Fréttablaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 20
Samtökin hefja átakið Fokk ofbeldi og selja meðal annars húfu til styrktar verkefninu Öruggar borgir. Húfurnar má meðal annars kaupa í verslun Vodafone í Kringlunni. Fréttablaðið/GVa
„Ofbeldi gegn konum og stúlkum
í almenningsrýmum er hnatt-
rænt vandamál,“ segir Inga Dóra
Pétursdóttir, framkvæmdastýra
UN Women á Íslandi, sem fer fyrir
vitundarvakningu um eitt útbreidd-
asta mannréttindabrot í heiminum í
dag; ofbeldi gegn konum og stúlkum.
Nú hafa samtökin sett af stað sölu
á Fokk ofbeldi-húfu UN Women. Öll
innkoma af sölu húfunnar rennur
til verkefnis UN Women, Öruggar
borgir (Safe Cities Global Initiative).
„Þetta átak er svolítið skemmtilegt
að því leytinu til að það er verið að
leggja áherslu á það að vandamálin
eru ekki bara í ákveðnum borgum
í ákveðnum löndum. Heldur úti
um allan heim en birtingarmyndir
ofbeldisins eru ólíkar,“ segir Inga
Dóra sem hefur ferðast til nokkurra
borga sem hafa skuldbundið sig til
að taka þátt í því að tryggja öryggi
kvenna í borgum.
„Ég kom til Mexíkóborgar þar sem
atvinnuþátttaka kvenna er um 50
prósent. Þar ferðast 70 prósent fólks
með almenningssamgöngum og þar
er mjög mikil kynferðisleg áreitni
og ofbeldi. Þar í borg var ákveðið að
gera almenningssamgöngur örugg-
ari.
Hér í Reykjavík upplifa 70 pró-
sent kvenna sig óörugg í miðborg-
inni. Þetta eru allt ólíkar birtingar-
myndir, en hafa sömu áhrif og draga
úr athafnafrelsi kvenna. Ofbeldi
gegn konum og ótti við ofbeldi
getur hindrað konur í að sækja um
vinnu, haft áhrif á það hvernig þær
eyða frítíma sínum og margt fleira.
Þær hafa minna val og þessu viljum
við breyta,“ segir Inga Dóra og segir
mikilvægt að Reykjavíkurborg hafi
skuldbundið sig til verkefnisins árið
2014.
„Það mikilvægasta er þó að það
verði almenn hugarfarsbreyting,“
bendir Inga Dóra á. „Ofbeldi er
víða hluti af lífi kvenna og það þarf
vakningu um kynbundið ofbeldi.
það þarf að viðurkenna vandann og
koma fólki í skilning um alvarlegar
afleiðingar þess,“ segir Inga Dóra
en rannsóknir á vegum Sameinuðu
þjóðanna sýna að konur sem búa á
þéttbýlissvæðum eru tvöfalt líklegri
til að verða fyrir ofbeldi, sérstaklega
í fátækustu löndum heims.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Ofbeldi og ótti
hamlar konum
Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women, vill vakn-
ingu um alvarlegar afleiðingar kynbundins ofbeldis gegn konum.
Ein af hverjum fimm
hefur mátt þola kyn-
ferðislegt ofbeldi.
Ein af hverjum þremur
konum í heiminum hefur
mátt þola ofbeldi. 70%
íslenskra kvenna upplifa sig
óöruggar í miðborg Reykjavíkur
að næturlagi.
kvenna í Nýju-Delí á
Indlandi finnst þær ekki
öruggar á götum úti.
95%
M E N N T U N Á V I N N U M A R K A Ð I
Fullorðins-
fræðsla
Gæðaúttektir
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins óskar eftir samstarfi
við matsaðila til að sinna gæðaúttektum í fullorðins-
fræðslu. Meginhlutverk matsaðila er að meta hvort
upplýsingar fræðsluaðila uppfylli skilyrði og vinna í
samstarfi við FA að þróun gæðakerfisins.
Frekari upplýsingar um verkefnið og kröfur
um hæfni matsaðila er að finna á vefslóðinni frae.is.
Áhugasamir sendi verðtilboð til Fræðslumiðstöðvar atvinnulíf-
sins frae@frae.is ásamt upplýsingum um hæfni og reynslu
af úttektum, fyrir 1. mars 2017. Hau
ku
r 0
2.
17
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r20 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
helgin
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-2
A
C
8
1
C
3
7
-2
9
8
C
1
C
3
7
-2
8
5
0
1
C
3
7
-2
7
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K