Fréttatíminn - 30.12.2016, Qupperneq 4
Lýðheilsa „Ég held að það sé
brýnt að finna leið til að koma
sykurskatti á aftur,“ segir Linda
Björk Árnadóttir lýðheilsu-
fræðingur. „Það var mjög vond
ákvörðun hjá ríkisstjórninni
að afnema sykurskattinn út frá
sjónarmiði lýðheilsu og almennt
virðast stjórnmálamenn illa
upplýstir um þessi mál.“
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Rannsóknir gefa til kynna að mikil
neysla sykraðra drykkja sé ein
meginorsök ofþyngdar og offitu.
Meðal Norðurlandaþjóðanna er
hlutfall offitu hæst á Íslandi, eða
21 prósent.
3. og 4. janúar, fer fram ráð-
stefna. þar sem kynnt er það sem
er efst á baugi í líf- og heilbrigðis-
vísindum í Háskóla Íslands.
Meðal þess er rannsókn Lindu
Bjarkar Árnadóttur lýðheilsu-
fræðings sem bendir til þess að ef
sykraðir drykkir yrðu skattlagðir
um 20 prósent myndu Íslendingar
léttast um 0,4 til 1,7 kíló á ári að
meðaltali en alls sýndu fimm rann-
sóknir sem hún kynnti sér að tíðni
offitu gæti lækkað á bilinu 1,3 til 3
prósent.
Markmið meistaraverkefnis
Lindu var að taka saman niður-
stöður rannsókna á áhrifum skatt-
lagningar á sykruðum drykkjum á
holdafar. Leitað var í gagnasöfnum
að rannsóknum sem birtar höfðu
verið fram til janúar 2015.
Rannsóknir Lindu fela einnig
í sér vísbendingar um að áhrif
skattlagningarinnar gætu aukist
umtalsvert því hærri sem skattur-
inn er. Öllum rannsóknunum ber
saman um að áhrif skattlagningar
yrðu mest á neyslu ungs fólks og
karlmanna, sérstaklega ungra
karla, en
þær veita þó ekki einhlítt svar
við því hversu mikil neysluáhrifin
yrðu.
Offita í heiminum hefur nærri
tvöfaldast á síðustu 30 árum. Á
heimsvísu eru meira en 1,9 millj-
arðar fullorðinna
einstaklinga of feitir. Það er ljóst
að fjárútlát skattgreiðenda vegna
offitu eru talsverð. Samkvæmt
skýrslu sem rannsóknarmiðstöð
Háskólans á Bifröst gerði fyrir heil-
brigðisráðuneytið árið 2008 kost-
aði offita íslenska samfélagið um
5,8 milljarða árið 2007. Stærstur
hluti kostnaðarins fellur til vegna
meðferðar offitutengdra sjúkdóma
eða fylgikvillum offitu, svo sem
sykursýki eða hjarta og æðasjúk-
dóma.
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
Vilja reka
súpurútu
fyrir
útigangsfólk
Hjálparstarf Hjálpræðisherinn
vill opna súpurútu, sem starfi á
degi jafnt sem nóttu eftir því sem
þörf verður á. 20 til 40 manns
leituðu til hersins á degi hverjum
meðan hann var með aðstöðu í
herkastalanum. Hann hefur nú
verið seldur og herinn er fluttur í
Mjóddina.
Hjálpræðis-
herinn
hefur sótt
um styrk til
borgar-
innar til
að reka
súpurútu á
nóttu sem
degi.
Samband milli verðs og neyslu
Gosdrykkjaneysla er mun meiri á Íslandi en öðrum Norðurlöndum, og hér er
verðið langlægst. Virðisaukaskattur og vörugjöld á gosdrykkjum og sykri
hafa þó verið breytileg, og allt árið 2014 var vörugjald á gosdrykkjum, 21
kr. á lítra. Vörugjöld voru afnumin á sykruðum matvælum 1. janúar 2015, og
virðisaukaskattur á matvæli hækkaði jafnframt úr 7 prósent í 11 prósent.
Laufey Steingrímsdóttir prófessor í matvæla - og næringafræði. rekur
samband verðlags og neyslu í fyrirlestri á þinginu. Þar kemur meðal annars
fram að neysla gosdrykkja samkvæmt fæðuframboði náði hámarki á árun-
um 2001 til 2005 en þá var hún 154 lítrar á mann.
Rannsóknir Lindu
Bjarkar Árnadóttur
benda til þess að
það gæti haft jákvæð
áhrif ef gosdrykkir
yrðu skattlagðir um
20 prósent.
Laufey Steingríms-
dóttir rekur samband
verðs og neyslu.
Gosdrykkir eru ódýr-
ari hér en á öðrum
Norðurlöndum og við
drekkum langmest.
Sykurskattur
dregur úr offitu Offita er dýr fyrir samfélagið en aukin gos-drykkjaneysla
er ein meginor-
sök hennar.
Páskar í Provence
sp
ör
e
hf
.
Vor 3
Páskahátíðin er að ganga í garð, sól fer hækkandi og vor er
í lofti. Í þessari glæsilegu ferð höldum við um hið dásamlega
Provence hérað í suðurhluta Frakklands og frönsku Alpana.
Leið okkar liggur um friðlýsta vatnasvæðið Camargue, til
miðaldabæjarins Aigues Mortes, Arles, klettabæjarins Les Baux
og að Pont du Gard vatnsleiðslubrúnni frá tímum Rómverja.
Undursamleg leið til að fagna vorkomu.
13. - 22. apríl
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 212.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
„Ég hef miklar áhyggjur af okkar
skjólstæðingum og við þurfum
að hafa einhverja aðstöðu í mið-
bænum,“ segir Yngvi Kristinn
Skjaldarson. Hann segir að úrræð-
um fyrir útigangsfólk hafi fækkað
mjög mikið og ástandið sé ekki
gott. Hugmyndin sé að vera með
rútu í miðbænum yfir daginn, frá
10 til 14 og síðan á nóttunni eftir
því sem þörf verður fyrir. „Við
þyrftum auðvitað að finna taktinn
í samráði við aðra sem vinna að
þessum málum, svo sem lögreglu
og gistiskýlið,“ segir hann.
Hjálpræðisherinn hefur sótt um
16 milljóna króna styrk til borgar-
innar en ætlunin er að kaupa slíka
rútu og útbúa hana til verksins.
Þá verður launaður starfsmaður á
rútunni, auk sjálfboðaliða. | þká
Lögreglan rannsakar nauðgun áfram
Sakamál Lögregla ætlar að halda
áfram að rannsaka nauðgun
þrátt fyrir að kona sem kærði hafi
breytt framburði sínum og segi
nú að ekkert saknæmt hafi gerst.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Konan segir sjálf að ekkert ósætti
sé á milli hennar og Stefáns Þórs
Guðgeirsson. Hún hafi ekki fengið
áverkana með saknæmum hætti.
„Við vorum ekki ósátt þegar ég leit-
aði til neyðarmóttöku. Þetta mál
hefur orðið að einhverju sem mig
óraði aldrei fyrir,” segir hún.
Konan kærði Stefán Þór þann 10.
desember síðastliðinn fyrir nauðg-
un. Tveimur dögum síðar tilkynnti
hún lögreglu að hún væri hætt við
að leggja fram kæru í málinu. Í kjöl-
far þess fór lögreglan fram á að Stef-
án Þór kláraði 630 daga eftirstöðv-
ar fangelsisrefsingar sinnar fyrir
annars vegar nauðgun árið 2012
og hins vegar ofbeldi gegn þáver-
andi kærustu árið 2014. Hæstiréttur
staðfesti þann úrskurð.
Konan sagði lögreglu frá því að
henni hefði verið ógnað af félögum
mannsins með byssu, samkvæmt
framburði lögreglumanna fyrir
dómi. Þessu neitar hún nú.
Konan hefur áður breytt
framburði sínum vegna meints
þrýstings. Í dómi sem féll árið 2012
kemur fram að hún hafi sagst við
skýrslutöku hjá lögreglu hafa orðið
vitni að líkamsárás. Þegar hún bar
vitni fyrir dómi dró hún framburð
sinn til baka og mátti skilja á henni
að hún óttaðist ofbeldi. Dómsmál-
ið árið 2012 tengdist mönnum sem
voru í vélhjólagenginu Fáfni sem
síðar varð Hells Angels. Af Face-
book-síðu Stefáns Þórs má dæma
að mikill vinskapur sé milli hans og
þeirra sem voru tengdir opinber-
lega við Fáfni á sínum tíma.
Stefán Þór þarf að
afplána fyrri dóm
óháð framvindu
nýja málsins.
Dauðsfall Lögreglan rannsakar
andlát tveggja ungmenna.
Lögregla rannsakar svipleg dauðs-
föll tveggja ungmenna. Karlmaður
um tvítugt fannst látinn í húsi AA
samtakanna við Tjarnargötu á mið-
vikudagskvöldið. Þá lést 22 ára kona
á heimili sínu á aðfangadag. Í báð-
um tilfellum er lögreglan að rann-
saka dánarmein ungmennanna
eins og tíðkast um dauðsföll sem
verða utan sjúkrastofnanna.
Stundin greindi fyrst frá andláti
mannsins en þar kom einnig fram
að hann hefði breytt um lífsstíl og
hefði verði hættur neyslu fíkniefna.
| vg
Pilturinn fannst látinn í húsnæði á Tjarnargötunni.
Fannst látinn í húsi
AA samtakanna
Gleðilegt ár!
Fréttatíminn þakkar lesendum
samfylgdina á árinu og óskar
þeim velfarnaðar á komandi ári.
Þetta er síðasta tölublað ársins
en blaðið kemur næst út fimmtu-
daginn 5. janúar 2017.
Hópur ættleiddra einstaklinga frá
Kóreu er væntanlegur til landsins
til að bjóða þeim sem ættleiddir
hafa verið frá Kóreu til íslands
að fara í genarannsókn, hafi þeir
áhuga á að vita meira um uppruna
sinn. Hópurinn er á vegum banda-
rísku samtakanna 325 Kamra og
segist hafa rakið skyldleika í 10%
tilfella.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Anna-Lena Engström er ein þeirra
200 þúsund barna sem ættleidd
voru frá Kóreu eftir árið 1950. „Ég
var ættleidd til Svíþjóðar og, eins
og svo margir, veit ég ekkert um líf-
fræðilegan uppruna.“ Anna-Lena
kemur til Íslands í febrúar á vegum
samtakanna 325 Kamra. Þau vinna
að því að safna lífsýnum þeirra sem
ættleiddir hafa verið frá Kóreu til
útlanda. Lífsýnin fara í gagnabanka
sem notaður er til að rekja ættir og
skyldleika ættleiddu einstakling-
anna. Markmið samtakanna er að
aðstoða þá sem vilja við að tengjast
blóðforeldrum eða blóðskyldum
ættmennum. Samtökin voru stofn-
uð í Bandaríkjunum en þangað voru
150 þúsund kóresk börn ættleidd.
Velunnari samtakanna, Thom-
as Park Clemens, sem sjálfur var
ættleiddur frá Kóreu, styrkir starf
þeirra með því að borga fyrir gena-
rannsóknirnar. Hvert próf kostar
um það bil 100 dollara. Clemens
er nokkuð þekktur viðskiptamað-
ur í Bandaríkjunum og hefur skrif-
að bókina The Unforgotten War um
reynslu sína af því að vera ættleidd-
ur eftir Kóreustríðið.
Að undanförnu hafa 325 Kamra
fengið fjölmargar fyrirspurnir frá
þeim sem ættleiddir voru frá Kóreu
til Evrópu og ákvað Clemens því að
borga fyrir genarannsóknir þeirra
líka.
Anna-Lena hefur ásamt fleirum
ferðast um Evrópu og safnað lífsýn-
um í gagnabankann. „Í desember
fórum við til Svíþjóðar, Noregs og
Danmerkur og tókum um 170 sýni.
Við bjóðum þeim sem hafa áhuga
á að fara í svona próf að gera það,
þeim að kostnarlausu. Prófin eru
frá Familyteedna en bankinn sem
vinnur úr þeim kallast GEDmatch.
Við verðum í Reykjavík að kvöldi
föstudagsins 3. febrúar og þeir sem
vilja, mega endilega hafa samband.
Hingað til höfum við fundið nokk-
uð náinn skyldleika í um 10% til-
vika.“ Hún telur að minnsta kosti 22
einstaklingar hafa verið ættleidda
frá Kóreu til Íslands.
Þóra Vésteinsdóttir er meðal
þeirra fyrstu sem komu frá Kóreu til
Íslands. „Þetta vekur ekki vonir hjá
mér. Ég var borin út og tel því afar
ólíklegt að nokkur leið sé að rekja
hverjir blóðforeldrar mínir eru. Ég
hef aldrei haft neina þörf fyrir að
vita meira um þau og mun ekki nýta
mér þetta.“
Önnur kona sem ekki vill láta
nafns síns getið, segir rannsóknina
áhugaverða. „Ég er ekki blóðskyld
neinum í Íslendingabók og gæti því
vel hugsað mér að að öðlast frek-
ari upplýsinga um uppruna minn,
um hvort ég sé með einhverja undir-
liggjandi sjúkdóma eða annað slíkt.
Ég hef samt enga þörf fyrir að finna
blóðforeldra mína.“
Anna-Lena Engström svarar fyrir-
spurnum á Facebook og tölvupóstum
á anna_lena.engstrom@yahoo.se
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
94. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 30.12.2016
28 20
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
Betri þjónusta Við kappkostum að veita viðskiptavinum
okkar skjóta og góða þjónustu.
Ef tæki keypt hjá okkur bilar lánum við
samskonar tæki á meðan viðgerð stendur.
Við gerum betur í þjónustu
Anna-Lena Engström
leitar þeirra sem
ættleiddir voru frá
Kóreu til Íslands.
Þessi sýning er ykkur
öllum til skammar
Jón Viðar skrifar um Óþelló
Tjáknmál eru
hellaristur
nútímans
Ár ástar og
ótta, sannleika
og lygi
Kyn skiptir litlu
máli – kynja-
misrétti miklu
Margrét Örn-
ólfsdóttir segir
að framtíðin sé í
sjónvarpinu
Kunta Kinte sogar
ferðamenn til Gambíu
Guðrún Bjarnadóttir heimsótti
Jufureh, heimabæ Kunta Kinte
Bandarísk staðgöngu
móðir fæddi tvíbura
Íslensk kennarahjón
borguðu rúmar 11 milljónir
fyrir börnin
Bróðirinn kallar ríkis-
stjórnina til ábyrgðar
Hælisleitandinn sem kveikti
í sér vildi ekki fara í fangelsi í
Makedóníu
Bjóða ættleiddum frá Kóreu
í rannsókn á uppruna þeirra
Matartískan
2017 verður ár
blómkálsins
24
36
2
10
16
14
Lífgaðu upp á hátíðirnar
og notaðu lífræna kraftinn
frá Knorr í jólasósuna.
...KEMUR MEÐ GÓÐA BRAGÐIÐ!
Lífrænn
hátíðarkraftur
MSG
Opið í dag
9-22
*Reyðarfjörður 9-20