Fréttablaðið - 11.02.2017, Page 10

Fréttablaðið - 11.02.2017, Page 10
Vinnuskóli Bláskógabyggðar 2013 Flokkstjóra vantar í sumarvinnu unglinga og umhirðu opinna svæða. Lágmarksaldur er 18. ár. Starfstími er frá 3. júní til 31. júlí. Starfssvæðið er annarsvegar á Laugarvatni og í Reykholti. Umsækjendur þurfa að hafa bíl til umráða. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí n.k. og skulu umsóknir berast á skrifstofu Bláskógabyggðar eða á netfangið kristinn@blaskogabyggd.is, merktar Vinnuskóli Bláskógabyggðar. Upplýsingar gefur Kristinn í síma 860-4440. Þjónustu- og framkvæmdasvið Bláskógabyggðar Bláskógabyggð Álagning fasteignagjalda 2017. Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2017. Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagningu vegna ársins 2017. Álagningaseðlar 2017 verða ekki sendir út, en hægt er að nálgast þá á www.island.is undir „Mínar síður“ og þar í pósthólfi. Innskráning á síðuna er með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Forsendur álagningarinnar er einnig ð finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar: http://www.blaskogabyggd.is/stjornsysla/reglugerdir-og-gjaldskrar/ Greiðsluseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað, en kröfur vegna fasteignagjalda koma inná heimabanka viðkomandi gjaldenda. Þeim, sem óska eftir að fá heimsendan greiðsluseðil, er bent á að hafa samband við skrifstofu Bláskógabyggðar í síma 480-3000 ( mánudaga – fimmtudaga frá kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.00, en föstudaga frá 9.00 – 12.00), eða á netfangið gudny@blaskogabyggd.is Allar nánari upplýsingar um álagningu gjalda 2017 eru veittar á skrif- stofu Bláskógabyggðar. Bláskógabyggð. Samfélag „Á viðbótarfermetrinn að vera í stofunni eða svefnher- berginu, á eldhúsið að vera opið eða á að vera til sameiginlegt rými til afnota fyrir íbúa? Með þessari nálgun mun almenningur geta haft bein áhrif á það hvernig hverfið, húsin og íbúðirnar mótast,“ segir Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, sem sér um framkvæmd verk- efnis ásamt Regin fasteignafélagi og Smárabyggð ehf. Ný 620 íbúða byggð mun rísa í Smáranum, sunnan Smáralindar í Kópavogi, og gefst almenningi tækifæri á að hafa áhrif á hönnun og útfærslu hverfisins og íbúðanna með beinum hætti. „Við viljum fá fólk til að móta verkefnið með okkur og segja hvað því finnst skipta mestu máli við útfærslu á nútíma- íbúðum og hverfi sem býður upp á nánast alla þjónustu sem völ er á,“ segir hann. Íbúðirnar verða frá um 50 fer- metrum að stærð og verður efnt til nafnaleiks í samstarfi við Kópa- vogsbæ um götunöfn og nafn á aðaltorgið í hverfinu. Kynning á uppbyggingu hverfisins verður í Smáralind og hófst í gær. Á sama tíma verður tekin í notkun gagn- virk síða, 201.is, þar sem fólki gefst kostur á að svara könnun sem hug- myndin er að nýta fyrir hönnun og uppbyggingu á byggingareitnum 201 Smári. Halldór Eyjólfsson, þróunarstjóri Klasa, segir verkefnið spennandi og mjög áhugavert að fá fram áherslur íbúa. „Á skömmum tíma hafa orðið mjög miklar breytingar á því hvern- ig við lifum og húsnæðisþarfir fólks eru ekki þær sömu og þær voru fyrir nokkrum áratugum. Okkar daglega líf hefur breyst en íbúðirnar hafa ekki fylgt þróuninni nema að litlu leyti miðað við hinar hröðu tækni- breytingar og lausnir sem hafa orðið til. Nútímaheimilið er svo miklu meira en bara þak yfir höfuðið. Það þarf að uppfylla kröfur um öryggi og tæknilausnir. Mikil áhersla verður lögð á að nýta hvern fermetra til hins ýtrasta og með ýmsum snjöll- um tæknilausnum má hámarka þá nýtinguna en um leið tryggja að öll nútímaþægindi séu til staðar,“ segir Halldór. benediktboas@365.is Hönnun hverfisins í höndum almennings Ný 620 íbúða byggð mun rísa í Smáranum, sunnan Smáralindar í Kópavogi. Almenningi gefst tækifæri á að hafa áhrif á hönnun og útfærslu hverfisins og íbúðanna með beinum hætti. Meðal annars fyrir tilstuðlan gagnvirks vefsvæðis. Í samstarfi við Klasa hefur Reginn Fasteignafélag, eigandi Smáralindar, unnið mikla vinnu við uppbyggingu og þróun í og kringum verslunarmiðstöðina. Mynd/KlaSi Við viljum fá fólk til að móta verkefnið með okkur og segja hvað því finnst skipta mestu máli. Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa 1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 1 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 0 F B 1 1 2 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 7 -4 3 7 8 1 C 3 7 -4 2 3 C 1 C 3 7 -4 1 0 0 1 C 3 7 -3 F C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 1 2 s _ 1 0 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.