Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 12
BANDARÍKIN Hvíta húsið hefur vísað
á bug fullyrðingum um að Donald
Trump Bandaríkjaforseti hafi haft
einhver önnur samskipti við sendi-
herra Rússlands í Bandaríkjunum
en tilfallandi á meðan á kosninga-
baráttunni um forsetaembættið
stóð.
Greint var frá því í fjölmiðlum,
meðal annars The Independent, á
þriðjudaginn að Trump og Sergej
Kisljak sendiherra hefðu báðir verið
á Mayflower-hótelinu í Washington
27. apríl í fyrra. Trump var þar til að
ræða utanríkispólitík.
Ekki er óvenjulegt að sendiherrar
erlendra ríkja mæti á slíka kosn-
ingafundi til að komast að stefnu
forsetaframbjóðenda. En í kjöl-
far ásakana um að Rússar hafi haft
áhrif á kosningabaráttuna og hafi
verið í sambandi við menn í kosn-
ingaherbúðum Trumps hefur þótt
mikilvægt að kortleggja möguleg
samskipti Trumps og rússneska
sendiherrans.
Forsetinn hefur mörgum sinnum
neitað öllum samskiptum en nú
segja starfsmenn Hvíta hússins
að margir sendiherrar hafi verið á
svæðinu. Trump hafi verið í mót-
tökunni í um fimm mínútur og síðan
hafi hann haldið rakleiðis í ræðustól.
Í viðtali við AFP-fréttaveituna segir
Sarah Sanders, einn blaðafulltrúa
Hvíta hússins, að starfsmenn muni
ekki hverjum Trump heilsaði með
handabandi í móttökunni. Það
hafi hvorki verið á þeirra ábyrgð að
bjóða gestum né kanna bakgrunn
þeirra. Rússneski sendiherrann
hefur ekki tjáð sig um málið.
Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps,
Michael Flynn, neyddist til að
draga sig í hlé þegar afhjúpað var að
hann hefði leynt upplýsingum um
samskipti sín við rússneska sendi-
herrann. Dómsmálaráðherrann
Jeff Sessions sætti harðri gagnrýni
þegar afhjúpað var að hann hefði
hitt Kisljak tvisvar í Washington
í fyrra. Hann hafði áður fullyrt að
hann hefði ekki verið í samskiptum
við Rússa meðan á kosningabarátt-
unni stóð.
Nefnd þingmanna í fulltrúadeild-
inni á að rannsaka fullyrðingar um
samvinnu Rússa og Donalds Trump
í kosningabaráttunni.
ibs@frettabladid.is
Handabandið
sem engin man
Sendiherra Rússlands var viðstaddur kosningafund
Trumps á hóteli í Washington. Starfsmenn Hvíta
hússins segja marga sendiherra hafa verið á svæðinu
og ekki muna hverjum Trump heilsaði. Þingnefnd
rannsakar fullyrðingar um samvinnu við Rússa.
NOREGUR Þegar fríhafnarversl-
anir á norskum flugvöllum stilltu
sterku áfengi upp á minna áberandi
stöðum í fyrra minnkaði salan.
Markmiðið hafði verið að draga úr
sölunni.
Sala á bjór í fríhöfnum jókst örlít-
ið í fyrra en sala á léttvíni minnkaði
eins og á brennivíni. Úrval vín- og
bjórtegunda hafði verið aukið.
Samtímis því sem sala áfengis
minnkaði í fríhöfnum í fyrra jókst
drykkjan á hvern íbúa Noregs, að
því er segir í frétt Aftenposten.
– ibs
Minna selst af áfengi í fríhöfnum
Sala á bjór
jókst í
norskum
fríhöfnum í
fyrra en sala
á léttu víni
og sterku
áfengi
minnkaði.
NORDIC
PHOTOS/GETTY
ER LEIÐIN GREIÐ?
Málþing um algilda hönnun í almenningsrými
föstudaginn 10. mars, kl. 9-13 á Grand Hótel Reykjavík
Málefnahópur Öryrkjabandalags Íslands um aðgengismál, Blindrafélagið,
Verkís hf., Átak – félag fólks með þroskahömlun og Reykjavíkurborg
bjóða til málþings um algilda hönnun innan borgarmarka og á
ferðamannastöðum í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið,
Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðina.
Skráning á www.obi.is
Táknmáls- og rittúlkun í boði.
DAGSKRÁ
9.00 Málþingið sett
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ
9.10 Ávarp
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra
9.20 Hönnun í útiumhverfi – úttekt og samanburður á
norrænum hönnunarreglum
Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og
Berglind Hallgrímsdóttir, umferðarverkfræðingur hjá Verkís
10.00 Er leiðin greið?
Erna Hreinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni
10.15 Aðgengi fyrir alla utandyra
Grétar Pétur Geirsson, formaður málefnahóps ÖBÍ um aðgengi
10.40 Byggingarreglugerðir og algild hönnun
Aldís Magnea Norðfjörð, arkitekt hjá Mannvirkjastofnun
10.55 Kaffihlé
11.20 Upplifun fatlaðs fólks af ferðamannastöðum á Íslandi
Aileen S. Svensdóttir, formaður Átaks – félags fólks með þroskahömlun
og Anna Kristín Jensdóttir
11.50 Aðgengi að ferðamannastöðum – aðkoma Ferðamálastofu
Elías Bj. Gíslason, Ferðamálastofu
12.05 Afhending aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2017
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
12.35 Lokaávarp
Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins
13.00 Að málþingi loknu verður boðið upp á veitingar
Fundarstjóri:
Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
0
7
0
2
Donald Trump á fundinum 27. apríl á Mayflower-hótelinu. NORDICPHOTOS/AFP
Ekki er óvenjulegt að
sendiherrar erlendra ríkja
mæti á slíka kosningafundi
til að komast að stefnu
forsetaframbjóðenda. En í
kjölfar ásakana um að
Rússar hafi haft áhrif á
kosningabaráttuna og hafi
verið í sambandi við menn í
kosningaherbúðum Trumps
hefur þótt mikilvægt að
kortleggja möguleg sam-
skipti Trumps og rússneska
sendiherrans.
9 . m A R s 2 0 1 7 F I m m T U D A G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T A B L A ð I ð
0
9
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
9
-D
1
E
4
1
C
6
9
-D
0
A
8
1
C
6
9
-C
F
6
C
1
C
6
9
-C
E
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K