Fréttatíminn - 21.01.2017, Side 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 21. janúar 2017
Soffía Dögg Garðarsdótt-ir er flestum fagurkerum landsins löngu kunn enda haldið úti hinum feikna-vinasæla vef Skreytum
hús í nokkur ár. Á Facebook-hóp
hennar Skreytum hús deila 35.000
meðlimir lausnum fyrir heimilið
en í því er Soffía sjálf algjör snill-
ingur, sérstaklega þegar kemur að
frumlegum og ódýrum lausnum.
Soffía er nýbúin að taka jólin niður
sem henni finnst næstum því jafn
skemmtilegt og að setja þau upp.
„Það kemur svo skemmtileg ró yfir
og svona hreinleikatilfinning. Á
þessum tíma er kjörið að nýta tím-
ann og prófa að færa hluti til, það
sem skiptir öllu máli er að leika sér
með þetta allt saman. Sniðugt er
að setja sér áskorun um að enginn
hlutur megi fara á „sinn“ stað –
hvað kemur út úr því?“
Nú þegar jólin eru komin í kassa
stefnir Soffía á að taka barnaher-
bergin í gegn. Fyrst á dagskrá er
að búa til nýtt rúm fyrir dótturina,
hálfgerða himnasæng. Til þess mun
Soffía nota gamalt rúm sem henni
áskotnaðist í Skreytumhús-sölu-
hópnum og úr viðarhillum af nytja-
markaði. „Barnaherbergi eru ei-
lífðarverkefni og eitthvað sem þarf
alltaf að fara reglulega í gegnum.
Börn eiga svo mikið af leikföngum,
svo bætist alltaf við um jólin og það
er um að gera að fara yfir það sem
er ekki lengur í notkun og koma því
þangað sem aðrir njóta góðs af. Við
fórum yfir alla fataskápana hérna
og erum með stóra poka sem eru að
fara í Konukot og í Rauða krossinn,
eins förum við með leikföng sem er
hætt að nota og komum þeim í um-
ferð aftur.“ | hh
Heimili í stöðugri þróun
Á hinum feiknavinsæla
vef Skreytum hús
deilir Soffía Dögg
Garðarsdóttir því sem
gleður auga hennar
hverju sinni en fyrst
og fremst deilir hún
sniðugum og ódýrum
lausnum fyrir heimilið.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Soffía Dögg heldur úti vefnum Skreytum hús þar sem hún deilir því sem hrífur í henni fagurkerann hverju sinni. Hún
heldur líka utan um facebook-hópinn Skreytum hús þar sem yfir 35.000 manns eru meðlimir. Slippfélagið hefur þróað liti í
samstarfi við Soffíu sem hafa líka verið gríðarlega vinsælir. Sjálf er hún mest fyrir mjúka og notalega tóna, jarðliti og pastel í
bland við svart og hvítt. Mynd | Hari
Þessi gamli stofuskápur fékk nýtt útlit áður en hann var endurnýttur í herbergi
barnanna. Soffía málaði skápinn hvítan og setti stóran límmiða á bak við hillurnar.
Soffía tók hús foreldra sinn í gegn síðastliðið sumar og hér má hvernig hún gjör-
breytti eldhúsinu.
Þennan
bekk fann
Soffía í Góða
hirðinum
og breytti
honum að
sínum stíl.
8.999 kr.
PARÍS f rá
T í m a b i l : m a rs - a p r í l 2 0 1 7
12.999 kr.
LYON f rá
T í m a b i l : j ú n í & s e p te m b e r 2 0 1 7
8.499 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
FRANKFURT f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a í 2 0 1 7
14.499 kr.
BOSTON f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a í 2 0 1 7
14.999 kr.
VARSJÁ f rá
T í m a b i l : á gú st - s e p te m b e r 2 0 1 7
Hæ,
kíktu út!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
*
*
*
*
*
*