Fréttablaðið - 07.02.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.02.2017, Blaðsíða 24
Kostir og gallar VolVo V90 l Dísilvél l 235 hestöfl l framhjólaDrif Eyðsla 4,9 l/100 km í bl. akstri Mengun 129 g/km CO2  Hröðun 7,0 sek. Hámarkshraði 250 km/klst. Verð frá 7.290.000 kr. Umboð: Brimborg l Útlit l aksturseiginleikar l Öryggi l Búnaður l Engar bensínútgáfur í boði l Erfitt að ná uppgefinni eyðslu VolVo V90 Finnur thorlacius reynsluakstur Sala stórra langbaka hefur verið á hröðu undanhaldi í heiminum á undanförnum árum, en það er ekki vegna þess að þar fari ópraktískir bílar. Ástæðan liggur mun frekar í því að bílkaupendur hafa í æ meiri mæli hallað sér að jepplingum og jeppum er kemur að stærri bílum sem tekið geta mikinn farangur. Þeir hinir sömu þurfa þó í leiðinni að sætta sig við verri aksturseigin­ leika því jeppar og jepplingar ná seint þeim aksturseiginleikum sem góðir fólksbílar búa yfir. Það er því fagnaðarefni að Volvo hefur ekki sagt skilið við bíla eins og V90 lang­ bakinn. Hann er sem betur fer fram­ leiddur samhliða S90 fólksbílnum sem flokkast sem „sedan“ bíll með skotti. Volvo V90 og S90 bílarnir leystu af Volvo S80 og V70 bílana og voru þeir kynntir til leiks á seinni hluta síðasta árs. Það er þó dagljóst að Volvo hefur ekki helst hugsað til Bandaríkjamarkaðar með fram­ leiðslu V90 langbaksins því þar í landi er afar lítill markaður fyrir langbaka. Svo rammt kveður að því þar að bæði BMW og Mercedes Benz hafa hætt að selja langbaksgerðir sínar þar í landi og Cadillac hefur hætt við smíði allra langbaka, þeir einfaldlega seljast ekki. Ógnarfallegur, innan sem utan Volvo V90 og S90 eru stærstu fólks­ bílar sem Volvo smíðar og báðir afar myndarlegir vagnar, eins og flest nýtt sem frá Volvo kemur þessa dag­ ana. Það verður ekki annað sagt en að Volvo V90 sé einfaldlega gullfal­ legur bíll, sem mörgum finnst slá við þýskum samkeppnisbílum sínum í Volvo V90 ryður nýjar brautir Volvo V90 er með fallegustu bílum götunnar, troðinn nýjasta tæknibúnaði og aldrei þarf að efast um öryggi bíla Volvo. Akstursánægjan er auk þess ómæld í þessum stefnumarkandi bíl sem setur ný viðmið fyrir samkeppnina. Hefur nú þegar verið hlaðinn verðlaunum og hrósi. VolVo V90 Leysir af hólmi V70 langbak- inn og eins og sést hefur Volvo lukkast vel við teikniborðið. mynd/gVa SænSki fáninn fær sinn sess á hliðum fram- sæta bílsins innréttingin í Volvo V90 er í einu orði sagt stórglæsileg en um leið í anda skandinavískrar naumhyggju EfniSVal er allt hið vandaðasta og hvergi til sparað við að gera þennan lúxusbíl sem best úr garði útliti. Þó svo V90 og S90 bílarnir séu báðir mjög svo fallegir bílar þá er það skoðun undirritaðs að V90 langbakurinn sé þeirra fríðari og á það gjarnan við langbaksgerðir bíla. Það er ekki bara ytra útlit V90 sem er sláandi fallegt heldur á það einn­ ig við innanrými bílsins. Þar ræður glæsileikinn ríkjum en í leiðinni skandinavískur einfaldleiki. Innan­ rými V90 og S90 bílanna er næstum eins og í jeppanum XC90 og er þar ekki leiðum að líkjast og hefur inn­ rétting þeirra allra verið mærð og verðlaunuð frá komu þeirra. Bara dísilvélar í boði Vélarnar sem eru í boði í Volvo V90 á Íslandi eru því miður allar dísilvélar, 150, 190 og 235 hestafla og allar aðeins 2,0 lítra. Bera þær nöfnin D3, D4 og D5. Volvo mun einnig bjóða V90 og S90 bílana í T8 útgáfu sem er 407 hestöfl og knúin bensínvél og rafmagnsmótorum. Þannig búnir eru þessir bílar orðnir að hreinræktuðum spyrnukerrum. Í reynsluakstri V90 að þessu sinni var 235 hestafla vélin undir húddinu og alveg óhætt er að segja að þar fari góður vélarkostur sem færir bros á andlit ökumanns. Með henni er allt­ af nægt afl til taks og bíllinn togar eins og enginn sé morgundagurinn. Þrátt fyrir allt þetta afl og 480 Nm tog er uppgefin eyðsla 4,9 lítrar á hverja 100 ekna kílómetra. Ekki náðist nú alveg sú tala í reynslu­ akstrinum, en bíllinn var með milli 7 og 8 lítra í eyðslu þó svo akstur­ inn færi að mestu fram á ágætum vegum Suðurlandsins, allt upp að Gullfossi. Þó nokkru munar á verði D3, D4 og D5 útgáfa V90. Ódýrasta útgáfan, D3 kostar frá 7.290.000 krónum en sú dýrasta, D5 í In­ scription útfærslu kostar 9.290.000 kr. eða tveimur milljónum meira. Verð T8 útgáfunnar er óljóst enn. Rafdrifnar tvær forþjöppur Átta gíra sjálfskipting er tengd við dísilvélarnar í D4 og D5 útgáfunum, en 6 gíra sjálfskipting í D3 útgáf­ unni. Sú átta gíra reyndist mjög vel í reynsluakstrinum og skilaði miklu afli vélarinnar hnökralaust á öllu snúningssviðinu. Mikið afl dísilvélarinnar í D5 útgáfunni skýrist að miklu leyti af því að við hana eru tengdar tvær forþjöppur og rafdrifið kerfi sér um að fóðra þær lofti við inngjöf og með því gætir svo til einskis forþjöppu­ hiks og viðbragðið því hreint með ágætum. Eftirtektar vert er hve þessi vél er hljóðlát og vart hægt að finna þessu jöfnuð í nokkrum öðrum dísilbíl keppinautanna. Aksturs­ eiginleikar V90 eru frábærir og guð hvað þessi bíll fer vel með farþega sína alla, ekki síst vegna frábærra sæta bílsins. Flutningsrými V90 er gott og ætti að duga flestum 363 daga ársins, en þó verður að segja að bilið milli gólfs og þaks í rýminu sé ekki sérlega mikið. Það er langt í frá slæmur kostur að geta keypt einn fallegasta bíl götunnar í dag og í leiðinni einn þann stærsta í fólksbílaflokki á rúmlega 7 millj­ ónir króna. Þó mun það vafalaust freista margra að bæta við tveimur milljónum og fá þá bílinn með öskrandi afli og í sparifötunum. Fyrir þá milligjöf má þó kaupa eins og einn smábíl. En þegar öllu er á botninn hvolft eru allar útgáfur þessa ógnarfallega bíls verðar síns virði. Þessi bíll er rós í hnappagat Volvo og viðmið fyrir aðra bíla­ framleiðendur. 7 . f E b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r10 Bílar 0 7 -0 2 -2 0 1 7 0 5 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 E -0 C 9 4 1 C 2 E -0 B 5 8 1 C 2 E -0 A 1 C 1 C 2 E -0 8 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.