Fréttablaðið - 07.02.2017, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 07.02.2017, Blaðsíða 22
300 öskrandi hestöfl og endalaust grip, því hann var á nettum nöglum. Til taks voru einnig Subaru BRZ, Subaru Levorg og Subaru XV. Vart þarf að taka það fram að skemmti- legast var að leika sér á Subaru WRX STI bílnum og hægt að fara brautina hraðast á honum og með mestum tilþrifum. Svo til aldrei var bíllinn beinn á braut og listin mest fólgin í því að aka bílnum á hlið gegnum alla brautina. Alls ekki leiðinleg iðja það. Löðursveittir af spenningi Eftir örfáar mínútur stigu ökumenn löðursveittir út úr bílunum eftir átökin, sveittir eftir spenninginn og átökin við stýrið og pedalana. Það er eiginlega ekki hægt að biðja um það skemmtilegra. Meira að segja var í góðu lagi að fara að mörkum getu bílsins og tefla á tvær hættur því mjög óvarlega þurfti að fara til að vefja bílnum um nærliggjandi tré, en þess var gætt að dágóður spotti af djúpum snjó væri á milli brautar og trjáa. Þó mátti litlu muna að svo færi einu sinni, en það skilgreindum við landarnir að væri eingöngu gert til að stækka brautina! Oft mátti heyra mikil öskur um borð í bíl- unum og stundum erfitt að greina á milli hræðsluópa og gleðistuna yfir á stundum vel heppnuðum akstri. Þessa upplifun þarf hver bílaáhuga- maður að reyna áður en yfir lýkur. Það er reyndar hægt að kaupa sér reynsluakstur á margs konar bílum í Rovaniemi og bent á netið í því sambandi. „Handling, Performance og Forest drive“ Þá voru eftir fjórar mismunandi brautir sem báru nöfnin Handling, Performance og Forest drive. Það verður að segjast að ekki vorum við hættir að drifta í Handling-brautinni og náðum líklega enn meiri tökum á driftinu fyrir vikið. Hún var þó ekki eins löng og Drifting-brautin og því náðist ekki eins mikill hraði í henni, en skemmtileg samt. Þá tók við nokkurs konar torfærubraut þar sem bíllinn fékk stundum að missa grip á sumum hjólum og kom þá magnað fjórhjóladrif Subaru vel í ljós. Að endingu kom svo að miklum skógarakstri, nokkuð langri leið þar sem svo torfært var að einn leiðang- ursstjórinn festi bíl sinn fljótt. Það kom þó ekki fyrir hina íslensku öku- menn, enda ansi vanir snjónum hér á landi. Dagurinn endaði svo með veglegum kvöldverði í mikilli íshöll þar sem setið var á klakasætum með hreindýrshúðum á. 7 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r8 Bílar Ef allir Íslendingar fengju að skreppa til Rovaniemi í Finnlandi og leika sér á Subaru-bíl í snjónum þar væri landinn örugglega mun hæfari til vetraraksturs. Að minnsta kosti á það við greinarritara, en hann naut þess fyrir stuttu að aka hinar ýmsu þrautabrautir sem þeir Subaru-menn höfðu lagt rétt fyrir utan vetrarborgina finnsku, en hún liggur akkúrat á norðurheimskauts- baugnum, líkt og Grímsey. Rovan- iemi er reyndar eins konar heima- völlur vetraraksturs og þar hafa heimamenn og bíla- og dekkjafram- leiðendur útbúið frábærar brautir til að reyna getu bíla í akstri í snjó og ekki skortir fjölbreytnina í lagn- ingu brautanna, hæfni kennaranna þar og fjölda gesta sem heimsækja Rovaniemi til að reyna hæfni sína. Rovaniemi sem heimavöllur fyrir Subaru Bílar Subaru eru einkar heppilegir til slíks aksturs, þeir eru allir fjór- hjóladrifnir, ef undan er skilinn sportbíllinn Subaru BRZ sem fram- leiddur var í samstarfi við Toyota, allir eru þeir frekar háir undir lægsta punkt, allir fremur léttir og því mjög hentugir til að leika sér á í snjónum. Það var heldur ekki leiðinlegt að kynnast getu þeirra við þessar aðstæður og hvað mátti bjóða þessum hæfu bílum. Ferða- lagið til Rovaniemi er langt þó að borgin teljist á Norðurlöndunum, en fyrst varð að fljúga til höfuð- borgarinnar Helsinki og þaðan taka flug til á Rovaniemi, sem tók furðu langan tíma. Drift á 300 hestafla Subaru WRX STI Akstursdagurinn var hreint ævin- týri og fjórskiptur að því leyti að um fjórar brautir var að ræða og í hverri þeirra mátti kynnast hæfni bílanna við ólíkar aðstæður. Fyrst braut- anna hjá okkur Íslendingunum var driftbraut, hrikalega skemmtileg og ekki skemmdi bílaúrvalið. Fyrstan þarf að telja Subaru WRX STI bíl, Driftað á Subaru í Rovaniemi Subaru BRZ var alls ekki slæmt ökutæki heldur í snjónum í Rovaniemi. Subaru WRX STI er stórkostlegur bíll til að reyna hæfileika sína á í driftinu í snjónum. Fátt er meira spennandi fyrir bílaáhugamenn en að aka allt að 300 hestafla fjórhjóladrifnum Subaru-bíl í snjónum í Rovaniemi í norðurhluta Finnlands. Það bauðst þó íslenskum ökumönnum fyrir skömmu og driftið fékk nýja merkingu. Gæðavottaðar álfelgur AXARHÖFÐA 16 5673322 Felgur.is LED Perur Flott ljós 0 7 -0 2 -2 0 1 7 0 5 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 D -F 8 D 4 1 C 2 D -F 7 9 8 1 C 2 D -F 6 5 C 1 C 2 D -F 5 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.