Fréttablaðið - 11.02.2017, Page 24
Margrét Elísa bet Yuka Takefusa er þrjátíu og þriggja ára gömul. Hún býr á Selfossi í snot
urri íbúð með meðleigjanda sínum
og tveimur kisum. Hún og með
leigjandi hennar fá aðstoð tvisvar í
viku við þrif og önnur heimilisstörf.
Margrét Elísabet er alltaf kölluð
Beta. Hún vinnur við þrif á hóteli
í bænum og hana dreymir um að
starfa sem leiðbeinandi á leikskóla
einn daginn.
Beta bjó í sex ár á Sólheimum í
Grímsnesi, frá árinu 2009 til ársins
2015, og er umhugað um að segja frá
reynslu sinni af búsetu þar. Hún hafi
um langa hríð búið þar tilneydd og
við skert frelsi. „Ég brotnaði niður á
næstum hverjum einasta degi,“ segir
Beta sem greindi frá reynslu sinni í
viðtölum við starfsmann hjá Átaki,
félagi fólks með þroskahömlun, í
desember síðastliðnum. Beta vill
stíga fram undir nafni og skýra þær
aðstæður sem hún bjó við á Sól
heimum til að vekja athygli á rétt
indum og hagsmunabaráttu fólks
með fötlun.
Félagið Átak var stofnað af fólki
með þroskahömlun árið 1993.
Hlutverk þess er að gæta hagsmuna
félagsmanna sinna, tryggja lífsgæði
og réttindi fólks með þroskahömlun
og að vinna gegn fordómum. Lögð
er áhersla á að fólk með þroska
hömlun tali sjálft fyrir hagsmunum
og réttindum sínum. Félagið hefur
að undanförnu skoðað reynslu fólks
á Sólheimum með tilliti til lífsgæða
þess og réttinda.
Beta greinir frá því að hún hafi
flutt á Sólheima í kjölfar krepp
unnar. Það hafi ekki verið neitt
annað í boði fyrir hana. Áður bjó
hún í miðbænum með móður sinni
og vildi ekki flytja á Sólheima. Aðal
lega vegna þess hvað Sólheimar eru
einangraður staður. Langt í burtu frá
öllu sem hún þekkti. „Þau ár sem ég
bjó á Sólheimum fannst mér eins og
ég væri bara í búri. Ég gat ekki farið
neitt, ég gat ekki gert neitt og eins
með frelsið. Ég hafði ekkert frelsi,“
segir hún.
Betu fannst yndislega fallegt á
Sólheimum og hún naut náttúru
fegurðarinnar. Það er framkoma
starfsfólks og skipulag sem hún
gagnrýnir. Spurð um það hvernig
henni hafi fundist að búa á Sól
heimum og hvernig henni hafi liðið
þar segir hún: „Starfsskipulagið
er frekar lélegt að mínu mati. Mér
finnst ekki vera tekið mikið tillit
til íbúa. Það er mjög lítið hlustað á
þá, ekki tekið mark á þeim. Það er
mikið af starfsfólki sem segir manni:
„Þú átt að gera hitt og ekki þetta.“
Þú færð ekki frelsi, þú ræður engu,“
segir Beta og segir þó það eina sem
hún gat einhverju ráðið um hafa
verið heimsóknir til vina sem búa
á svæðinu. „En ef þú vilt fara út af
svæðinu þarftu að láta vita sem ég
skil en samt finnst mér það rosalega
leiðinlegt. Að karlmaður eða kven
maður á fimmtugsaldri þurfi að láta
vita hvert þau eru að fara. Ég brotn
aði niður næstum því á hverjum ein
asta degi af því ég gat ekki höndlað
þetta, ég bað til guðs svo mikið um
að komast þaðan. Svo loksins fékk
ég þetta pláss sem ég er í núna,“ segir
Beta um íbúðina sem hún býr í.
Vildi ekki vera á Sólheimum
Hún sótti um íbúðina á Selfossi en
þurfti að bíða lengi eftir að komast
að. Hún þurfti aðstoð réttindagæslu
manns við að sækja um búsetu
úrræðið til að komast burt af Sól
heimum. „Ég sótti bara um en þurfti
að bíða. Starfsfólkið á Sólheimum
var ekki mikið fyrir það að hjálpa.
Allt sem er fyrir utan Sólheima vill
það ekki hjálpa með. Þannig að ég
þurfti að fá aðstoð frá réttindagæsl
unni. Ég þurfti að leita mér aðstoðar
annars staðar frá til að komast af Sól
heimum.“
Beta segist oft hafa tjáð starfsfólki
Sólheima að hún vildi ekki búa þar.
Svörin hafi verið á þá leið að hún
væri þarna og það væri ekkert hægt
að gera í því. „Ég gat ekkert gert. En
samt fannst mér að ég hefði átt að fá
meiri samúð og hjálp við að finna
eitthvað annað.“
Beta bjó ein í íbúð. Það kom
starfsfólk til hennar sem hjálpaði
henni að taka til og þrífa. „Að mínu
mati kom starfsfólkið inn á heimilið
mitt og byrjaði að stjórna mér. Mér
finnst allt í lagi að láta minna mig á.
En mér fannst fólkið vera með nefið
ofan í öllu, eins og einkalífinu.“
Þurfti að taka þátt
Beta segist hafa orðið vitni að því að
starfsfólk Sólheima hafi beðið íbúa
um að tala jákvætt um Sólheima.
Hún segir það hafa beðið íbúa kurt
eislega um þetta. „Mér finnst það
ekki sanngjarnt. Þú átt að segja hvað
þér finnst, segja þinn hug. Mér finnst
það ákveðin spilling að gera þetta,“
segir Beta.
Hún segist vita um íbúa sem vilji
ekki búa á Sólheimum. Aðrir hafi
alist upp þarna og þekki ekki annað.
Hún var ekki sátt við dagsskipulagið
og einhæf störf í boði. „Ég þurfti að
mæta í hring og syngja morgunsöng,
sem ég fattaði ekki og meikar engan
sens. Hringurinn var gerður til að
koma skilaboðum til okkar. Hvað
væri næst á döfinni og svoleiðis en
ég skildi ekki af hverju fólk þurfti
að mæta saman í hring og syngja
saman. En málið er að þetta hefur
verið hefð. Ég var ekki að fíla þetta,“
segir Beta.
Einhæf vinna á lágum launum
„Á hverjum einasta degi var ég
umkringd fólki sem hafði líkamlega
og andlega fötlun. Þetta er yndislegt
fólk, ekki misskilja mig. En mér leið
eins og ég væri innilokuð því það var
enginn á svipuðu róli og ég. Ég skil
ekki af hverju í ósköpunum ég var
send þangað.
Vinnan á Sólheimum var mis
munandi. Kertagerð, smíðastofa,
listastofa, saumastofa og svo mis
munandi hvað þú gerir eftir dögum.
Ef ég var skráð á lista fyrir sauma
stofu fór ég þangað og þar beið mín
alltaf það sama. Ég gat ekki mót
mælt því. Það sem mig langaði að
gera var að vinna með fötluðu fólki.
En ég sé mig ekki í þeim flokki, að
vera á verndaðri vinnustofu. Ég hef
meiri áhuga á því að verða fóstra og
hjálpa. Svo fá allir laun fyrir vinnuna
en þau eru mjög lág því allir eru líka
á bótum.“
Ósátt við bensínkostnað
Þegar Beta var í fríi notaði hún
tímann til að heimsækja vin sinn
sem bjó líka á Sólheimum. Hann
flutti þangað árið 2014 og þá kynnt
ist hún fyrst einhverjum sem var á
svipuðu róli og hún sjálf. Þau náðu
vel saman, gátu treyst hvort öðru og
talað saman. Annars gat hún ekki
farið af Sólheimum því hún var ekki
með afnot af bíl.
„Ef við ætluðum að nota Sól
heimabílinn þurfti það að vera
hópur. Þú máttir ekki fá bílinn fyrir
bara eina manneskju. Ef þú vilt fara í
bíó eða eitthvað þarftu að fara í hóp
og þú þarft að borga bensín. En þó
svo að þú sért ekki að nota bílinn
er samt tekinn af þér peningur ef
bíllinn er keyrður. Þá þurfa allir að
borga bensín sem ég var mjög ósátt
við,“ segir Beta um fyrirkomulagið.
Eins og við séum börn
Henni fundust samskipti við starfs
fólk oft óþægileg. „Starfsfólkið talaði
við mig eins og ég væri lítið barn,
sem mér fannst mjög óþægilegt og
mikil óvirðing því ég er fullorðin
manneskja. En samt var talað við
mig eins og lítið „baby“. Það sem
pirraði mig mjög mikið var að ég hef
orðið vitni að því að starfsfólk talaði
við mann í hjólastól sem er 50 ára
eins og hann væri 6 ára. Ég veit að
þó svo að hann sé með fötlun og geti
ekki talað á hann samt þá virðingu
skilið að talað sé við hann eins og
fullorðna manneskju.
Viðhorfin á Sólheimum eru eins
og við séum börn og ekki bara á
Sólheimum, heldur viðgengst það í
heiminum að koma fram við fatlað
fólk eins og börn og því þarf að
breyta. Það þarf að koma fram við
fullorðið fatlað fólk af virðingu.“
Ef Beta nefndi það við starfsfólkið
að hún vildi ekki láta tala við sig eins
og barn fannst henni eins og það
væri ekki hlustað á hana.
„Inn um annað eyrað og út um
hitt. En það var líka starfsfólk sem
ég átti í góðum samskiptum við. En
því miður ekki mikið af því.“
Refsað fyrir að taka ekki til
Hún segir margar reglur gilda um
ýmislegt á Sólheimum. „Það var
mikið af reglum. Til dæmis í búðinni
var þannig kerfi að þú máttir skrifa
allan mat á reikning en þú máttir alls
ekki skrifa á þig nammi. Það sem ég
tók eftir var að starfsfólkið mátti
skrifa á sig nammi en ekki við sem
bjuggum þar. Mér fannst það
Niðurbrotin á
Sólheimum
Margrét Elísabet Yuka Takefusa þurfti aðstoð réttindagæslumanns
fatlaðra við að komast frá Sólheimum í Grímsnesi. Hún segist hafa
búið við skert frelsi og vill breytta framkomu við fólk með fötlun.
Betu fannst fallegt á Sólheimum. Það er framkoma starfsfólks og skipulag sem hún gagnrýnir. FRéttaBlaðið/EyÞÓR
Viðhorfin á SólhEiMuM
Eru EinS og Við SéuM
börn og Ekki bara á
SólhEiMuM, hEldur Við-
gEngST það í hEiMinuM.
↣
Ef ég Var Skráð á liSTa
fYrir SauMaSTofu fór
ég þangað og þar bEið
Mín allTaf það SaMa. ég
gaT Ekki MóTMælT þVí.
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r24 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-5
2
4
8
1
C
3
7
-5
1
0
C
1
C
3
7
-4
F
D
0
1
C
3
7
-4
E
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K