Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
HINN KLASSÍSKI
TOM COLLINS
Tom Collins
kokteillinn var
fyrst bland
aður 1876 og
er því kominn
til ára sinna
en það breytir
ekki því, nema
síður sé, að um
fantafínan kok
teil er að ræða
sem hentar vel á gamlárskvöld.
4 cl gin
2 cl sítrónusafi, helst nýkreistur
1 tsk. flórsykur
sódavatn
Allt sett saman í hristara nema sóda
vatnið og hrist vel saman með klaka.
Sett í viskíglas ásamt klakanum og
fyllt upp með sódavatni. Skreytt með
sítrónusneið og jafnvel einu kokteil
kirsuberi.
BRENNIVÍNSKOKTEILL
MEÐ BLÁBERJUM
Kári Sigurðsson barþjónn á þessa
huggulegu uppskrift að bleikum ára
mótadrykk.
45 ml Brennivín (Einnig hægt að nota
gin eða vodka)
30 ml sykursýróp
30 ml sítrónusafi
6-7 bláber kramin með
Uppskrift að
sírópinu er 1:1, 1
kg hvítur sykur
móti 1 lítra af
vatni, náð upp
að suðu í potti
og svo slökkt
undir. Kári mælir
með því að hrista
drykkinn upp
með kokteil
hristara en þeir
sem eiga von á stórum hópi gesta
geta hent öllu saman í blandara og
hellt svo í glös þegar hentar. Þeir sem
vilja gefa drykknum aukna vídd geta
bætt við appelsínubitter eða öðrum
bitterum.
APEROL SPRITZ
Aperol Spritz er
vinsæll sumar
drykkur á Ítalíu og
víðar í Evrópu en
hentar einnig vel
sem fordrykkur eða
léttur kokteill.
3 hlutar Prosecco
eða annað freyðivín
2 hlutar Aperol
1 hluti sódavatn
sneið af appelsínu
Fyllið belgmikið glas af ísmolum, hátt
hvítvínsglas hentar mjög vel. Byrjið
á að hella víninu, þar næst Aperol
og fyllið upp með sódavatni. Skreytt
með hálfri appelsínusneið.
Langflestir reyna að fagna með einhverjum hætti þegar nýtt ár geng-ur í garð, kveðja gamla árið með stæl og bjóða
nýtt velkomið með von í brjósti.
Vandamálið við áramótin er hins
vegar oft það að fólk gerir of mikl-
ar væntingar til hátíðahaldanna.
Spennan er svo mikil og allt þarf að
vera fullkomið. Hárgreiðslan, fötin,
maturinn, partíið, leikirnir og flug-
eldarnir. Svo verða auðvitað allir að
geta hlegið að Áramótaskaupinu.
Fyrsta skrefið að hinu fullkomna
áramótapartíi er hins vegar að
stilla væntingum í hóf og vera af-
slappaður. Fylgdu svo eftirfarandi
ráðum og þá ætti enginn að verða
fyrir vonbrigðum.
-Bjóddu nokkrum góðum vin-
um heim til þín í þægilega og af-
slappaða stemningu. Ekki bjóða
of mörgum, því þá er hætt við að
spennustigið aukist.
-Það getur verið gaman að
skreyta aðeins með líflegum og
glitrandi skreytingum og bjóða
upp á áramótahatta sem gestir
geta sett upp. Jafnvel lúðra og con-
fettisprengjur til bjóða nýtt ár vel-
komið með pompi og prakt.
-Skipulegðu einfalda og leiki sem
allir geta tekið þátt í, en gættu þess
þó að partíið fari ekki að snúast um
leikina. Það getur verið yfirþyrm-
andi. Gott er að hafa hugfast að það
fíla ekki allir samkvæmisleiki.
Öðruvísi áramótadrykkir
Af hverju ekki að bjóða gestunum
upp á eitthvað öðruvísi og óvænt?
Uppskrift að
fullkomnu
áramótapartíi
Frumlegar veitingar eru óþarfar. Berðu fram eitthvað sem þú kannt að útbúa eða
einfaldlega helltu snakki í skálar.
Stilltu væntingunum
í hóf, ekki bjóða of
mörgum og hafðu
einfaldar veitingar.
Það er til dæmis sniðugt fara í
leik sem snýst um áramótaheit.
Útbúðu mismunandi spjöld þar
sem gestir þurfa aðeins að bæta
inn smá texta. Dæmi: „Slæmur
ávani sem ég vil láta af á nýju ári
________“ og „Á nýju ári langar mig
að læra_______“ Safnaðu spjöldun-
um saman þegar gestirnir hafa
fyllt inn í eyðurnar, lestu svo upp
af spjöldunum og leyfðu fólki að
giska hver á hvaða áramótaheit.
Hægt er að hafa smávægileg verð-
laun fyrir þá þann sem giskar rétt,
eða útfæra leikinn sem drykkjuleik
fyrir þá sem það kjósa.
-Ekki fara fram úr þér í
veitingunum, eða reyna að prófa
eitthvað nýtt rétt fyrir partíið. Fólk
vill bara hafa eitthvað að narta í
og það er enginn að fara að gera
kröfur um að þú töfrir fram flókn-
ar veitingar. Að hafa snakk í skál-
um ætti alveg að duga, en þeir
sem vilja ganga aðeins lengra geta
boðið upp á nachos og guacamole,
hina svokölluðu eðlu (rjómaost,
salsasósu og ost), kex, osta, niður-
skorið grænmeti og ídýfu eða jafn-
vel fondú.
Hvað drykki varðar er gott að
biðja einfaldlega gesti að koma
með það sem þeir vilja drekka. Þú
getur svo boðið upp á freyðivín,
bæði áfengt og óáfengt, til að skála
á miðnætti.
-Flestir vilja horfa á Ára-
mótaskaupið sem hefst klukk-
an 22.30 og því er mikilvægt að
hafa sjónvarp til taks og sæti fyrir
alla. Þegar því er lokið og búið að
sprengja upp flugelda þá er tilval-
ið að skella á skemmtilegum laga-
lista og dansa aðeins inn í nýtt ár í
góðra vina hópi. Það er alveg óþarfi
að reyna að fara niður í bæ til að
skemmta sér, enda erfitt að fá leigu-
bíla og allir skemmtistaðir yfirfullir.