Fréttatíminn - 21.01.2017, Side 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 21. janúar 2017
Einblínt á styrkleika
frekar en veikleika
Jákvæðni verður í fyrirrúmi á námskeiðinu
Hagnýting jákvæðrar sálfræði í Opna háskólanum í HR,
en þar verður farið yfir byltingarkenndar kenningar sem
hafa nýst á vinnustöðum um allan heim.
Unnið í samstarfi við
Opna háskólann í HR
Ég ætla að kenna fólki hvernig nota megi já-kvæða sálfræði á vinnu-stöðum. Hvernig það
getur nýtt sér uppbyggilegar
aðferðir, annað hvort í persónu-
legum tilgangi eða í hópi ef um
stjórnendur ræðir til að bæta
eigin styrkleika sem og annarra
og skapa vellíðan,“ segir Guðrún
Snorradóttir, formaður Félags
um jákvæða sálfræði á Íslandi, en
hún stýrir námskeiðinu Hagnýt-
ing jákvæðrar sálfræði, við Opna
háskólann í HR, föstudaginn 3.
febrúar, mánudaginn 6. febrúar
og föstudaginn 10. febrúar.
Þar ætlar Guðrún að fara í
saumana á helstu kenningum sem
liggja til grundvallar jákvæðri sál-
fræði og hvernig megi nota þessa
vísindalegu nálgun með hagnýt-
um hætti á vinnustöðum.
Fókusinn á það jákvæða
En hvað er jákvæð sálfræði? „Í
stuttu máli gengur hún út á að
skoða styrkleika manneskjunnar
og jákvæða eiginleika og tilfinn-
ingar og hvernig megi svo byggja
ofan á það,“ útskýrir Guðrún
„Fókusinn er á það jákvæða í fari
manneskjunnar. Eiginleika eins
og til dæmis þrautseigju, sem er
hæfni okkar til að bregðast við á
uppbyggilegan máta þrátt fyrir
mótbyr í lífinu. Það er því ekki
verið að einblína á tiltekin vanda-
mál í þeim tilgangi að laga þau og
leysa, heldur á það jákvæða sem
fyrir er og styrkja það.“
Hvað gerir fólk
hamingjusamt?
Hún segir að upphaf jákvæðr-
ar sálfræði megi rekja til vissrar
stefnubreytingar í bandarískri
sálfræði undir lok síðustu aldar.
„Þetta byrjaði árið 1999 með for-
manni bandaríska sálfræðingafé-
lagsins, Dr. Martin Seligman og
kollegum hans. Þeim fannst nóg
komið af því að einblína bara á
vandamál, á það sem er að fólki,
eins og sálfræðin hefur gjarnan
gert og fóru í staðinn að skoða
hvaða breytur eru í fylgni við
hamingju og vellíðan; Hvað gerir
fólk hamingjusamt, hvað gefur
lífinu merkingu og svo framveg-
is. Í kjölfarið settu þeir fram í bók
kenningar byggðar á rannsóknun-
um og þannig fóru hjólin að snú-
ast.“
Átján árum síðar hefur já-
kvæð sálfræði, eða „positvie
psychology“ eins og hún kallast
á frummálinu, breiðst út um allan
heim. „Ég sé það nú bara á þeim
ráðstefnum sem ég sæki árlega,“
segir Guðrún. „Að þangað kemur
fólk frá öllum heimshornum. Það
þykir öflugt að búa yfir þessari
þekkingu og nýta hana sem
vogarafl við þá neikvæðni sem oft
ríkir í samfélaginu.“
Námskeið sem gagnast öllum
Hún segir ekki síður skemmti-
legt að fræðin heilli fólk úr öllum
starfsstéttum. „Enda er jákvæð
sálfræði þverfagleg nálgun sem
fjallar fyrst og fremst um mann-
eskjuna. Þess vegna er verið að
nota hana í öllu, í kennslu, í við-
skiptum og svo framvegis. Það er
einmitt eitt af því sem mér finnst
gera hana svona skemmtilega;
það að hún skuli snerta allar at-
vinnugreinar og nýtast hverjum
sem er.“
Þannig að námskeiðið við Opna
háskólann gagnast ekki bara
sálfræðingum heldur öllum? „Já,
alveg klárlega. Þetta á erindi við
alla sem hafa áhuga á því að vinna
með þrautseigju, styrkleika og
vellíðan.“
Nánar á slóðinni
www.ru.is/opnihaskolinn,
undir „stutt námskeið“.
Guðrún Snorradóttur, formaður Félags um
jákvæða sálfræði á Íslandi, stýrir námskeiðinu.
Mynd | Hari
Lög sem verða 20 ára á árinu
Tíundi áratugurinn
er að líða undir lok
og árið er 1997. Ástin,
sorgin og seiðandi
tónar einkenna þetta
sérstaka tónlistarár.
Nú eru liðin 20 ár
og Fréttatíminn tók
saman lögin sem eiga
stórafmæli á árinu.
Þetta eru lög sem
eiga sérstakan stað í
nostalgíuhjarta flestra
landsmanna og það er
eins og þau hafi komið
út í gær.
My heart will go on
Celine Dion
Rómantíkin, sorgin, gleðin og ástin. Allt á heima í þessum slagara frá dívunni
Celine Dion. Þarna eiga heima tærustu tónar tónlistarsögunnar. Ást Jack og Rose
er innblástur fyrir öll ástarsambönd og lagið minnir mann á fræga atriðið í bíln-
um þar sem við sjáum villingana elskast. Ef þig langar einhverntímann að gráta
út af engu þá er þetta lagið. Sólsetrið, Jack og Rose á stafni skipsins, líkamar sam-
einast í fullkomnu trausti í einu rómantís-
kasta atriði kvikmyndasögunnar. Gott
próf til að kanna hvort þú sért með
vott af siðblindu ef þú finnur ekki fyrir
neinu þegar þú hlustar á lagið.
I’ll Be Missing You
Puff Daddy og Faith Evans
Lag sem var samið til heiðurs og
minningar rapparans Christopher
„The Notorious B.I.G.“ Wallace, sem
var myrtur aðeins 24 ára að aldri.
Fullkomið lag til
að öskursyngja í
bílnum á leiðinni
heim úr
vinnunni.
As Long as You Love Me
Backstreet boys
Þeim er alveg sama hver þú ert,
hvaðan þú kemur, hvað
þú hefur gert, bara að
þú elskir þá. Ástin get-
ur stundum verið blind
og flestir þekkja það
að vera skotin/n í ein-
hverjum og hugsa
stanslaust um hinn
aðilann.
Wannabe
Spice Girls
Wannabe var fyrsta lagið
frá Kryddpíunum og sló
það rækilega í gegn.
Ekki eyða dýrmætum
tíma einstaklingsins ef
þú ætlar að heilla hann
upp úr skónum, taktu
þig saman í andlitinu
manneskja! Við viljum
öll bara „zigaziga“, ha,
og mundu að vináttan
endist að eilífu.
Unbreak My Heart
Toni Braxton
Seiðandi tónar brostins hjarta og
ástarsorgar. Ef þú ert í ástarsorg
og vilt láta einhvern kyssa burt
sorgina er þetta fullkomið lag til
að gráta yfir og minnast liðinna
stunda með fyrrverandi maka.
Barbie Girl
Aqua
Hver man ekki eftir Norrænu dans- og
poppgrúppunni Agua og stærsta smelli
þeirra, Barbí stelpa. Textinn er ádeila á
stöðu kvenna í samfélaginu og varð lag-
ið gríðarlega vinsælt.