Fréttablaðið - 13.02.2017, Qupperneq 2
gæði – þekking – þjónusta
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
TURBOCHEF OFNAR
Kynntu þér úrval
TurboChef ofna hjá okkur
TURBOCHEF SOTA - TURBOCHEF TORNADO 2 - TURBOCHEF HIGHHBATCH 2
TURBOCHEF ENCORE - TURBOCHEF FÆRIBANDAOFNAR
TURBOCHEF FIRE PIZZAOFN - TURBOCHEF i3 & i5 TOUCH
FÁÐU TILBOÐ
Veður
Fremur hæg sunnan- og suðaustanátt
og smá skúrir eða slydduél í dag, en létt-
skýjað norðaustanlands. Hiti 0 til 8 stig,
mildast syðst. sjá síðu 18
Dönsuðu Zumba fyrir Unicef
Zumbakennarar World Class leiddu í sameiningu 90 mínútna Zumbatíma í gær til styrktar UniCef á Íslandi og starfi stofnunarinnar í
Sýrlandi. Þátttakendur greiddu tvö þúsund krónur fyrir þátttökuna og rann allur aðgangseyrir beint til UniCef. Fréttablaðið/Eyþór
Tyrkland Efnt verður til þjóðar
atkvæðagreiðslu í Tyrklandi um
aukin völd forsetans. Reiknað er með
að hún verði haldin 16. apríl.
Þingið samþykkti í síðasta mánuði
frumvarp um stjórnarskrárbreyt
ingu, en ekki með nægilega miklum
meirihluta til að komast hjá þjóðar
atkvæðagreiðslu.
Recep Tayyip Erdogan forseti hefur
nú undirritað frumvarpið og þar með
opnað á þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Breytingin þýðir að völd forsetans
verða aukin verulega, en Erdogan
hefur stefnt að slíkum breytingum
lengi. Þær hafa verið gagnrýndar fyrir
að veita forsetanum allt of mikil völd.
Hann verði nánast einráður í landinu.
Meðal annars verður Erdogan gert
kleift að ríkja í tvö kjörtímabil til við
bótar. – gb
Tyrkir kjósa
um aukin völd
forsetans
recep tayyip Erdogan tyrklandsforseti.
Nordicphotos/aFp
Þýskaland FrankWalter Steinmeier
var í gær kjörinn forseti Þýskalands.
Áður gegndi Steinmeier embætti
utanríkisráðherra. Steinmeier fékk
931 atkvæði af 1.260 á samkomu í
þinghúsinu í gær. Auk þingmanna
hafði atkvæðisrétt jafn stór hópur
almennra Þjóðverja, þeirra á meðal
var til að mynda Joachim Löw, þjálfari
þýska karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Steinmeier kemur úr flokki Jafn
aðarmanna, samstarfsflokki Kristi
legra demókrata sem Angela Merkel
kanslari fer fyrir. Hluti ástæðunnar
fyrir stórsigri Steinmeiers er að
flokkur Kristilegra demókrata kom
sér ekki saman um forsetaefni og lýsti
yfir stuðningi við Steinmeier. – þea
Steinmeier
kjörinn forseti
Frank-Walter
steinmeier
slys Alvarlegt umferðarslys varð við
Laxárbrú í í Leirársveit, milli Hval
fjarðar og Borgarfjarðar, um fimm
leytið í gær. Þar rákust saman tveir
bílar.
Í frétt á vef héraðsblaðsins Skessu
horns segir að jeppi og jepplingur
hafi skollið saman, en við það fóru
bílarnir út í vegrið en stöðvuðust
inni á veginum. Sex manns voru
í bílunum og voru þrír fluttir með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á
sjúkrahús í Reykjavík en aðrir þrír
voru fluttir með sjúkrabílum. – jhh
Sex fluttir
á slysadeild
saMGÖnGur Skiptar skoðanir eru
meðal sveitarstjóra sveitarfélaga í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins um
ágæti hugmynda samgönguráðherra
um vegatolla. Bæjarstjóri Akraness
vill að daglegir vegfarendur fái veru
legan afslátt.
Sagt hefur verið frá því undanfarna
daga að í samgönguráðuneytinu sé
unnið að tillögum um stórtækar
endurbætur á vegakerfinu sem fjár
magnaðar yrðu með gjaldtöku á
vegum frá höfuðborgarsvæðinu.
Meðal hugmynda sem liggja fyrir
er tvöföldun Reykjanesbrautar og
austur fyrir Selfoss með nýrri brú
yfir Ölfusá. Þá er einnig verið að
kanna Vesturlandsveg frá Reykjavík
til Borgarness.
„Þetta hefur ekki verið rætt hjá
okkur síðan 2010 þegar áþekkar
hugmyndir voru uppi,“ segir Ásta
Stefánsdóttir, bæjarstóri Árborgar.
Henni þykir líklegt að málið verði
tekið fyrir í sveitarstjórninni á næst
unni. Hún er ekki hrifin af hugmynd
inni.
„Ég held að þetta leggist ekki vel
í fólk. Það er furðulegt að ekki skuli
vera hægt að fara í vegabætur þar
sem umferðin er langmest án þess
að láta íbúa greiða fyrir það.“
Að sögn Kjartans Más Kjartans
sonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar,
hefur málið ekki verið rætt með
formlegum hætti í bæjarstjórn og
enn sem komið er sé það ekki á dag
skrá.
„Persónulega líst mér ekki illa á
þessar hugmyndir. Við höfum ýtt á
það að tvöföldun Reykjanesbrautar
verði lokið og ef þetta verður til þess
að flýta eða hjálpa til við að koma
því í höfn þá held ég að það myndi
skapast sátt um það,“ segir Kjartan.
Að mati Regínu Ásvaldsdóttur,
bæjarstjóra Akraness, er hugmynd
samgönguráðherra allrar athygli
verð. Íbúar bæjarfélagsins hafi búið
við gjaldtöku í 18 ár með Hval
fjarðar göngunum. Hún áréttar að
jafnræði eigi að ríkja milli landshluta
hvað gjaldtökuna varðar.
„Í umræðu um gjaldtöku í tengsl
um við hugsanlega Sundabraut þá
höfum við bent á mikilvægi þess að
Vestlendingar sitji við sama borð
og aðrir landsmenn. Ef vegatollar á
þessum þremur leiðum verða fyrir
valinu er nauðsynlegt að tryggja
að þeir sem fara daglega um þjóð
vegina fái verulegan afslátt,“ segir
Regína.
Hugmyndin um vegatolla hafði
ekki verið rædd við aðra ríkisstjórn
arflokka áður en sagt var frá henni
enda enn á hugmyndastigi. Þetta
staðfesta Björt Ólafsdóttir umhverf
isráðherra og Þorsteinn Víglundsson,
félags og húsnæðismálaráðherra.
johannoli@frettabladid.is
Daglegir vegfarendur
fái verulegan afslátt
Hugmyndir um vegatolla á vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu eru í vinnslu
í samgönguráðuneytinu. Bæjarstjórar í nærliggjandi sveitarfélögum eru ósam-
mála um ágæti tollanna. Hugmyndin ekki verið rædd í ríkisstjórninni.
bæjarstjóra reykjanesbæjar líst ágætlega á vegatolla ef þeir verða til þess að flýta
fyrir tvöföldun reykjanesbrautarinnar. Fréttablaðið/Valli
regína
Ásvaldsdóttir,
bæjarstjóri
akraness
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri í
reykjanesbæ
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M á n u d a G u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
3
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-E
6
6
8
1
C
3
7
-E
5
2
C
1
C
3
7
-E
3
F
0
1
C
3
7
-E
2
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K