af öllum matseðlum. Hér á landi þekkjum við blómkál helst í blómkálssúpu en auðvitað er fjöldi leiða til að elda það. Það hefur hingað til ekki verið ofarlega á listum heilsu-gúrúa en það er nú samt sem áður stútfullt af trefjum, fólíni og c-vítamíni og þar að auki er mjög auðvelt að rækta það á Íslandi. Skordýr Skordýr eru stór hluti af matar- menningu fjölda þjóða og hafa hægt og rólega verið að læðast til Vesturlanda. Skordýramjöl og pasta úr skordýramjöli er um- hverfisvænn og próteinríkur val- kostur fyrir þá sem vilja ekki neyta kjöts en samkvæmt matarspek- úlöntum munum við fara að sjá meira af heilum skordýrum á mat- ardiskunum. Ekki verður heldur langt að bíða þess að hægt verði að panta pönnukökur úr skordýra- mjöli á hvaða veitingastað sem er. Viðarkolakokteill Eitt óvæntasta tískutrend ársins verða viðarkol. Þeir sem kjósa að grilla með kolum frekar en gasi vita að kol gefa bragð en það er ekki bara bragðið sem gerir kolin vinsæl á árinu, heldur líka heilsu- bætandi eiginleikar þeirra. Viðar- kol hafa löngum verið þekkt fyrir afeitrandi eiginleika og hafa til dæmis verið notuð gegn matar- eitrun. Þau eru líka notuð til að hvítta tennur og sem meðal við timbur- mönnum. Ekki verða hissa ef þú sért viðar- kolakokteil á barnum þegar líða fer á árið. Alvöru pítsa Að fara aftur til upprunans og einfaldleikans verður vinsælla og klassísk eldbökuð ítölsk pítsa úr góðum hráefnum með einni áleggs tegund er ein birtingar- mynd þess. Hipsterapítsustað- ir þar sem súrdeigspítsur með rauðrófum ráða ríkjum munu víkja fyrir heimilislegum og ein- földum stöðum með rauðköflótt- um dúkum og engum stælum. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. Tækniþróunar- sjóður Styrkir til hagnýtra rannsóknarverkefna Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2017 Háskóli eða rannsóknastofnun skal leiða verkefnið en hvatt er til samstarfs við aðila úr atvinnulífinu. Nánari upplýsingar eru á tths.is Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Samkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. Ómissandi yfir hátíðarnar

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.