Fréttablaðið - 09.03.2017, Page 28

Fréttablaðið - 09.03.2017, Page 28
Þjóðvegir landsins eiga sér árhundraða sögu, þeir hafa verið byggðir upp og þeim við haldið af þegnunum samkvæmt lagafyrirmælum og svo er enn þótt þeir beri nú önnur skráningarnöfn. Þannig munu í lögum ákvæði um að hluti gjalda af bifreiðaeldsneyti, hluti þungskatta af bifreiðum og hluti innflutningsgjalda af bifreið- um skuli renna til uppbyggingar og viðhalds vega. Í upphafi þessarar aldar þ.e. til 2008 var uppbygging og viðhald vegakerfisins í viðunandi far- vegi þótt vissulega væru ekki allir ánægðir. Við hrunið 2008 breyttist geta samfélagsins mjög til hins verra. Talið er að kostnaður ríkisins (þegnanna ) af hruninu hafi numið 500-700 milljörðum og þurfti víða að leita fanga til að mæta því. Óhjá- kvæmilegt reyndist þá að skera mjög niður framlög til uppbygg- ingar og viðhalds þjóðveganna þótt gjaldtaka af bifreiðaeigendum breyttist ekki. Því má með nokkrum rétti halda því fram að ríkið hafi fengið neyðar- lán hjá þjóðvegunum á árabilinu 2009 til 2014. Ekki verður hér reynt að meta heildarupphæð lánsins en sé miðað við vegafé fyrir hrun og á fjárlögum ársins 2017 annars vegar, og vegafé 2009-2014 hins vegar, nemur upphæðin væntanlega ein- hverjum tugum milljarða. Sem betur fer voru ekki öll fram- lög ríkisins í kjölfar hrunsins tapað fé. Þannig mun ríkið t.d. hafa lagt Arion banka til um 50 milljarða sem horfur eru á að verði endurgreiddir að fullu á næstu mánuðum. Því vakna nú eðlilega spurningar um hvernig eigi að ráðstafa því fé. Flest- ir virðast sammála um að fénu skuli varið til að greiða niður skuldir, en hvaða skuldir? Við skuldauppgjör er skuldum jafnan skipt í forgangskröfur (sem greiða skal fyrst) og almennar kröfur. Skuldin við þjóðvegina hefur leitt til þess að nýbyggingar vega hafa verið mjög takmarkaðar frá hruni og viðhaldi ábótavant. Þetta er óviðunandi og þó enn verra fyrir mjög aukið álag á vegi landsins vegna aukins fjölda ferða- manna. Þessir ferðamenn eru í raun bjargvættir þjóðarinnar og megin- skýring þess hve efnahagur þjóðar- búsins hefur batnað hratt. Ætla má að ástand þjóðveganna sé eitt alvarlegasta vandamálið varðandi þjónustu við ferðamenn og líklegast til að spilla orðspori okkar. Veigamikil rök hníga þannig að því að skuldin við þjóðvegina sé for- gangskrafa sem greiða skuli á undan öðrum kröfum, sé svo ætti að nýta a.m.k. hluta þess fjár sem fæst við sölu Arion banka til sérstaks átaks í vegagerð óháð nýsamþykktum fjár- lögum. Er skuld við þjóðvegina forgangskrafa? Ari Teitsson vegfarandi Frummælendur áfengisfrum-varpsins segja gjarnan að árangursríkasta leiðin til að sporna gegn óhóflegri neyslu áfeng- is sé fræðsla og forvarnir og að það sé deilt um það hvort sala áfengis í verslunum leiði til aukinnar og jafn- vel óhóflegrar neyslu áfengis. Að gefnu tilefni er ástæða til að ítreka að í skýrslum og fræði- greinum um lýðheilsuaðgerðir kemur mjög skýrt fram að áfengis- neysla eykst með auknu aðgengi í matvörubúðum, sérstaklega hjá ungmennum og þeim sem kunna verst með áfengi að fara. Fræðsla er mikilvæg en dugar ekki ein og sér. Árangursríkustu forvarnirnar eru: 1) Takmörkun á aðgengi; 2) Neyslu- stýringarskattur, og; 3) Bann við auglýsingum. Sumir þingmenn – vonandi í minnihluta – vilja nú virða að vettugi tvær mikilvægustu forvarnirnar af þremur. Lög eru venjulega sett til að þjóna hagsmunum þjóðfélagsins. Hvaða hagsmunum þjónar frumvarpið um breytingar á áfengissölulög- unum þegar lítill minnihluti sam- félagsins vill áfengi í búðir? Það er algjörlega óásættanlegt ef þingmenn taka eigin hagsmuni og hagsmuni matvöruverslanaeigenda fram yfir hagsmuni samfélagsins og hags- muni æskunnar. Fyrirkomulagið í dag hefur reynst okkur vel og sam- kvæmt samanburðartölum OECD er neysla áfengis með því minnsta hér á landi. Afneitum ekki staðreyndum. Við getum gert svo miklu betur. Tökum upplýsta ákvörðun Lára G. Sig- urðardóttir læknir og fræðslustjóri Krabbameins­ félagsins Tilefni þessara greinaskrifa er fyrirlestur Þórdísar Elvu Þor-valdsdóttur og Tom Stranger ásamt bók þeirra, Handan fyrir- gefningar. Tom nauðgaði Þórdísi Elvu þegar hún var unglingur. „Er ekki kominn tími til að fyrir- gefa honum?“ Marie M. Fortune, guðfræðingur og sérfræðingur í kynferðisofbeldi, segir að spurningin geti valdið sekt- arkennd hjá þolandanum. Þörfin eða löngunin til að fyrirgefa verður að vera algjörlega á valdi þoland- ans og allur þrýstingur á þolanda, í hvaða formi sem er, er ónærgætinn og óraunhæfur. Oft er vísað til þess að fyrirgefn- ingin sé hin kristilega lausn. Sólveig Anna Bóasdóttir segir í grein sinni Fyrirgefningin – er ekki alltaf svarið: „Að losna undan valdi persónu sem hefur meitt mann og sært er mjög erfitt og tal um fyrirgefningu hjálpar ekki alltaf í þeim aðstæðum. Ef ger- andinn viðurkennir hvorki verknað sinn né reynir að bæta fyrir brot sitt ættum við, með stuðningi Nýja testamentisins, að sleppa öllu tali um fyrirgefningu.“ Í grein sinni The Politics of For- giveness: How the Christian Church Guilt-Trips Survivors bendir Fred Keene á að í kröfunni um fyrirgefn- ingu felist öflugt félagslegt taum- hald sem viðheldur sekt þolandans og að krafan um fyrirgefningu hafi einnig fest rætur í ráðgjöf og með- ferð fagaðila. Keene bendir á að í kristninni sé fyrirgefning alltaf veitt af þeim sem valdið hefur en ekki öfugt. Sáttaferli ekki alltaf rétta leiðin Í kynferðisofbeldi eins og öðru of- beldi nær annar aðilinn valdi yfir hinum og í krafti þess valds beitir hann hinn aðilann ofbeldi. Kyn- ferðisofbeldi er aldrei réttlætanlegt og aldrei þolandanum að kenna, ábyrgðin og sökin er ofbeldis- mannsins. Ekkert getur breytt því að afbrot var framið, nauðgun er og verður alltaf nauðgun. Sáttaleiðin er ekki alltaf rétta leið- in þegar kemur að kynferðisofbeldi, segir Marie M. Fortune. Bera þurfi virðingu fyrir sársauka þolandans auk þess sem stærsta hindrun fyrir sáttargjörðinni er afneitun ofbeldis- mannsins. Þegar um sifjaspell er að ræða koma þau oft ekki í dagsljósið fyrr en eftir að gerandinn er látinn. Þá getur einnig verið að þolandi hafi enga löngun til að ná sáttum við nauðgara sem er henni ókunnugur. „Ekki vera svona reið!“ Samfélög eiga stundum erfitt með að höndla reiði þolanda. Reyndar er það svo að reiði þolenda beinist því miður oftast að þeim sjálfum. Heil- brigð viðbrögð við því að brotið er gegn okkur ætti að vera reiði gagn- vart þeim sem olli brotinu. Að leyfa sér að vera reiður gerandanum getur því verið merki um að þolandi sé kominn vel áleiðis í bataferlinu. Þolandans er valið og valdið Þolandinn er hvorki göfugri né hugaðri við það eitt að fyrirgefa gerandanum. Sumt fagfólk varar við því að þolandi fari á fund geranda með það fyrir augum að fá hann til að iðrast gjörða sinna. Í langflestum tilvikum þekkjast þessir einstakling- ar og hættan er sú að þeir sem eru nákomnir standi með gerandanum. Þetta endurspeglaðist t.d. í þátta- röðinni Föngum. Það er langt í frá tilgangur grein- arhöfunda að gagnrýna sáttar- ferli Þórdísar og Toms en það gæti skapað falskar eða óraunhæfar væntingar hjá öðrum þolendum og upphafið hugmyndina um að fyrir- gefningin sé sjálfsagður hluti upp- gjörs við kynferðisofbeldi. Að fyrirgefa – eða ekki Áslaug Árnadóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Katrín G. Alfreðsdót- tir, Kristín I. Pálsdóttir og Þórlaug Sveinsdóttir eru í ráði Rótarinnar Á undanförnum dögum hefur komið fram að töluverða fjármuni skortir í fjárlögum yfirstandandi árs til að hægt verði að ráðast í brýnar vegaumbætur víðs vegar um landið í samræmi við nýsamþykkta samgönguáætlun. Vart þarf að fjölyrða að sam- göngukerfið er ein grundvallar- forsenda öflugs atvinnulífs og búsetugæða. Niðurskurður á fram- kvæmda- og viðhaldsfé til vega- mála á árunum eftir hrun samhliða nú stórauknum fjölda ferðamanna á vegum úti hefur haft þau áhrif að þrátt fyrir aukin framlög til nýfram- kvæmda og viðhalds á undanförn- um árum er ástandið enn langt í frá boðlegt. Skiptir engu hvar borið er niður. Þjóðvegur 1 á sunnanverðum Aust- fjörðum getur trauðla kallast þjóð- vegur hvað þá vegur númer eitt. Þá er ekki í boði að löngu tímabær uppbygging á vegleysum á Vest- fjörðum frestist enn frekar. Sem dæmi eru tafir á framkvæmdum á Vestfjarðarvegi nr. 60 um Gufudals- sveit ein samfelld hörmungarsaga sem spannar um hálfan annan ára- tug. Ýmsa aðra vegkafla á Snæfells- nesi og í Dölum, í Húnavatnssýslum, á Suðurlandi eða í Borgarfirði mætti lengi áfram telja. Ef sverð þitt er stutt, gakktu þá skrefi framar. Þessi gamla speki þegar eitthvað þykir á skorta á vel við hér. Það verður ekki mikið lengur búið við óviðunandi ástand vegakerfisins og því blasir við að leita þarf lausna til að ná frekari árangri í að byggja upp vegi lands- ins. Sú uppbygging verður að ganga hraðar en ráðgert er. En hvar er hægt að stíga skrefi framar til að bæta það sem upp á vantar? Nærtækast er að ríkis- stjórnin svari því hvort tilefni gefist til nýrra ákvarðana um fjármögnun vegaframkvæmda við endurmat Göngum þá skrefi framar Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálf­ stæðisflokksins í Norðvesturkjör­ dæmi Skuldin við þjóðvegina hefur leitt til þess að nýbygg- ingar vega hafa verið mjög takmarkaðar frá hruni og viðhaldi ábótavant. Þolandinn er hvorki göfugri né hugaðri við það eitt að fyrirgefa gerandanum. Sumt fagfólk varar við því að þol- andi fari á fund geranda með það fyrir augum að fá hann til að iðrast gjörða sinna. Þá er samgönguráðherra á réttri leið úr þröngri stöðu með því að setja umræðu um veggjöld að nýju af stað og samstarf með einkaaðilum um fjármögnun verkefna. Þannig væri hægt að flýta fyrir stórum og nauðsyn- legum framkvæmdum til og frá höfuðborginni og búa jafnframt til fjárhagslegt svig- rúm fyrir ríkið til að ráðast hraðar í aðrar framkvæmdir víðs vegar á landsbyggðinni. Hátt í 500 milljarðar af fé rík- isins er bundið í eignarhlut- um í fjármálafyrirtækjum. 500 byggðinni. Tæma verður þá umræðu sem fyrst og taka jafnframt mið af ýmsum viðkvæmum álitaefnum sem þar skjóta upp kollinum. Aðal- atriðið í þeirri umræðu er að hún sé sett í rétt samhengi; að leita leiða um hvernig við getum byggt upp vegakerfi landsins hraðar en fram kemur í núverandi ríkisfjármála- áætlun. Tiltekt En verulegur árangur í uppbygg- ingu samgönguinnviða á næstu tveimur til fjórum árum getur náðst ef ráðist verður í umfangsmikla til- tekt á efnahagsreikningi ríkissjóðs til að lækka skuldir og losa um fé. Of mikið af fjármunum ríkissjóðs er bundið fast í ýmsum verkefnum sem ekki geta öll talist jafn nauð- synleg samgönguinnviðum og einn- ig verkefnum sem aðrir væru betur til þess fallnir að fjármagna en ríkið. Hátt í 500 milljarðar af fé ríkisins er bundið í eignarhlutum í fjár- málafyrirtækjum. Með vandaðri og skipulagðri sölu á stórum hluta þeirra eigna má losa um mikið fé til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og spara þannig tugi milljarða á ári hverju í vaxtagreiðslur. Þann- ig skapast alvöru svigrúm til að styrkja grunnþjónustuna og byggja upp innviði. Fleiri dæmi er hægt að nefna um rekstur sem losa mætti ríkið úr og verja afrakstrinum til að hraða uppbyggingu samgöngu- mannvirkja. Til dæmis verslunar- rekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem varla getur talist til grunnþjón- ustu af hálfu ríkisins og einnig gætu allt að sex milljarðar áunnist með því að selja eignir ÁTVR. Sumar þessara hugmynda þykja umdeildar og ólíklegt að hægt verði að losa um allar þessar eignir og draga úr umsvifum á skömmum tíma. En með einhverjum hætti verður að stíga skrefi framar, og það fljótt, ef raunverulegur vilji er hjá þingheimi og ríkisstjórn til að ráðast af krafti í nauðsynlegar sam- gönguumbætur. Tillögur um að draga úr umsvifum ríkisins í minna mikilvægum verkefnum, greiða niður skuldir til að spara vaxta- greiðslur og fjárfesta þess í stað í samgönguinnviðum eru einfaldlega valkostir í stöðunni sem nauðsyn- legt er að horfa til. á forsendum fjárlaga 2017 vegna framlagningar ríkisfjármálaáætl- unar til næstu fimm ára nú í lok mars. Fordæmin fyrir þess háttar ákvörðunum eru til staðar. Benda má á í því sambandi að fjárlög 2017 voru sett undir afar óvenjulegum kringumstæðum og tímapressu á Alþingi fyrir áramót og því viðbúið að endurskoða þurfti ýmsa við- kvæma þætti þess á árinu. Þá er samgönguráðherra á réttri leið úr þröngri stöðu með því að setja umræðu um veggjöld að nýju af stað og samstarf með einkaaðil- um um fjármögnun verkefna. Þann- ig væri hægt að flýta fyrir stórum og nauðsynlegum framkvæmdum til og frá höfuðborginni og búa jafn- framt til fjárhagslegt svigrúm fyrir ríkið til að ráðast hraðar í aðrar framkvæmdir víðs vegar á lands- Það er algjörlega óásættan- legt ef þingmenn taka eigin hagsmuni og hagsmuni mat- vöruverslanaeigenda fram yfir hagsmuni samfélagsins og hagsmuni æskunnar. 9 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r28 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð 0 9 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 9 -E 0 B 4 1 C 6 9 -D F 7 8 1 C 6 9 -D E 3 C 1 C 6 9 -D D 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.