Fréttablaðið - 11.02.2017, Side 4
KOMDU OG PRUFAÐU
Margar góðar reynsluakstursleiðir
í nágrenni Mosfellsbæjar.
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 11-15
Opið í dag laugardag 11 - 15
Tökum vel á móti þér!
Rjúkandi Lavazza kaffi á könnunni.
Hrefna Haraldsdóttir
þroskaþjálfi
sagði aðstöðuna
og umhverfið
á Kópavogs
hæli hafa verið
óboðlegt,
einkum fyrir
börn. Hrefna hóf
þar störf 1959, þá
17 ára gömul. Viðhorfið hafi verið
að fatlað fólk væri annars flokks
borgarar og að ekki væri gott ef
börnin sem dvöldu þar ættu í of
miklum samskiptum við for
eldra sína. Einangrunin hafi verið
gríðarleg. Skýrsla um hælið var
kynnt í vikunni.
Eyþór Björnsson
forstjóri Fiskistofu
sagði flutning
stofnunarinnar
frá Hafnarfirði
til Akureyrar
myndu taka
allt að 20 ár.
Flutningurinn hófst
í ársbyrjun 2016. Ferðakostnaður
Fiskistofu jókst um 10 milljónir
á einu ári eftir flutninginn. Það
skýrist meðal annars af skorti á
fjarfundabúnaði.
.
Hanna Katrín Friðriksson
þingflokksformaður
Viðreisnar
sagði ótækt að
dómsmála
ráðherra héldi
því fram að
kynbundinn
launamunur væri
ekki til og að ástæða
launamunar væri sú að konur
verðu meiri tíma með börnum
sínum. Sigríður Á. Andersen dóms
málaráðherra sagði í grein í riti
Orators að þótt kannanir mældu
5 prósenta launamun væri hann
of lítill til að hægt væri að fullyrða
um kynbundið misrétti.
Þrjú í fréttum
Einangrun,
kostnaður og
launamunur
Tölur vikunnar 05.02.2017 Til 11.02.2017
umhverfismál „Það hafa margir
verið að furða sig á þessu,“ segir Aðal
steinn Sigurbergsson, fagmálastjóri
Skógræktarinnar, um fyrirhugaða
eyðingu greniskógar á Þingvöllum.
Fréttablaðið sagði frá því á mánu
dag að fella ætti grenitré sem standa
umhverfis sumarbústað næst Val
hallarreitnum á Þingvöllum. Ríkið
hefur keypt bústaðinn og hyggst
fjarlægja hann ásamt trjánum sem
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðs
vörður segir Þingvallanefnd telja
hafa „slæm sjónræn áhrif“. Opna eigi
lóðina fyrir almenningi.
„Það er í sjálfu sér ekkert skrítið að
ríkið vilji kaupa upp sumarbústaðina
og fjarlægja húsin en það er illskiljan
legt af hverju þarf endilega að höggva
niður öll trén sem fólkið hefur gróð
ursett. Mér vitanlega eru þau ekki að
valda neinu umhverfistjóni eða sálar
tjóni,“ segir Aðalsteinn. „Það er prýði
að þessum trjám, ekki síst vegna þess
að þau er sígræn.“
Aðalsteinn gefur lítið fyrir þá skoð
un að barrtré eigi ekki heima í þjóð
garðinum og séu þar eins og út úr kú.
„Þetta er bara ein af þessum sögu
minjum um hvað þjóðin er búin
að vera að gera í ellefu hundruð ár
á Þingvöllum. Um og upp úr alda
mótunum þá var gróðursettur furu
lundurinn á Þingvöllum sem enn
þá stendur. Eftir seinna stríð voru
gróðursettir skógar meðal annars
við Valhöll, við Hrafnagjárhallinn
og víðar.“
Aðalsteinn minnir á að þegar
gömul og stór grenitré næst Hótel
Valhöll voru höggvin árið 2007 hafi
verið sagt að það væri krafa heims
minjaskrár menningarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) að
allur erlendur gróður yrði fjarlægður
af Þingvöllum.
„En þegar var farið að grennslast
fyrir um málið kom í ljós að krafan
kom ekkert frá UNESCO. Hún var
bara sett inn í lýsingu Þingvallaþjóð
garðsnefndar á því sem hún ætlaði
sér að gera ef Þingvellir kæmust inn
á skrána. Síðan var látið í veðri vaka
að krafan hefði komið að utan en
ekki héðan innanlands. En þetta er
algeng skoðun hjá þeim sem gefa sig
út fyrir að unna íslenskri náttúru og
meina þá umhverfi án allra útlendra
plantna og trjáa,“ segir Aðalsteinn.
Að sögn Aðalsteins er umræddur
lundur griðastaður fyrir plöntur og
dýr.
„Skógurinn þarna, þó að hann sé
greniskógur, er híbýli margra skógar
fuglategunda og það eru ábyggilega
margar tegundir platna og smádýra
sem hafa gott af því að hafa skóginn
í staðinn fyrir að hafa berangurinn á
klöppinni sem var þarna fyrir,“ segir
Aðalsteinn. Eitt af því sem helst vanti
á Íslandi sé skjól.
„Það mun nú ekki bæta skjól
skilyrðin þarna beinlínis að höggva
niður öll trén sem skýla þinghelg
inni.“ gar@frettabladid.is
Biður Þingvallagreninu vægðar
Fagmálastjóri Skógræktarinnar segir það illskiljanlegt að Þingvallanefnd ætli að höggva niður greniskóg
við Valhallarreitinn. Prýði sé að sígrænum trjánum sem skýli fyrir vindi og séu athvarf fyrir dýr og plöntur.
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir að til að bæta til muna ásýnd þjóðgarðsins eigi að uppræta grenilund milli
Valhallarlóðarinnar og minningarreitsins um Bjarna heitinn Benediktsson forsætisráðherrra. FréttaBlaðið/GVa
Skógarhögg ekki að undirlagi Heimsminjaskrár
Í umræðu um eyðingu barrtrjáa í
þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur
sú saga verið á kreiki að það sé
krafa menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNESCO)
að trén víki vegna stöðu Þingvalla
á heimsminjaskrá. Til dæmis var
haft eftir Sigurði K. Oddssyni, þá-
verandi þjóðgarðsverði, í Frétta-
blaðinu 13. júlí 2007, að þegar sótt
hefði verið um að Þingvellir færu á
heimsminjaskrá hefðu Sameinuðu
þjóðirnar tilgreint að barrtrén
skyldu fjarlægð.
Þetta er rangt eins og lesa má
í bloggfærslu Björns Bjarnasonar,
þáverandi formanns Þingvalla-
nefndar, frá því 21. júlí 2007:
„Í UNESCO-skráningarvinn-
unni kom fram, að hinir erlendu
sérfræðingar, sem sendir voru
á vettvang til að meta Þingvelli
í samanburði við hundruð eða
þúsundir annarra staða, voru sam-
mála mati Þingvallanefndar og
sérfræðinga hennar um fækkun
barrtrjáa í þinghelginni. UNESCO
setti Þingvallanefnd ekki neina
úrslitakosti í þessu efni, en taldi
nefndina á réttri braut, þegar lögð
væri áhersla á grisjun barrtrjáa.
Hjörleifur Guttormsson, sem sat
í Þingvallanefnd á níunda áratug
síðustu aldar, hefur skýrt frá því,
að á þeim tíma, eða árið 1988, hafi
nefndin fyrst sent frá sér stefnu,
sem miðaði að því að grisja barr-
trén.“
223
erlendir ferðamenn slösuðust í
umferðinni á Íslandi árið 2016.
171
ár spanna veður-
mælingar í Stykkis-
hólmi – aldrei hefur
verið hlýrra en í fyrra.
900
fasteignir hér á
landi eru skráðar
í íbúðaskipti.
60%
lækkun er á bréfum
Icelandair frá því
í apríl 2016.
500
verslanir í 17 löndum bjóða
íslenska súkkulaðið Omnom.
84.000
fermetrar af húsnæði verða
byggðir í nýju hverfi – 201 Smári.
20
ár er það talið taka að flytja
starfsemi Fiskistofu frá
Hafnarfirði til Akureyrar.
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-2
0
E
8
1
C
3
7
-1
F
A
C
1
C
3
7
-1
E
7
0
1
C
3
7
-1
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K