Fréttablaðið - 07.02.2017, Síða 34

Fréttablaðið - 07.02.2017, Síða 34
möndlur bláber trönuber kotasæla 1 6 -0 2 5 0 -H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nærandi millimál … er létt mál Gríptu með þér kotasælu eða gríska jógúrt Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og hollum og stökkum toppi. Kotasæla með berjum og möndlum eða grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum. Leikhús Vísindasýning Villa HHHHH höfundar: Vilhelm Anton Jónsson, Vala kristín eiríksdóttir og Vignir Rafn Valþórsson Borgarleikhúsið – Litla sviðið Leikarar: Vilhelm Anton Jónsson og Vala Kristín Eiríksdóttir Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir Lýsing og myndband: Magnús Helgi Kristjánsson Tónlist: Vilhelm Anton Jónsson Hljóð: Garðar Borgþórsson Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir Á síðastliðnum árum hefur Vísinda Villi víkkað huga fjölmargra barna með tilraunum sínum og komið sér vel fyrir í hjörtum þeirra. Hann hvetur börn en ekki síður fullorðna að vera ávallt forvitin og að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Nú er Villi mættur á Litla svið Borgarleikhússins að kynna okkur frekar fyrir ótrúlegum heimi vísind­ anna og fær að þessu sinni hjálp úr óvæntri átt … Vilhelm Anton Jónsson er fjöl­ hæfur listamaður og hlýr sem nær áhorfendum á sitt band frá fyrsta lagi sem hann framkallar úr raf­ magnsgítarnum. Vala Kristín Eiríks­ dóttir villist inn í sýninguna eftir að hafa heillast af tónlistinni en hún er að æfa sitt eigið leikrit. Samvinna þeirra á sviðinu er hin fínasta þar sem góð kómísk tímasetning Völu og smitandi einlægni Villa blandast skemmtilega saman. Því miður, eins og með svo margar sýningar á þessu leikári, er handritið hvorki sannfærandi né nægilega vel unnið. Hugmyndir eru útskýrðar frekar en framkallaðar á sviði. Alltof mörgum vísunum er hent fram án úrvinnslu og stöðug notkun á orðinu „mónólóg“ var þreytandi, sérstaklega þegar fallegri íslensk orð á borð við „einræða“ og „eintal“ eru í boði. Eftirfarandi þráður í handritinu er gott dæmi: Æðsti draumur Völu er að syngja ástardúett úr kvik­ myndinni Moulin Rouge! en hana vantar sárlega söngfélaga. Spurn­ ingin er þessi: Hvað er langt söng­ atriði með samansettu lagi úr fimm­ tán ára gamalli bíómynd að gera í barnasýningu árið 2017? Bæði er Elephant Love Medley einstaklega erfitt í söng, sem þau bæði rétt kom­ ast í gegnum, og passar alls ekki inn í sýninguna. Hugmyndin um stórt söngatriði er góð en úrvinnslan afleit. Leikstjórinn Vignir Rafn Val­ þórsson hefði betur sýnt meira af töfrum vísindanna og leikhússins frekar en að segja frá þeim. Margt er samt sem áður mjög gott s.s. atriði þar sem Villi reynir að rata í rétta lýsingu og endar einn í vonskuveðri. Líka þegar klósettrúlla vekur gríðar­ lega kátínu meðal yngstu áhorfend­ anna, þarna voru þau hjartanlega boðin velkomin á alvöru vísinda­ sýningu með hörkustuði. Tónlistin er valin af Villa sjálfum en er ekki nægilega vel komið fyrir innan sýningarinnar. Sigríður Sunna Reynisdóttir hannar bæði búningana og leik­ myndina af skarpskyggni og upp­ finningasemi. Krítartöflurnar þjóta um sviðið, leynihólf eru framkölluð og Rube Goldberg maskínan er afburðasnjöll smíði. Þá eru flestir búningar og hröð búningaskipti Völu augnakonfekt. En af hverju þurfti tilraunajakkinn hennar endilega að vera aðþrengdur? Myndbandavinna Magnúsar Helga á lokametrunum er sérlega góð en hún er svolítið samhengislaus ef myndirnar af fólkinu sem er varpað á leikmyndina eru ekki útskýrðar. Sömuleiðis er lýsingin bæði fjöl­ breytt og faglega framsett. Öll grunnefni eru fyrir hendi í Vísindasýningu Villa og á blaði hefur sýningin alla burði til að sprengja skemmtunarskalann. En eins og hálfkláruð Goldberg vél þá höktir handritið alltof mikið til að sýningin gangi nægilega vel upp. Aftur á móti þegar Vísindasýning Villa hrekkur í gang þá er hún hin besta skemmtun. Sigríður Jónsdóttir NiðuRstAðA: Prýðilegasta skemmtun þrátt fyrir gloppótt handrit. Vísindamall sem nær aldrei suðupunkti Vala Kristín Eiríksdóttur og Vilhelm Anton Jónsson í miklu stuði í hlutverkum sínum í Vísindasýningu Villa. Mynd/GríMur BJArnASon Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 7 . f e B R ú A R 2 0 1 7 Þ R i ð J u D A G u R18 M e N N i N G ∙ f R É t t A B L A ð i ð menning 0 7 -0 2 -2 0 1 7 0 5 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 E -0 2 B 4 1 C 2 E -0 1 7 8 1 C 2 E -0 0 3 C 1 C 2 D -F F 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.