Fréttatíminn - 21.01.2017, Blaðsíða 35

Fréttatíminn - 21.01.2017, Blaðsíða 35
Mikilvægt að vernda augun Úrval skíðagleraugna í Eyesland er fjölbreytt. Unnið í samstarfi við Eyesland Eyesland á Granda leggur sérstaka áherslu á að bjóða upp á mikið úrval sport-gleraugna af öllum sortum. „Við erum með mikið af hjóla- og hlaupagleraugum sem og sérstök- um skíðagleraugum,“ segir Mar- íanna Jónsdóttir, verslunarstjóri Eyesland. Til þess að gleraugun gagnist vel þegar verið að stunda einhvers konar íþróttir þurfa þau að hafa ýmsa kosti. „Sportgleraugu eru yfirleitt straumlínulaga og kúpt þannig að þau eru lokuð á hliðunum og liggja betur að. Mörg sportgler- augu eru þannig að armarnir liggja þétt upp við húðina og eru sveigj- anlegir þannig að það er ekkert mál að hafa þau undir hjálmum,“ segir Maríanna. Gleraugun eru að auki oftast með skiptanlegum linsum þannig að það er hægt að skipta glerjunum út. „Ef þú ert til dæmis að hjóla í sól þá ertu með sólgler en þegar þú ert að hjóla í roki eða rigningu þá er hægt að setja glærar linsur,“ bætir Maríanna við. Flest sportgleraugu eru þannig gerða að hægt sé að setja í þau styrk eða kaupa sjóngler sem falla inn í sportgleraugun sem hægt er að fjarlægja. Hægt að vera með eigin gleraugu undir Úrval skíðagleraugna í Eyeslandi er mikið, þau ódýrustu eru á 5900 krónur en hægt er að fá gleraugu upp í 40.000 krónur. „Þá ertu komin með gleraugu sem eru með þremur mismunandi linsum, með þokulinsum líka, það getur skipt máli. Svo er bara mjög misjafnt hvað fólk vill, við reynum að vera með alla flóruna. Sumir vilja ljóst gler og aðrir dökkt með spegla- gleri til þess að minnka endurkast. Hægt er að fá skíðagleraugu bæði fyrir börn og fullorðna þar sem þín eigin gleraugu passa inn í rammann þannig að þú getur verið með þau undir skíðagleraugunum. Skíðagler- augu sem eru með fótókrómískar linsur eru mjög vinsæl, þá dökkna þær eða lýsast eftir birtuskilyrð- um. Þegar þú byrjar að skíða getur verið sól og svo er allt í einu komin snjókoma. “ segir Maríanna. Gleraugu fyrir hvers kyns fjallamennsku Skíða- og fjallagleraugu eru not- uð bæði til þess að fá síður snjó í augun og vegna birtunnar sem getur orðið mikil á fjöllum vegna endurkasts. „Það er afar mikilvægt að vera með vörn gegn skaðleg- um geislum sem magnast upp við endurkastið frá snjónum,“ seg- ir Maríanna og bætir við að þessi gleraugu séu ekki bara notuð á skíðum heldur á vélsleða, fjórhjóli eða hvers kyns fjallamennsku. 3 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 VETRARFJÖR Maríanna jónsdóttir, verslunarstjóri Eyesland. Myndir | Hari Mikið úrval af sport- og fjallagleraugum frá RedBull, Smith, Montana, Cébé, Bollé og Oakley. Fjölbreytt úrval af skíðagleraugum, t.d. fótókrómískum, yfir gleraugu, ljósar linsur fyrir öll skilyrði og speglagler. Hérna eru sýnd skíðagleraugu frá Julbo, Montana og Redbull. 11.900.- 14.900.- 34.950.- 7.490.- 22.850.- 36.850.-32.900.- 15.980.- 42.900.- 11.850.-27.650.-

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.