Fréttablaðið - 11.02.2017, Side 92
Listaverkið
„Refur sem kann að labba
eins og manneskja og er
í fötum,“ segir höfundur
þessarar myndar, Júlía Líf
Terrazas, um hana.
1.Hvað geturðu látið aðra fá en samt
haft sjálfur áfram?
2.Þú berð það, en ég nota það þegar
ég vil. Hvað er það?
3.Hvað er hægt að finna í tómum vasa?
4.Veistu hverju þú getur haldið uppi án
þess að snerta það nokkurn tímann?
5.Hvað gerir fólki kleift að horfa í
gegnum veggi?
6.Fátækt fólk á það. Ríkt fólk skortir
það. Ef þú borðar það deyrðu? Hvað
er það?
7. Hvenær hafa fílar tólf fætur?
8.Ef ég á það deili ég því ekki. Ef ég deili
því, á ég það ekki. Hvað er það?
Gátur
1. Flensu. 2. Nafnið þitt. 3. Gat. 4
Samræðum. 5. Gluggi. 6. Ekkert.
7. Þegar þeir standa þrír saman.
8. Leyndarmál.
Lausn
Gói heitir fullu nafni Guðjón
Davíð Karlsson. Hann skrifaði
leikritið Fjarskaland sem sýnt
er í Þjóðleikhúsinu og fjallar
um gömlu ævintýrin. Skyldi
hann hafa lesið mikið af ævin-
týrum sem krakki? „Já, ég elskaði
ævintýri og þjóðsögur. Foreldrar
mínir lásu mikið fyrir mig og
sögðu mér sögur. Það er kannski
ástæðan fyrir því að ég er með
ævintýrin á heilanum.“
Hvert þeirra hélst þú mest upp á?
Ég var alltaf svakalega hrifinn af
Eldfærunum og Búkollu.
Varstu smeykur við eitthvað í
ævintýrunum? Átján barna faðir
í álfheimum er saga sem ég var
alltaf pínu smeykur við. Svo fékk
ég alltaf kökk í hálsinn þegar ég
las Dísu ljósálf.
Langaði þig einhvern tíma að
vera sögupersóna í ævintýri?
Ekki einhver ein. En ég var oft
í ævintýraleikjum og þá var
ég Pétur Pan, Hans klaufi (mér
fannst hann svo fyndinn) og
fleiri.
Reyndir þú einhvern tíma að
galdra? Ég reyndi og reyndi. Ég
fékk einhvern tíma töframanna-
sett í jólagjöf. Það gekk alveg
ótrúlega illa hjá mér. Enda gapi
ég alltaf þegar ég sé einhvern
gera töfrabrögð.
Settir þú upp leiksýningar heima
hjá þér sem barn? Stöðugt. Ég
var alltaf að leika fyrir bangsana
mína. Alls konar ævintýri.
Máttir þú vera með læti og fíflast
þó pabbi þinn væri biskup?
Pabbi er prestur og þegar ég var
unglingur þá varð hann biskup.
En fyrir mér er hann alltaf pabbi
minn. Það var mikið grín og
gaman á heimilinu. Draum-
ur minn er að verða jafn
góður pabbi og hann er.
Hvaða ævintýri lest þú
helst fyrir börnin þín? Við
lesum saman alls konar
ævintýri. Reynum að lesa
sem mest. Þegar ég var að
skrifa Fjarskaland þá las
ég oft úr því fyrir þau
og prófaði suma
brandara og
fékk hug-
myndir að
ævintýrum
frá þeim.
Þau voru
svona til-
rauna-
dýr.
Var alltaf að leika
fyrir bangsana mína
alls konar ævintýri
Leikarinn Gói elskaði ævintýri og þjóðsögur þegar hann var barn og
reyndi oft að galdra en gekk það illa. Þegar hann var að skrifa leik-
ritið Fjarskaland prófaði hann brandarana á börnunum sínum.
Gói segir að hann
reyni að lesa sem
mest fyrir börnin.
FréTTabLaðið/sTeFán
Bragi Halldórsson
236
„Þessi þraut er þannig að við eigum að reikna út táknið sem
vantar,“ sagði Lísaloppa. „Reikna út?“ sagði Kata spyrjandi.
„Það eru engir tölustafir til að reikna með, hvernig getum við
þá reiknað þetta út?“ „Jú,“ sagði Lísaloppa. „Táknin í hverri
línu lesið frá vinstri til hægri fylgja ákveðnu lögmáli.
En það vantar eitt táknið og hvert af táknunum A,B eða D
passar í stað spurningamerkisins.“ Kata horfði tortryggin á
dæmið nokkra stund. „Lögmáli! Mér litist nú betur á þrautina
ef þetta væru bara tölustafir, en hver þremillinn, við hljótum
að geta leyst þetta.“
Getur þú reiknað út hvaða tákn á að vera þar sem spurningamerkið er?
Last Updated: April 4, 2007
Web page: Copyright © 2007 ThinkFun Inc. All Rights Reserved.
Permission is granted for personal use only.
This puzzle may not be duplicated for personal profit.
Svar: D
?
A B D
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
Mundir þú eftir að bursta
og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
– allar upplýsingar á www.icecare.is
tannlæ
knar
mæla m
eð
GUM
tannvö
rum
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r44 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
7
-3
9
9
8
1
C
3
7
-3
8
5
C
1
C
3
7
-3
7
2
0
1
C
3
7
-3
5
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K