Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Seldu hús og bíl til að eignast tvíbura Félagið sem nú heitir Bomba ehf. var stofnað árið 2003 og hét þá Líf- list. Fram til ársins 2015 var það skráð sem félag sem stundaði við- skiptaráðgjöf. Af ársreikningi að dæma virðist félagið þó hafa verið nær óvirkt þar til það fór að stunda flugeldasölu. Árið 2014 hafði félagið engar tekjur og rekstrargjöld voru 75 þúsund krónur. Tekjur félagsins í fyrra voru tæplega fjórar milljónir en afkoma þess var þó neikvæð upp á um 300 þúsund krónur. Gamla Bomba var stofnuð árið 2005 og seldi flugelda í samkeppni við Flugeldasölu björgunarsveit- anna og íþróttafélög. Eftir að það var lýst gjaldþrota sagði Örn Árnason að rekja mætti erf- iðleika félagsins til þess þegar innkal la þurf t i tvær tegundir flugelda- terta vegna fram- leiðslugalla. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Arnar Barð- dal, eini eig- andi félagsins nú, stundar kennitöluflakk en hann rekur nú Víkur- verk á nýrri kennitölu. Hann var árið 2012 dæmdur til að greiða þrotabúi félagsins LB09 ehf., sem áður hét Víkurverk ehf., tæplega 26 milljónir króna. Samkvæmt dómi lét hann fyrirtækið greiða sér þessa upphæð í fjórum millifærslum árið 2009 þrátt fyrir kyrrsetningargerð hjá félaginu. Félagið sem nú heitir Víkurverk skipti um nafn árið 2009 og hét áður Ferðaval. Örn Árnason leikur í auglýsingum BombuBomba á kennitöluflakki Viðskipti Flugeldasalan Bomba sneri aftur í fyrra eftir milljóna- þrot árið 2013. Engar greiðslur fengust upp í lýstar kröfur í þrotabúið. Flestir tengja flugelda- söluna við leikarann Örn Árnason en hann átti helmingshlut í gamla félaginu og leikur í auglýsingum nýja félagsins. Hinn eigandi gamla félagsins, Arnar Barðdal, er eini eigandi nýja félagsins samkvæmt ársreikningi. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Staðgöngumæðrun Bandaríski kennarinn, Amanda Byrd, gekk með tvíbura fyrir íslenskt kennarapar, sem seldi húsið sitt til þess að fjármagna kostnað vegna fæðingarinnar. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Ég vildi gefa þeim þessa gjöf,“ segir kennarinn Amanda Byrd frá Idaho í Bandaríkjunum, en hún gekk með tvíbura fyrir íslenskt kennarapar árið 2013, en Amanda var í stóru viðtali um jólin í blaðinu Post Reg- ister. Viðtalið vakti mikla athygli í er- lendum fjölmiðlum fyrir þær sak- ir að Amanda gekk með tvíbura fyrir íslenska parið sem er komið af barneignaaldri samkvæmt við- talinu. Nokkuð var fjallað um tvíburana á Íslandi á sínum tíma, en þjóðskrá neitaði að skrá íslensku konuna sem móður barnanna, en eiginmaður hennar var löglega skráður sem fað- ir vegna erfðatengsla. Konan hafði þó betur að lokum og er skráð móð- ir drengjanna í dag. Amanda er menntaður kennari og kemur fram í greininni að hún leggi sig fram við að betrumbæta heiminn. Því fór hún til Circle Sur- rogacy og bauðst til þess að ganga með barn fyrir foreldrana. Í grein- inni kemur sértaklega fram að Am- anda hafi ekki fengið greitt fyrir meðgönguna, þó er sérstaklega tek- ið fram að íslensku foreldrarnir hafi greitt hátt í 20 milljónir króna fyrir ferlið og selt húsið sitt og bíl. „Þeir voru risastórir, um fjórt- án merkur, enda víkingadrengir,“ sagði hún um fæðingu drengjanna sem gekk snurðulaust fyrir sig. Talsmaður Staðgöngu, fé- lags foreldra sem nýta sér stað- göngumæður, Soffía Frans iska Rafns dótt ir Hede, segir í samtali við Frétta tímann að Amanda sé lýsandi dæmi fyrir staðgöngumóð- ur. „Þær eru yfirleitt vel menntað- ar og upplýstar konur,“ segir hún. Soffía segir enga tölfræði til um staðgöngumæðrun hér á landi en langflestir Íslendingar sem ganga í gegnum þetta kostnaðarsama ferli, leita til Bandaríkjanna. Þó eru til undantekningar þar sem leitað var til fátækari landa. Spurð út í gríðarlegan kostnað vegna staðgöngumæðrunar, svar- ar Soffía: „Við segjum stundum að ef þú ætlar að fá staðgöngumóður vestan hafs, þá verður þú að gera upp við þig hvort þú vilt eiga hús- næði eða barn,“ segir Soffía. Að- spurð um lögin segir hún lagafrum- varp hafa dagað uppi á þinginu eftir að Wintris-hneykslið kom upp. Nú bíði samtökin eftir nýrri ríkisstjórn. Lögin eru skýr; staðgöngumæðrun er ólögleg hér á landi eins og sak- ir standa. Aftur á móti eru lögin óskýrari þegar kemur að því að nýta sér slíka þjónustu erlendis. Íslenska parið er í nafnlausu við- tali við blaðið, og segja þau Amöndu hafa breytt lífi sínu til hins betra. „Og við hugsum til hennar á hverj- um degi,“ bættu þau við, en fjöl- skyldan er enn í góðu sambandi við Amöndu, sem hyggst heim- sækja tvíburana þegar þeir verða fimm ára. Amanda Byrd gekk með tvíbura fyrir íslenskt par. Skjáskot úr viðtalinu við Amöndu þar sem sjá mátti nýfæddu tvíburana. Ferðir aðstoðarmanns eru dýrastar Stjórnmál Ferðakostnaður Péturs Krogh Ólafssonar, póli- tísks aðstoðarmanns borgar- stjóra, Dags B. Eggertssonar, var ríflega 1.200 þúsund krónur á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er langmesti ferðakostnaður allra starfsmanna og kjörinna fulltrúa Reykjavíkurborgar á þessu ári. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Þetta kemur fram í samantekt á ferðakostnaði sem var birtur á vef Reykjavíkurborgar í kjölfar þess að borgarráð samþykkti tillögu Sjálf- stæðisflokksins um að allar ferða- heimildir yrðu lagðar fram á fundi borgarráðs. Heildarferðakostn- aður á tímabilinu nemur tæplega 14 milljónum króna sem þýðir að ferðakostnaður Péturs nemur um 8 prósent af heildarferðarkostnaði. Til samanburðar fengu samtals hundrað manns greiddan ferða- kostnað á árinu. Ferðakostnað- ur borgarstjóra nam 843 þúsund krónum á árinu. Pétur segir í samtali við Frétta- tímann að ástæða þess að hann fái svo mikinn ferðakostnað greidd- an sé að ferðakostnaður borgar- stjóra sé oft greiddur af öðrum en Reykjavíkurborg. „Ég ferðast bara þangað sem borgarstjóri fer. Stundum er borgað fyrir hann en ekki borgað fyrir mig. Ég hef aldrei farið neitt án þess að hann fari,“ segir Pétur. Pétur Krogh Ólafsson, aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar. Minnst 1000 missa vinnuna í fiskvinnslunni Sjómannaverkfall Búist er við að um 2000 manns gætu farið af launaskrá vegna verkfalls sjómanna ef það dregst fram í miðjan febrúar. Enginn samn- ingafundur er í deilunni fyrr en eftir áramót. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Þegar hafa nokkur hundruð manns verið tekin af launaskrá tveggja fiskvinnslu- fyrirtækja á Vest- fjörðum vegna hráefn- isskorts í kjölfar verkfallsins, meðal annars hjá fyrirtækjum Sam- herja, Ísfélaginu í Vestmannaeyj- um, Odda á Patreksfirði og Íslensku sjávarfangi á Þingeyri. Útgerðarmenn gera ráð fyrir að verkfallið standi að lágmarki yfir í þrjár vikur vegna þess að nýr samn- ingafundur hefur ekki verið boðað- ur í deilunni fyrr en á nýju ári. Þá gera áætlanir útgerðarinnar ráð fyrir því að búið verði að segja upp um það bil eitt þúsund manns. Standi verkfallið yfir í sex vikur er búist við að 2000 manns fari af launaskrá og kostnaðurinn verði 425 milljónir. Ef allt fer á versta veg og verkfallið dregst fram í miðj- an febrúar missa um það bil 2000 manns vinnuna samkvæmt áætl- unum en þá verður kostnaður at- vinnuleysistryggingasjóðs um 719 milljónir. Vilhjálm- ur Birgisson verkalýðsfor- maður á Akra- nesi segir það mjög slæmt að fyrirtæki fari þessa leið því verkfallið komi nú þegar harka- lega við fiskvinnslufólk, þar sem það hafi nú einungis tekjutryggingu en bónusgreiðslur séu rúmar eitt- hundrað þúsund á mánuði. Hann segist ekki vita annað en að fisk- vinnslufólk á Akranesi verði áfram á launaskrá en það sé nú í hefð- bundnu leyfi til 2. janúar vegna jólahátíðarinnar. Allt að 2000 manns gætu misst vinnuna verkfallsins

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.