Fréttatíminn - 21.01.2017, Side 37

Fréttatíminn - 21.01.2017, Side 37
Skíðaferð í Skagafjörð Fjölbreyttir gististaðir, glæsilegar sundlaugar og sívinsælt Kaupfélagið. Unnið í samstarfi við Skíðasvæðið Tindastóli Skíðasvæðið Tindastóli í Skagafirði opnaði 3. des-ember og síðan hefur fær-ið verið afbragð, að sögn Viggós Jónssonar staðarhaldara. Svæðið er opið og stórt og hefur yfir að ráða 1100 metra langri lyftu og töfrateppi fyrir börn og byrjend- ur. „Þetta er afar fjölskylduvænt svæði. Það er flati til að byrja með og betri bratti fyrir ofan, nóg til þess að landsliðið hefur verið hér á æfingum og árið 2005 var hér landsmót,“ segir Viggó og bætir við að notkun á töfrateppinu hafi komið sér á óvart. „Það er meira notað en ég átti von á, það er mjög skemmtilegt.“ Opið er alla daga frá klukkan 14-19 og um helgar frá klukkan 11-16. Fólk úr öllum áttum Um þrjá klukkutíma tekur að aka á svæðið frá Reykjavík en um klukku- tíma frá Akureyri. Gestir koma hvaðanæva að til þess að renna sér niður hlíðar Tindastóls .„Þetta er nú eiginlega fólk alveg frá New York til Spánar,“ segir Viggó og hlær. „Ég segi nú svona því að það var fólk hérna hjá okkur frá New York um síðustu helgi. Það kem- ur hér fólk úr öllum Skagafirði og landinu öllu.“ Hægt er að gæða sér á nesti í skíðaskálanum sem áður var flug- stöð þeirra Skagfirðinga en til stendur að bæta aðstöðuna enn meira á næstu árum. „Við erum með kaffisölu og hægt að fá kakó og soðbrauð með hangikjöti og fleira gott.“ Svæðið er 10 kílómetra norð- an við Sauðárkrók. Á Sauðárkróki og í Skagafirði öllum er nægt úrval glæsilegra og notalegra gististaða. „Eitt af elstu húsum Sauðárkróks er Hótel Tindastóll sem er ævintýri út af fyrir sig að gista í. Það er allt hið glæsilegasta,“ segir Viggó. Kaupfélagið laðar að Ýmislegt áhugavert er að gera sér til dundurs í Skagafirði, til að mynda eru þar afar forvitnileg söfn og glæsilegar sundlaugar. Hægt er að borða fyrirtaks máltíð víða um sveitirnar svo engum ætti að leiðast né verða svangur. En eitt af undrum Skagafjarðar er án efa Kaupfélag Skagfirðinga sem er síðasta „alvöru“ kaupfélagið sem eftir er hér á landi – þar fæst allt. „Ég hafði nú ekki áttað mig á að- dráttarafli Kaupfélagsins fyrr en ég heyrði á tali nokkurra kvenna sem voru að tala um að þær þyrftu bráðnauðsynlega að komast þang- að áður en þær færu heim,“ segir Viggó. Fjölskylduvænt skíðasvæðið laðar fólk að úr öllum áttum. Töfrateppið hefur verið mikið notað frá því það var tekið í notkun. Í SKÍÐAFERÐINA Oakley bretta- og skíðagleraugu. Oakley bretta- og skíðahjálmar, margir litir, frá kr. 25.900. 5 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 VETRARFJÖR

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.