Fréttablaðið - 11.02.2017, Side 34
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@365.is, s. 512 5367 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sis@365.is, s. 512 5372 | Sólveig Gísladóttir,
solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 |
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Þeir sem taka daginn snemma
geta litið inn á Borgarbókasafnið
í Sólheimum því klukkan 10 í dag,
laugardag, hefst morgunsögu-
stund í notalegu umhverfi. Lesin
verða ævintýri og sögur sem ættu
að höfða til krakka á öllum aldri
og á eftir verður boðið upp á heitt
súkkulaði. Krakkar eru hvattir til
að mæta á náttfötunum og foreldr-
ar líka, ef þeir þora.
„Þetta hefur verið mjög vinsælt
og alltaf gaman að sjá sem flesta,“
segir Sigrún Jóna Kristjánsdótt-
ir deildarbókavörður. „Hingað
koma börn allt niður í tveggja ára
að hlusta á sögur og upp í níu til
tíu ára. Dagsdaglega koma krakk-
ar sem eru miklir lestrarhestar
en það væri líka gaman að fá þá
krakka sem lesa ekki mikið og fá
tækifæri til að auka áhuga þeirra
á bókum. Undanfarin ár hefur það
færst í aukana að fjölskyldur komi
saman hingað og dvelji dágóða
stund, ekki endilega til að lesa
heldur fletta bókum og blöðum,
tefla og spila alls konar spil.“ Sig-
rún segir það hafa jákvæð áhrif á
lestur barna að verðlauna góðar
bækur en í vikunni hlaut Hildur
Knútsdóttir Íslensku bókmennta-
verðlaunin í flokki barna- og ungl-
ingabóka fyrir bók sína Vetrar-
hörkur. „Ég hef lesið bókina og
líkaði hún vel. Það kemur kannski
á óvart en nokkuð er um að full-
orðnir lesi ævintýrabækur á borð
við hana og bendi svo börnunum
sínum á þær.“
náttföt og bók
morgunsögustund á borgarbókasafninu í sólheimum.
Tónlistarhátíðin Sónar hefst í
næstu viku í Hörpu í Reykjavík
og stendur yfir í þrjá daga. Hátíð-
in er fyrir löngu búin að festa sig í
sessi sem einn helsti tónlistarvið-
burður landsins og í ár kemur fram
að venju fjöldi þekktra erlendra og
innlendra tónlistarmanna.
Einn þeirra sem á vafalaust eftir
að trylla lýðinn er plötusnúðurinn
Terrordisco sem kom fram síðast
á hátíðinni árið 2013 með svo eftir-
minnilegum hætti að enn er talað
um. Maðurinn á bak við nafnið
Terror disco er Sveinbjörn Pálsson
en hann hefur starfað sem plötu-
snúður undir þessu nafni í fimm-
tán ár, þar af komið fram einn í tólf
ár eftir að upprunalegur samverka-
maður hans, Köddi Hristbjörns,
hvarf í miðju setti og ekkert hefur
heyrst frá síðan. „Undir merkjum
Terrordisco hef ég gefið út slatta af
„editum“ og remixum auk þess sem
endurvinnslur á íslenskum lögum
voru sérstakt einkennismerki mitt.
Það var í raun eitthvað sem ég
gerði sem plötusnúður, tók lög sem
pössuðu ekki við þá tónlist sem ég
spila yfirleitt, og átti við hana þar
til að hún passaði.“
róandi áhriF
Í upphafi vetrar kom svo frumraun
hans út, stuttskífan Fyrst, sem
hefur fengið prýðilega dóma. Að-
draganda hennar má rekja til mik-
ils áfalls sem reið yfir fjölskyldu
hans en í kjölfar þess eyddi Svein-
björn miklum tíma einn. „Ég tók
eftir því að það hafði róandi áhrif
á mig að semja teknótónlist. Þessi
hljóðheimur var svo ólíkur því sem
ég hafði fengist við og lög plötunn-
ar eru sennilega það minnst til-
gerðarlega sem ég hef fengist við
um ævina. Tónlistin hjálpaði mér
að miklu leyti því ég hrökk upp úr
þeim hjólförum sem ég var búinn
að vera fastur í lengi. Ég ákvað þá
hvað ég vildi vera þekktur fyrir og
hvað af þessu fjölbreytta dóti sem
ég hafði samið ætti að vera „sánd-
ið“ mitt“. Sveinbjörn hefur einnig
komið að fjölmörgum samstarfs-
verkefnum gegnum árin og var
m.a. meðlimur FM Belfast fyrstu
2-3 árin. Að öðru leyti hefur hann
að mestu einbeitt sér að eigin tón-
listarsköpun undanfarin fimm ár.
besta dansgólFið
Sem fyrr segir þótti frammistaða
hans á Sónar árið 2013 mjög eftir-
minnileg og segir Sveinbjörn hana
án efa vera hápunkt ferilsins hing-
að til. „Ég varð þeirrar gæfu að-
njótandi nokkrum árum fyrr að
verða óvart poppstjarna með FM
Belfast, þó að ég spilaði ekki á
hljóðfæri og ég hósta ef ég syng
hátt. Þótt ég hafi fengið að upplifa
nokkra magnaða hluti með Belfast
var Sónar 2013 toppurinn. Ég átti
mjög þétt sett, vel æft og útpælt, en
aðalatriðið er samt að þetta kvöld
fékk ég besta dansgólf sem ég hef
fengið. Þar var æstasti og spennt-
asti múgur sem hefur mætt til mín.
Þau klæddu sig öll úr að ofan undir
rest, konur og karlar.“
Terrordisco kemur fram á
fimmtudagskvöldinu í bílakjallara
Hörpu sem breytt verður í næt-
urklúbb undir merkjum Sonar-
Lab. „Ég býð upp á aðeins breiðari
þversnið af því sem ég hef verið
að fást við en er á þessari fyrstu
plötu minni. Hún er öll frekar
djúp, þannig að ég á eflaust eftir
að blanda einhverju hressara með.
En ég verð mest með eigin efni og
einhverja lifandi endurvinnslu á
staðnum.“
Hlusta má á stuttskífuna Fyrst
og ýmis remix Terrordisco á
Sound cloud og Spotify.
róandi að semja teknótónlist
Plötusnúðurinn terrordisco kemur fram á tónlistarhátíðinni Sónar sem hefst í Hörpu í næstu viku en hann átti
eftirminnilega innkomu þar árið 2013. Fyrsta stuttskífa hans kom út í upphafi vetrar og fékk prýðilega dóma.
starri freyr
jónsson
starri@365.is
„Þar var æstasti og spenntasti múgur sem hefur mætt til mín. Þau klæddu sig öll úr að ofan undir rest, konur og karlar,“ segir
plötusnúðurinn terrordisco um frammistöðu sína á sónar 2013. mynd/art biCniCK
Vörunúmer: 00501-0162
Í Danmörk kr 13.046*
Í Svíþjóð kr 11.515*
*skv.verðskrá levi.com og gengistöflu
Íslandsbanka 9.02.17
501 ORIGINAL KR.
11.990
Leví s Kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r2 f ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X Xf ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-5
C
2
8
1
C
3
7
-5
A
E
C
1
C
3
7
-5
9
B
0
1
C
3
7
-5
8
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K