Fréttablaðið - 09.03.2017, Page 10
umhverfismál Björt Ólafsdóttir,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
mælti fyrir þingsályktunartillögu
um áætlun um vernd og orku-
nýtingu landsvæða, eða 3. áfanga
rammaáætlunar, á þriðjudag. Af
umræðum á þinginu má ráða að
harðra átaka sé að vænta um málið.
Tillagan er óbreytt frá hendi
verkefnastjórnar rammaáætlunar
sem forveri Bjartar, Sigrún Magnús-
dóttir, lagði fram á liðnu þingi. Eftir
að Björt hafði mælt fyrir málinu
kom Gunnar Bragi Sveinsson, fyrr-
verandi utanríkis-, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, næstur á
eftir henni í ræðustól. Hann sagði:
„ …þegar þetta plagg var afgreitt úr
fyrri ríkisstjórn var ég með fyrir-
vara á plagginu og eins í þingflokki
Framsóknarflokksins, því að mér
finnst þetta plagg vera ónýtt.“
Sjálf sér Björt þingsályktunartil-
löguna í því ljósi að í senn sé um að
ræða öfluga „orkunýtingaráætlun á
sama tíma og hún er metnaðarfull
verndaráætlun“.
Lagt er til að um 660 MW bætist
í nýtingarflokk. Þannig feli 2. og
3. áfangi í sér mikla möguleika til
orkuöflunar, rúmlega 1.400 MW.
Til samanburðar er uppsett afl allra
núverandi virkjana á Íslandi 2.500
MW, sagði ráðherra. „Á sama tíma
er lagt til að mörg mikilvæg svæði
verði sett í vernd. Þannig er mjög
gott jafnvægi í þessum tillögum
milli sjónarmiða verndunar og nýt-
ingar ef það er mælt í orkueiningum
en verndarflokkur og nýtingarflokk-
ur eru nokkurn veginn jafn stórir í
þessum tillögum,“ sagði Björt.
Umræðurnar stóðu í á fimmtu
klukkustund áður en málinu var
vísað til umhverfis- og samgöngu-
nefndar. Má minna á að á síðasta
þingi var það mjög umdeilt að
málið var til umfjöllunar í atvinnu-
veganefnd, og var þráfaldlega bent á
að það ætti heima í umhverfisnefnd
þingsins, eins og sitjandi ráðherra
hefur fengið í gegn.
Í umræðunum var sleginn var-
nagli af stjórnarandstöðunni.
Undiralda vegna Rammans á Alþingi
Ef rétt er lesið í umræður þingsins um 3. áfanga rammaáætlunar er átaka að vænta. Fyrrverandi ráðherra segir málið ónýtt – en ríkis-
stjórn hans stóð að málinu í sama búningi. Lagt er til að tvær nefndir fjalli um málið og ef illa gangi þurfi að endurskoða lagarammann.
Tillaga verkefnisstjórnar fór óbreytt til þingsins frá hendi núverandi og fyrrverandi umhverfismálaráðherra. Hafi verið
tekist um málið undanfarin ár þá virðist þess sama að vænta nú eins og heyra mátti á þingmönnum. FréTTablaðið/VilHelm
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Gangi málið illa í
meðförum þingsins
þurfi að endurskoða lög-
gjöfina.
Teitur Björn
Einarsson, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, spurði sérstaklega
um Þjórsá – ungt fólk á svæðinu
hefði stigið fram og vildi ekki upp-
byggingu með sama hætti og eldri
kynslóðir. Heilt yfir séu önnur
atvinnutækifæri efst í huga kom-
andi kynslóða og þau byggi ekki
endilega á raforkuframleiðslu.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þing-
maður Vinstri grænna, sagði mikil-
vægt að spyrja sig þeirrar spurning-
ar hvort ekki þurfi að skoða eitt og
annað mun betur. Það megi spyrja
hvað liggi á og hvað eigi að gera við
allt það rafmagn sem leyfilegt er að
framleiða með því að nýta þá orku-
kosti sem skipað er í nýtingarflokk
rammaáætlunar nú þegar. Loftslags-
málin séu ein og sér nægt tilefni til
þess að fara varlega.
Á sama tíma má ráða að málið
mæti andstöðu innan Sjálfstæðis-
flokksins – þingmaðurinn Teitur
Björn Einarsson sagði að umhverfis-
nefnd þingsins yrði að vera í nánu
samstarfi við atvinnuveganefnd
við umfjöllun málsins – og vel megi
búast við að einstakir kostir færist
úr nýtingu eða vernd og yfir í bið-
flokk. Eins að gangi málið illa í með-
förum þingsins þurfi að endurskoða
löggjöfina.
Svandís Svavarsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna og fyrrverandi
umhverfisráðherra, sagði tíðindi
felast í orðum Teits – um stjórnar-
mál væri að ræða og það lagt fram
í nafni hennar. Teitur setji efnislega
fyrirvara við málið og spurði hvort
hann einn stjórnarþingmanna væri
þeirrar skoðunar.
Teitur sagði túlkun Svandísar
á orðum hans „frjálslega“, hann
styddi málið og færi einfaldlega
fram á vandaða þinglega meðferð.
Átta nýir orkukostir – tíu í verndarflokk
n Verkefnisstjórn leggur til að átta
nýir virkjunarkostir bætist í orku-
nýtingarflokk áætlunarinnar.
Um er að ræða fjórar vatns-
aflsvirkjanir með uppsett
afl upp á alls 277 MW,
þrjár jarðhitavirkjanir
með uppsett
afl allt
að 280 MW og einn vindlund með
uppsett afl allt að 100 MW. Ekki
eru lagðar til breytingar á flokkun
þeirra virkjunarkosta sem fyrir
voru í orkunýtingarflokki en þeir
eru alls tíu.
n Með þessari tillögu verk-
efnisstjórnar aukast möguleikar
á orkuvinnslu um sem nemur
tæpum 50% í jarðvarmaafli og um
rúm 150% í vatnsafli frá 2. áfanga
rammaáætlunar.
n Í verndarflokk bætast við fjögur
landsvæði með tíu virkjunar-
kostum. Allir nýir virkjunarkostir á
landsvæðum í verndarflokki eru
vatnsaflsvirkjanir. Ekki eru lagðar
til breytingar á flokkun þeirra
virkjunarkosta sem fyrir voru í
verndarflokki en þeir eru sextán
talsins. Samtals er því lagt til að
26 virkjunarkostir verði flokkaðir í
verndarflokk.
n Þrjátíu og átta virkjunarkostir
eru í biðflokki og hafa tíu bæst við
þann flokk frá fyrri áfanga.
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
HEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi
og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar
einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna
notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku
eða erfiðu færi.
Volkswagen Caddy kostar frá
2.550.000 kr.
(2.056.452 kr. án vsk)
9 . m a r s 2 0 1 7 f i m m T u D a G u r10 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
0
9
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
9
-D
6
D
4
1
C
6
9
-D
5
9
8
1
C
6
9
-D
4
5
C
1
C
6
9
-D
3
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K