Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 4
Lýðheilsa „Ég held að það sé brýnt að finna leið til að koma sykurskatti á aftur,“ segir Linda Björk Árnadóttir lýðheilsu- fræðingur. „Það var mjög vond ákvörðun hjá ríkisstjórninni að afnema sykurskattinn út frá sjónarmiði lýðheilsu og almennt virðast stjórnmálamenn illa upplýstir um þessi mál.“ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Rannsóknir gefa til kynna að mikil neysla sykraðra drykkja sé ein meginorsök ofþyngdar og offitu. Meðal Norðurlandaþjóðanna er hlutfall offitu hæst á Íslandi, eða 21 prósent. 3. og 4. janúar, fer fram ráð- stefna. þar sem kynnt er það sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðis- vísindum í Háskóla Íslands. Meðal þess er rannsókn Lindu Bjarkar Árnadóttur lýðheilsu- fræðings sem bendir til þess að ef sykraðir drykkir yrðu skattlagðir um 20 prósent myndu Íslendingar léttast um 0,4 til 1,7 kíló á ári að meðaltali en alls sýndu fimm rann- sóknir sem hún kynnti sér að tíðni offitu gæti lækkað á bilinu 1,3 til 3 prósent. Markmið meistaraverkefnis Lindu var að taka saman niður- stöður rannsókna á áhrifum skatt- lagningar á sykruðum drykkjum á holdafar. Leitað var í gagnasöfnum að rannsóknum sem birtar höfðu verið fram til janúar 2015. Rannsóknir Lindu fela einnig í sér vísbendingar um að áhrif skattlagningarinnar gætu aukist umtalsvert því hærri sem skattur- inn er. Öllum rannsóknunum ber saman um að áhrif skattlagningar yrðu mest á neyslu ungs fólks og karlmanna, sérstaklega ungra karla, en þær veita þó ekki einhlítt svar við því hversu mikil neysluáhrifin yrðu. Offita í heiminum hefur nærri tvöfaldast á síðustu 30 árum. Á heimsvísu eru meira en 1,9 millj- arðar fullorðinna einstaklinga of feitir. Það er ljóst að fjárútlát skattgreiðenda vegna offitu eru talsverð. Samkvæmt skýrslu sem rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst gerði fyrir heil- brigðisráðuneytið árið 2008 kost- aði offita íslenska samfélagið um 5,8 milljarða árið 2007. Stærstur hluti kostnaðarins fellur til vegna meðferðar offitutengdra sjúkdóma eða fylgikvillum offitu, svo sem sykursýki eða hjarta og æðasjúk- dóma. 4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Vilja reka súpurútu fyrir útigangsfólk Hjálparstarf Hjálpræðisherinn vill opna súpurútu, sem starfi á degi jafnt sem nóttu eftir því sem þörf verður á. 20 til 40 manns leituðu til hersins á degi hverjum meðan hann var með aðstöðu í herkastalanum. Hann hefur nú verið seldur og herinn er fluttur í Mjóddina. Hjálpræðis- herinn hefur sótt um styrk til borgar- innar til að reka súpurútu á nóttu sem degi. Samband milli verðs og neyslu Gosdrykkjaneysla er mun meiri á Íslandi en öðrum Norðurlöndum, og hér er verðið langlægst. Virðisaukaskattur og vörugjöld á gosdrykkjum og sykri hafa þó verið breytileg, og allt árið 2014 var vörugjald á gosdrykkjum, 21 kr. á lítra. Vörugjöld voru afnumin á sykruðum matvælum 1. janúar 2015, og virðisaukaskattur á matvæli hækkaði jafnframt úr 7 prósent í 11 prósent. Laufey Steingrímsdóttir prófessor í matvæla - og næringafræði. rekur samband verðlags og neyslu í fyrirlestri á þinginu. Þar kemur meðal annars fram að neysla gosdrykkja samkvæmt fæðuframboði náði hámarki á árun- um 2001 til 2005 en þá var hún 154 lítrar á mann. Rannsóknir Lindu Bjarkar Árnadóttur benda til þess að það gæti haft jákvæð áhrif ef gosdrykkir yrðu skattlagðir um 20 prósent. Laufey Steingríms- dóttir rekur samband verðs og neyslu. Gosdrykkir eru ódýr- ari hér en á öðrum Norðurlöndum og við drekkum langmest. Sykurskattur dregur úr offitu Offita er dýr fyrir samfélagið en aukin gos-drykkjaneysla er ein meginor- sök hennar. Páskar í Provence sp ör e hf . Vor 3 Páskahátíðin er að ganga í garð, sól fer hækkandi og vor er í lofti. Í þessari glæsilegu ferð höldum við um hið dásamlega Provence hérað í suðurhluta Frakklands og frönsku Alpana. Leið okkar liggur um friðlýsta vatnasvæðið Camargue, til miðaldabæjarins Aigues Mortes, Arles, klettabæjarins Les Baux og að Pont du Gard vatnsleiðslubrúnni frá tímum Rómverja. Undursamleg leið til að fagna vorkomu. 13. - 22. apríl Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 212.600 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! „Ég hef miklar áhyggjur af okkar skjólstæðingum og við þurfum að hafa einhverja aðstöðu í mið- bænum,“ segir Yngvi Kristinn Skjaldarson. Hann segir að úrræð- um fyrir útigangsfólk hafi fækkað mjög mikið og ástandið sé ekki gott. Hugmyndin sé að vera með rútu í miðbænum yfir daginn, frá 10 til 14 og síðan á nóttunni eftir því sem þörf verður fyrir. „Við þyrftum auðvitað að finna taktinn í samráði við aðra sem vinna að þessum málum, svo sem lögreglu og gistiskýlið,“ segir hann. Hjálpræðisherinn hefur sótt um 16 milljóna króna styrk til borgar- innar en ætlunin er að kaupa slíka rútu og útbúa hana til verksins. Þá verður launaður starfsmaður á rútunni, auk sjálfboðaliða. | þká Lögreglan rannsakar nauðgun áfram Sakamál Lögregla ætlar að halda áfram að rannsaka nauðgun þrátt fyrir að kona sem kærði hafi breytt framburði sínum og segi nú að ekkert saknæmt hafi gerst. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Konan segir sjálf að ekkert ósætti sé á milli hennar og Stefáns Þórs Guðgeirsson. Hún hafi ekki fengið áverkana með saknæmum hætti. „Við vorum ekki ósátt þegar ég leit- aði til neyðarmóttöku. Þetta mál hefur orðið að einhverju sem mig óraði aldrei fyrir,” segir hún. Konan kærði Stefán Þór þann 10. desember síðastliðinn fyrir nauðg- un. Tveimur dögum síðar tilkynnti hún lögreglu að hún væri hætt við að leggja fram kæru í málinu. Í kjöl- far þess fór lögreglan fram á að Stef- án Þór kláraði 630 daga eftirstöðv- ar fangelsisrefsingar sinnar fyrir annars vegar nauðgun árið 2012 og hins vegar ofbeldi gegn þáver- andi kærustu árið 2014. Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð. Konan sagði lögreglu frá því að henni hefði verið ógnað af félögum mannsins með byssu, samkvæmt framburði lögreglumanna fyrir dómi. Þessu neitar hún nú. Konan hefur áður breytt framburði sínum vegna meints þrýstings. Í dómi sem féll árið 2012 kemur fram að hún hafi sagst við skýrslutöku hjá lögreglu hafa orðið vitni að líkamsárás. Þegar hún bar vitni fyrir dómi dró hún framburð sinn til baka og mátti skilja á henni að hún óttaðist ofbeldi. Dómsmál- ið árið 2012 tengdist mönnum sem voru í vélhjólagenginu Fáfni sem síðar varð Hells Angels. Af Face- book-síðu Stefáns Þórs má dæma að mikill vinskapur sé milli hans og þeirra sem voru tengdir opinber- lega við Fáfni á sínum tíma. Stefán Þór þarf að afplána fyrri dóm óháð framvindu nýja málsins. Dauðsfall Lögreglan rannsakar andlát tveggja ungmenna. Lögregla rannsakar svipleg dauðs- föll tveggja ungmenna. Karlmaður um tvítugt fannst látinn í húsi AA samtakanna við Tjarnargötu á mið- vikudagskvöldið. Þá lést 22 ára kona á heimili sínu á aðfangadag. Í báð- um tilfellum er lögreglan að rann- saka dánarmein ungmennanna eins og tíðkast um dauðsföll sem verða utan sjúkrastofnanna. Stundin greindi fyrst frá andláti mannsins en þar kom einnig fram að hann hefði breytt um lífsstíl og hefði verði hættur neyslu fíkniefna. | vg Pilturinn fannst látinn í húsnæði á Tjarnargötunni. Fannst látinn í húsi AA samtakanna Gleðilegt ár! Fréttatíminn þakkar lesendum samfylgdina á árinu og óskar þeim velfarnaðar á komandi ári. Þetta er síðasta tölublað ársins en blaðið kemur næst út fimmtu- daginn 5. janúar 2017. Hópur ættleiddra einstaklinga frá Kóreu er væntanlegur til landsins til að bjóða þeim sem ættleiddir hafa verið frá Kóreu til íslands að fara í genarannsókn, hafi þeir áhuga á að vita meira um uppruna sinn. Hópurinn er á vegum banda- rísku samtakanna 325 Kamra og segist hafa rakið skyldleika í 10% tilfella. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Anna-Lena Engström er ein þeirra 200 þúsund barna sem ættleidd voru frá Kóreu eftir árið 1950. „Ég var ættleidd til Svíþjóðar og, eins og svo margir, veit ég ekkert um líf- fræðilegan uppruna.“ Anna-Lena kemur til Íslands í febrúar á vegum samtakanna 325 Kamra. Þau vinna að því að safna lífsýnum þeirra sem ættleiddir hafa verið frá Kóreu til útlanda. Lífsýnin fara í gagnabanka sem notaður er til að rekja ættir og skyldleika ættleiddu einstakling- anna. Markmið samtakanna er að aðstoða þá sem vilja við að tengjast blóðforeldrum eða blóðskyldum ættmennum. Samtökin voru stofn- uð í Bandaríkjunum en þangað voru 150 þúsund kóresk börn ættleidd. Velunnari samtakanna, Thom- as Park Clemens, sem sjálfur var ættleiddur frá Kóreu, styrkir starf þeirra með því að borga fyrir gena- rannsóknirnar. Hvert próf kostar um það bil 100 dollara. Clemens er nokkuð þekktur viðskiptamað- ur í Bandaríkjunum og hefur skrif- að bókina The Unforgotten War um reynslu sína af því að vera ættleidd- ur eftir Kóreustríðið. Að undanförnu hafa 325 Kamra fengið fjölmargar fyrirspurnir frá þeim sem ættleiddir voru frá Kóreu til Evrópu og ákvað Clemens því að borga fyrir genarannsóknir þeirra líka. Anna-Lena hefur ásamt fleirum ferðast um Evrópu og safnað lífsýn- um í gagnabankann. „Í desember fórum við til Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur og tókum um 170 sýni. Við bjóðum þeim sem hafa áhuga á að fara í svona próf að gera það, þeim að kostnarlausu. Prófin eru frá Familyteedna en bankinn sem vinnur úr þeim kallast GEDmatch. Við verðum í Reykjavík að kvöldi föstudagsins 3. febrúar og þeir sem vilja, mega endilega hafa samband. Hingað til höfum við fundið nokk- uð náinn skyldleika í um 10% til- vika.“ Hún telur að minnsta kosti 22 einstaklingar hafa verið ættleidda frá Kóreu til Íslands. Þóra Vésteinsdóttir er meðal þeirra fyrstu sem komu frá Kóreu til Íslands. „Þetta vekur ekki vonir hjá mér. Ég var borin út og tel því afar ólíklegt að nokkur leið sé að rekja hverjir blóðforeldrar mínir eru. Ég hef aldrei haft neina þörf fyrir að vita meira um þau og mun ekki nýta mér þetta.“ Önnur kona sem ekki vill láta nafns síns getið, segir rannsóknina áhugaverða. „Ég er ekki blóðskyld neinum í Íslendingabók og gæti því vel hugsað mér að að öðlast frek- ari upplýsinga um uppruna minn, um hvort ég sé með einhverja undir- liggjandi sjúkdóma eða annað slíkt. Ég hef samt enga þörf fyrir að finna blóðforeldra mína.“ Anna-Lena Engström svarar fyrir- spurnum á Facebook og tölvupóstum á anna_lena.engstrom@yahoo.se frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 94. tölublað 7. árgangur Föstudagur 30.12.2016 28 20 KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur Betri þjónusta Við kappkostum að veita viðskiptavinum okkar skjóta og góða þjónustu. Ef tæki keypt hjá okkur bilar lánum við samskonar tæki á meðan viðgerð stendur. Við gerum betur í þjónustu Anna-Lena Engström leitar þeirra sem ættleiddir voru frá Kóreu til Íslands. Þessi sýning er ykkur öllum til skammar Jón Viðar skrifar um Óþelló Tjáknmál eru hellaristur nútímans Ár ástar og ótta, sannleika og lygi Kyn skiptir litlu máli – kynja- misrétti miklu Margrét Örn- ólfsdóttir segir að framtíðin sé í sjónvarpinu Kunta Kinte sogar ferðamenn til Gambíu Guðrún Bjarnadóttir heimsótti Jufureh, heimabæ Kunta Kinte Bandarísk staðgöngu móðir fæddi tvíbura Íslensk kennarahjón borguðu rúmar 11 milljónir fyrir börnin Bróðirinn kallar ríkis- stjórnina til ábyrgðar Hælisleitandinn sem kveikti í sér vildi ekki fara í fangelsi í Makedóníu Bjóða ættleiddum frá Kóreu í rannsókn á uppruna þeirra Matartískan 2017 verður ár blómkálsins 24 36 2 10 16 14 Lífgaðu upp á hátíðirnar og notaðu lífræna kraftinn frá Knorr í jólasósuna. ...KEMUR MEÐ GÓÐA BRAGÐIÐ! Lífrænn hátíðarkraftur MSG Opið í dag 9-22 *Reyðarfjörður 9-20

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.