Fréttablaðið - 07.02.2017, Blaðsíða 1
stjórnsýsla Kári Stefánsson, for
stjóri Íslenskrar erfðagreinar, segir
Sigríði Á. Andersen dómsmála
ráðherra ekki fara með rétt mál
varðandi hugsanlega aðkomu ÍE að
greiningu lífsýna fyrir lögregluna.
Í grein Kára í Fréttablaðinu í dag
segist hann tvisvar hafa boðið fram
þjónustu ÍE til að rannsaka líf sýni
af glæpavettvangi. Hann vitnar til
orða dómsmálaráðherra í blaða
viðtali um að samstarf hér á landi í
þessum efnum svari ekki kostnaði.
Fyrir hendi sé góður samningur við
sænskt rannsóknarfyrirtæki. Kári
segir ÍE hafa boðist til að annast
verkefnið ókeypis.
„Það er því út í hött að halda því
fram að kostnaðargreining hafi leitt
til þess að boði okkar hafi verið
hafnað nema að svo ólíklega vilji til
að sænska rannsóknarstofan borgi
lögreglunni íslensku fyrir að fá að
vinna með sýnin frá henni,“ skrifar
Kári sem kveður ráðherra fara með
„ábyrgðarlaust blaður“.“ sjá síðu 11
lögreglumál Grænlensk kona á
þrítugsaldri segir Thomas Møller
Olsen, sakborninginn sem grunaður
er um að hafa banað Birnu Brjáns
dóttur, hafa nauðgað sér árið 2011.
Thomas var sýknaður í málinu í
héraðsdómi Ilulissat.
Aðspurður hvort lögregla hafi
skoðað þetta grænlenska sakamál í
rannsókn sinni á máli Birnu Brjáns
dóttur segir Grímur Grímsson yfir
lögregluþjónn að þeir hafi skoðað
sakaferil mannanna en muni ekki
tjá sig nánar um þau mál.
Dánarorsök Birnu, sem fannst
látin nærri Selvogsvita 22. janúar,
var drukknun að því er fram kom í
fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöld.
Grímur segist ekki vilja tjá sig um
þetta atriði.
Fyrrnefnda konan á Grænlandi,
sem vill ekki koma fram undir
nafni, segir hvarf Birnu Brjánsdótt
ur hafa reynst sér afar erfitt. Málið
hafi neytt hana til að endurupp
lifa verknaðinn og vakið upp sárar
minningar.
Í samtali við Fréttablaðið rifjar
konan upp að árið 2011 hafi hún
verið gestur í samkvæmi en farið
afsíðis til að ræða við þáverandi
kærasta sinn í síma, en sá var ekki
staddur í sama bæ og hún.
Á meðan símtalið átti sér stað
lagðist konan í rúm í svefnherbergi
íbúðarinnar og eftir að samtalinu
lauk sofnaði hún.
Konan segist hafa vaknað við
að Thomas var að nauðga henni.
Hún hafi ekki getað spornað við
verknaðinum, annaðhvort verið of
svefndrukkin vegna ölvunar eða
hreinlega frosið.
Eftir atvikið segist konan hafa
grátið sárt og kært málið til lög
reglunnar daginn eftir. Lögreglan
fór með hana á sjúkrahús þar sem
lífsýnum var safnað og henni veitt
aðhlynning.
Konan segir að sæði Thomasar
hafi fundist í leggöngum hennar en
það hafi ekki nægt til sakfellingar
þar sem ættingi hans, sem einnig
var í samkvæminu, hafi borið fyrir
dómstólnum að samfarirnar hafi
verið með samþykki beggja.
Mál Birnu hefur að sögn konunn
ar tekið mikið á hana. Margir, sem
þekki til tengsla hennar og Thom
asar, hafi haft samband vegna máls
ins og hún upplifi mikið áreiti.
Konan vill koma því á framfæri
að með sögu sinni vilji hún hreinsa
borðið en muni ekki tjá sig að neinu
öðru leyti um málið eða gefa neinar
frekari upplýsingar um þessa lífs
reynslu sína. – snæ / sjá síðu 6
— m e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —3 2 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r Þ r i ð j u d a g u r 7 . f e b r ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
skoðun Logi Einarsson minnist
Gylfa Þ. Gíslasonar. 10
sport Gunnar Nel
son bíður eftir næsta
andstæðingi. 12
menning Dómur
um Vísindasýn
ingu Villa. 34
lÍfið Með
tilkomu smá
forritsins
Band Up er
orðinn leikur
einn að stofna
hljómsveit. 38
plús 2 sér-
blöð l fólk
l bÍlar
*Samkvæmt prentmiðlakönnun
Gallup apríl-júní 2015
frÍtt
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
Sakaði þann
sem er í haldi
um nauðgun
Lögreglan hefur farið yfir sakaferil mannsins sem
grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur.
Hann var sýknaður af nauðgun á Grænlandi fyrir
fjórum árum. Konan sem kærði manninn þá segir
mál Birnu hafa haft afar mikil og slæm áhrif á sig.
Hefðu mátt sleppa
skipverjanum fyrr
Verjandi skipverjans, sem sleppt
var að loknu tveggja vikna gæslu-
varðhaldi í síðustu viku, telur að
lögreglu hafi mátt vera ljóst fyrr
að umbjóðandi hans væri saklaus.
Maðurinn sat í einangrun í tvær
vikur og hafði einungis samskipti
við verjanda sinn og fangaverði
en heimildir herma að einangr-
unarvistin hafi reynst manninum
einstaklega þungbær. Verjandinn
segir manninn hafa reynt eftir
fremsta megni að upplýsa málið
strax frá upphafi yfirheyrslna.
– snæ / sjá síðu 6
Sakar ráðherra um blaður
um rannsóknir á lífsýnum
Dómsmálaráðherra
líður ekki fyrir
tunguhaft þegar hún er
beðin að tjá sig um málefni
sem hún veit
lítið sem
ekkert um.
Kári Stefánsson,
forstjóri ÍE
Skútan A var sjósett í upphafi mánaðarins. A hefur verið kölluð stærsta sjófæra skúta í heimi en möstrin ná upp í
143 metra hæð. Á skútunni er sundlaug og íbúðir á átta hæðum. Skipið var smíðað í Kiel fyrir rússneska auð-
jöfurinn Andrej Melnitjenko sem greiddi jafnvirði 51 milljarðs króna fyrir fleyið. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
0
7
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
D
-D
6
4
4
1
C
2
D
-D
5
0
8
1
C
2
D
-D
3
C
C
1
C
2
D
-D
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K