Fréttatíminn - 21.01.2017, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 21. janúar 2017
Góð janúarráð
frá Soffíu:
„Ólíkt mörgum þá finnst mér
janúar og febrúar ferlega kósí
mánuðir. Veturinn er alltaf
skemmtilegur fyrir DIY-verkefni
(Gerðu það sjálf/ur)innan dyra,
þar sem sumarið er oft undir-
lagt af garðvinnu og öðrum
utanhúsverkefnum. Ég veit að
margir eru hræddir við að byrja
á einhverju svona DIY, finnst
það yfirþyrmandi, en það er um
að gera að fara á nytjamark-
að og kaupa sér kertastjaka
eða eitthvert smotterí og prófa
sig áfram. Það er bara að taka
fyrsta skrefið og láta reyna á
það. Því fylgir því mjög góð til-
finning að endurnýta hluti og að
skapa eitthvað fallegt, eitthvað
sérstakt sem að fellur að þínum
einstaka smekk. Heimilið á að
vera framlenging á þér og þín-
um persónuleika,“ segir Soffía.
Gömul hurð getur auðveld-
lega nýst sem skápahurð.
Hér má sjá hvernig stofan tók stakkaskiptum árið 2008. „Ég er á móti því að taka
allt í gegn á einu bretti og finnst að heimilið eigi að þróast yfir tíma, vaxa með
þér,“ segir Soffía.
Hér má sjá hvernig hægt er að leika sér með IKEA-hillu með litlu fleira
en hugmyndafluginu.
Eftir að hafa lengi átt þennan eld-
hússkáp langaði Soffíu til að breyta
til. Það þurfti ekki annað en svarta
málningu til að umbreyta eldhúsinu.
eldofninn.is
Eldofninn, pizzeria • Bústaðavegi • sími 533 1313 • eldofninn.is
Kaffit
ími
- ekta Íta
lskt
Eldofninn flytur in
n eðal kaffi frá Ítal
íu