Fréttatíminn - 21.01.2017, Page 40
– Notaðu afturbremsurnar til þess
að hjólið rási síður í hálkunni.
– Reyndu að vera á troðnum slóð-
um, nema þú ætlir vísvitandi í tor-
færur.
– Ökumenn bíla eru ekki eins með-
vitaðir um hjólreiðamenn á veturna
auk þess sem myrkrið getur verið
mikið. Vertu með ljósin í lagi og
notaðu endurskinsmerki.
– Fáðu þér breið og gróf vetrar-
dekk eða láttu negla dekkin á hjól-
inu. Grundvallaratriði.
– Klæddu þig eftir veðri og vindum,
það er mjög auðvelt að klæða sig
of mikið, það er mjög þvingandi að
vera að kófsvitna á hjólinu og geta
enga björg sér veitt.
– Þú mátt taka hjólið þitt með
í strætó. Þannig geturðu stytt
Renndu þér
í borginni
Víða á höfuðborgarsvæðinu má
finna brekkur þar sem hægt er
að renna sér á sleða og snjó-
þotu. Sums staðar er um að ræða
skipulögð svæði sem ætluð eru
fyrir skíðaiðkun en annars staðar
eru einfaldlega hentugar brekk-
ur sem hafa orðið að vinsælum
sleðabrekkum. Að fara út á sleða
eða snjóþotu er nefnilega frábær
afþreying fyrir alla fjölskylduna
þegar vel viðrar. Það eru ekki bara
börnin sem hafa gaman af því að
renna sér, fullorðna fólkið skemmt-
ir sér ekkert síður.
Í Ártúnsbrekku við Rafstöðv-
arveg, í Breiðholti við Jafnarsel
og í Grafarvogi við Dalhús eru
skipulögð skíðasvæði með lyftum,
en þar er líka hægt að renna sér
á sleða. Skemmtileg brekka fyrir
yngri kynslóðina er á Klambratúni,
sem og á skólalóð Austurbæjar-
skóla. Þá má líka renna sér niður
Arnarhól, en þar er mikilvægt að
gæta að umferð bíla og fótgang-
andi.
Norðan við Grandaskóla er
ágætlega brött brekka, hún er
stutt en breið, og því geta margir
rennt sér í einu, sem getur verið
skemmtilegt. Þetta er alls ekki
tæmandi listi og það er um að gera
að fara í leiðangur með sleðann og
finna skemmtilegar brekkur.
Hjólað í hálku og snjó
Hjólreiðar eru núorðið stundaðar allan ársins
hring. Það er eitt og annað sem þarf að hafa í
huga þegar hjólað er um vetur.
leiðina eða farið heim með hjólið
ef þú nennir ekki að labba heim.
Bílstjórar geta þó áskilið sér rétt til
þess að taka ekki við hjólum ef það
er yfirfullt í strætó.
– Ekki vera með hettuna á hausn-
um, það byrgir þér sýn. Best er
að vera með þunna húfu eða buff
undir hjálminum, hægt er að fá góð
ullarbuff fyrir köldustu dagana.
– Ef þú ætlar að hafa útvarp eða
tónlist í eyrunum, gættu þess að
vera ekki með í báðum eyrum, þú
verður að heyra og vera vel með-
vituð/aður um umhverfi þitt.
– Skolaðu af hjólinu ef þú get-
ur þegar þú kemur heim, saltið af
götunum fer ekki vel með hjólið.
– Passaðu upp á keðjuna, strjúktu
af henni og þú gætir þurft að
smyrja hana oftar en yfir sumarið.
– Þér gæti þótt gott að hylja nef og
munn með buffi eða klút úr bómull
eða öðru efni sem andar vel.
Ekki detta
Nú eru umhleypingar eins og alla-
jafna gerist nokkrum sinnum yfir
veturinn – það fyrstir og snjóar og
í kjölfarið koma hlýindi sem breyta
snjónum í glerhált svell á auga-
bragði. Þegar þessi staða er uppi
fjölgar komum á slysadeild alla-
jafna töluvert vegna hálkuslysa –
og þau fara ekki í manngreinarálit.
En það er ýmislegt hægt að gera
til þess að minnka líkurnar á því að
enda flatur á jörðinni, jafnvel með
brotin bein.
Fyrst og fremst þarf að huga að
skónum. Mörg slys verða vegna
þess að fólk er einfaldlega ekki
nægilega vel útbúið fyrir svell-
bunkana. Mannbroddar bjarga
beinum ætti að vera helsta slag-
orðið í þessu tíðarfari og hafa
ber í huga að broddarnir eru ekki
bara fyrir eldri borgara. Ef ekki er
stemning fyrir mannbroddum þarf
að passa að vera í skóm með gróf-
um sólum og í öllum bænum hafið
spariskóna með ykkur í poka.
Best er að taka lítil skref. Áætl-
aðu rúman tíma til þess að komast
á milli staða fótgangandi. Það kann
ekki góðri lukku að stýra að flýta
sér í hálku. Ekki halla þér fram,
betra er að vera alveg bein/n í baki
og jafnvel aðeins fött/fattur – best
er að líkja eftir göngulagi mör-
gæsa, þannig helst jafnvægið best.
Ekki vera með hendur í vösum.
Notaðu handrið þegar þú geng-
ur upp og niður stiga, verstu
hálkuslysin verða í hálum tröppum.
Hugaðu líka að þínu nærumhverfi,
berðu sand eða salt á eigin tröppur
og stétt til þess að fólk geti öruggt
gengið um, ekki síst póstburðar-
fólk.
Þau allra forsjálustu ganga um
með lítinn bauk með salti eða
sandi til þess að grípa í ef svell-
hindranirnar verða óyfirstígan-
legar.
utilif. isKRINGLUNNI SMÁRALIND
fjallaskíðafjör
30%
afsláttur
af fjallaskíðum
20% AFSLÁTTUR AF ÖÐRUM
SKÍÐA- OG BRETTABÚNAÐI.
FJALLASKÍÐASKÓM, -SKINNUM, -STÖFUM
OG -BINDINGUM OG SNJÓFLÓÐABÚNAÐI.
Skíða- og útivistar-
deildin er í smáralind
fyrsta flokks þjónusta • fullkomið skíðaverkstæði
GÆÐAVÖRUMERKI:
ROSSIGNOL, ARMADA, LINE, K2, BLIZZARD,
MARKER, ORTOVOX, LEKI, LOOK, TECNICA.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
8 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017VETRARFJÖR