Fréttatíminn - 21.01.2017, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 21. janúar 2017
ENN MEIRI VERÐLÆKKUN
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Tveir viðburðir á KEX
hostel og Mikkeller-
barnum í næstu viku
í tilefni af komu Stone
Brewing.
Íslendingar hafa tekið handverks-
bjórum opnum höndum síðustu ár.
Fjölmörg brugghús framleiða gæða-
bjóra hér á landi og úrval erlendra
handverksbjóra hefur aukist jafnt
og þétt síðustu ár, ekki síst með til-
komu nokkurra frábærra bjórbara í
miðbæ Reykjavíkur.
Í næstu viku eykst úrvalið enn
frekar þegar bjórar frá Stone
Brewing koma í sölu hér. Stone
Brewing er eitt stærsta handverks-
brugghús Bandaríkjanna en nýlega
var opnað útibú í Berlín sem gerir
það kleift að flytja ferskan bjór hing-
að til lands. Útibú Stone í Berlín er í
gamalli gasverksmiðju sem reist var
árið 1901 og þykir einstakt. Þetta er
risastór bar og veitingastaður þar
sem hægt er að velja úr 75 bjór-
tegundum á krana – það ku vera
stærsta bjórúrval nokkurs staðar í
Þýskalandi sem segir nokkra sögu –
og girnilegum mat þar sem áhersla
er lögð á heilnæmt hráefni frá
framleiðendum í nágrenninu. Stone
Berlín hefur notið mikilla vinsælda
síðan staðurinn var opnaður í sept-
ember á síðasta ári.
Komu Stone til Íslands verður
fagnað með tveimur viðburðum
á fimmtudaginn í næstu viku, 26.
janúar. Klukkan 17-19 verður kynn-
ing á brugghúsinu í Gym & Tonic
salnum á KEX hostel. Þar mæta þær
Kiera Senst og Katarina Westmann
frá Stone í Berlín og veita leiðsögn
í gegnum fimm framúrskarandi
bjóra. Gastrópöbb KEX hostel, Sæ-
mundur í sparifötunum, mun bjóða
upp á bjórvæna rétti. Aðeins eru 50
miðar í boði og miðaverð er 4.900
krónur. Miðasala fer fram á www.
kexland.is.
Um kvöldið, frá klukkan 20, verð-
ur svokölluð kranayfirtaka á Mikk-
eller & Friends á Hverfisgötu. Þar
verður hægt að kynna sér 15 bjóra
frá Stone Berlín. | hdm
Greg Koch, annar stofnandi Stone Brewing, hefur slegið í gegn með Stone í Berlín.
Fulltrúar Stone eru væntanlegir hingað til lands í næstu viku. Mynd | Getty
Bjórhipsterar frá Berlín
í heimsókn
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Hún segir að nær allar konur sem
hún hefur talað við notist við ein-
hvers konar úrræði til að slá á
hræðslu þegar þær eru einar á ferð
á djamminu.
„Viðmælendur mínir veita eft-
irlitsmyndavélum enga athygli og
þar af leiðandi upplifa almennt ekki
aukna öryggiskennd frá þeim. Í
staðinn tala þær mikið um aðra að-
ferðir sem þær beita, þessi stöðugi
reikningur sem fer fram í hausnum;
ekki labba þessa götu, ekki vera full,
ekki tala við ókunnuga, ekki mynda
augnsamband og hringja í vini eða
kærasta sem vita alltaf hvar þú ert
og labba með lykla í höndunum.
Þær búa sér til falska eða ekki falska
öryggiskennd,“ segir Björk.
Hún treystir sér ekki til að meta
hvort þessi úrræði auki öryggi
kvenna en segir að þetta snúist fyrst
og fremst um valdeflingu. „Þýðir
öryggiskennd að þú sért þá örugg?
Nei, í raun og veru ekki. Það gerir
það hins vegar að verkum að þér
líður betur og það er það sem konur
eru að gera. Þær geta ekki ábyrgst
100 prósent öryggi þegar þær ganga
um miðbæinn, eins og þú getur ekki
ábyrgst að þú lendir ekki í bílslysi
þegar þú ert að keyra. Í staðinn fyrir
að hætta bara að ganga um miðbæ-
inn þegar það er myrkur og lokað
þig af því það gæti eitthvað gerst,
þá taka konur valdið aftur til sín og
búa sér til aðferðir sem láta þeim
líða betur,“ segir Björk.
Björk
Hólm
stefnir á
að klára
rann-
sóknina
á næstu
mánuð-
um.
Öryggiskennd í miðbænum
er valdeflandi
Umræða um öryggi kvenna í miðbæ Reykjavíkur hefur aukist mikið í
kjölfar voveiflegs hvarfs Birnu Brjánsdóttur. Björk Hólm Þorsteinsdóttir
hefur undanfarin ár unnið að meistararitgerð í þjóðfræði um öryggis-
tilfinningu kvenna í miðborginni.