Fréttablaðið - 09.03.2017, Side 38

Fréttablaðið - 09.03.2017, Side 38
Við notum bæði notuð föt og fatnað og efni af „dauðum“ lagerum í nýja merkið okkar, Remix. Hráefnið er eitthvað sem þegar er búið að framleiða en á að farga eða endar í landfyll- ingu. Þetta geta verið alls konar efni, vinnufatnaður, gardínur og sængurföt. Við viljum nýta slíkt hráefni og vinnum flíkurnar í takt við tíðarandann í dag en út frá rót- tækum umhverfissjónarmiðum,“ útskýrir Halla Hákonardóttir fatahönnuður sem ásamt Helgu Kjerúlf stendur að hönnunar- stúdíóinu Usee Studio. Remix munu þær kynna á komandi HönnunarMars undir yfirskriftinni Reif í tísku. Þær segja nýja merkið andsvar við fjöldaframleiðslu og vestrænni neysluhyggju. Áherslur þeirra liggi í endurnýtingu, byltingu og breytingum innan tískuheimsins, heims sem sé kominn í ákveðið öngstræti. „Í dag er mikið talað um „anti fashion“, að tískuheimurinn sé búinn að mála sig út í horn. Hann virkar ekki eins og hann hefur þróast ef horft er á hann út frá umhverfis- og mannréttindasjón- armiðum. Við erum að skoða þessi mál og lesa okkur til. Okkur langar að fylgja þessari bylgju eftir og taka þátt í að hrista upp í tískunni,“ segir Halla. „Viðburðurinn okkar á Hönn- unarMars heitir Reif í Tísku, sem er skírskotrun í reif-tónlistina og menninguna bak við hana. Tónlist verður stór hluti af sýningunni. Sýningin verður í formi mynd- bandsverks eða innsetningar þar sem tónlist, litir, flíkur og ilmur blandast saman í gott „remix“ fyrir öll skynfæri.“ Halla segir Usee Studio vinna með hugmyndafræðina Waste is the new black. Hráefnið ráði ferðinni og línan samanstandi því af einstökum flíkum. Ekki sé til dæmis hægt að fá sömu flíkina í ólíkum stærðum. „Einhverjar flík- anna geta þó verið svipaðar þegar við höfum dottið niður á lager af því sama en það fær samt hver flík sitt séreinkenni. Það er mótvægi við „mass production“ eða fjölda- framleiðslu í tískuheiminum.“ Sýning Usee Studio fer fram í húsakynnum Hönnunarmiðstöðv- ar í Aðalstræti á HönnunarMars, dagana 23.-26. mars. Þá verður Usee Studio einnig í hópi hönnuða sem opna munu verslun í Hönn- unarmiðstöð. Nánar má forvitnast um Usee Studio á www.Usee.is. Tískuheimurinn virkar ekki eins og hann hefur þróast ef horft er á hann út frá umhverfis- og mannréttinda- sjónarmiðum. Halla Hákonardóttir og Helga Kjerúlf í Usee Studio vilja hrista upp í tískunni með nýju fatamerki, Remix. mynd/anton bRinK Hönnun UseeStudio gengur út á endurnýtt hráefni. mynd/ USeeStUdio Hver flík er einstök og með sitt sérkenni.Hráefnið sækja Helga og Halla í „dauða lagera“ sem ann- ars myndu enda í landfyllingu. Reif í tísku á Hönnunarmars Usee Studio kynnir nýtt fatamerki á HönnunarMars. Merkið kallast Remix og er úr endurunnum efnivið. Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Vorbuxurnar komnar Kr. 4.990.- Str. 2-9 (ca.38-52) Litir: Svart, dökkblátt hvítt, grátt, drappað, kóngablátt Netverslun á tiskuhus.is Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Alltaf eitthvað nýtt og spennandi LEIÐ 1 Endalaus símtöl og sms óháð fjarskiptafyrirtæki 0 GB gagnamagn 790kr. LEIÐ 2 Endalaus símtöl og sms óháð fjarskiptafyrirtæki 1 GB gagnamagn 1.680kr. LEIÐ 3 Endalaus símtöl og sms óháð fjarskiptafyrirtæki 5 GB gagnamagn 2.680kr. LEIÐ 4 Endalaus símtöl og sms óháð fjarskiptafyrirtæki 30 GB gagnamagn* 3.490kr. 365.is Sími 1817 ENDALAUS GSM 8 KynninGaRbLaÐ FÓLK 9 . M a R S 2 0 1 7 F i m mt U daG U R 0 9 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 9 -A 5 7 4 1 C 6 9 -A 4 3 8 1 C 6 9 -A 2 F C 1 C 6 9 -A 1 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.