Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2017, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 13.02.2017, Qupperneq 6
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Eldhúsvaskar og -tæki Schutte Hoga eldhústæki 11.590 Oulin Stálvaskur 0304 2 hólf 62x47cm 0,8mm* 17.890 Oulin Stálvaskur F201 2 hólf 87x49 1,2mm* 39.990 Oulin Stálvaskur F301A 1 hólf 50x45cm 1,2mm* 18.890 Oulin Stálvaskur FTR101R 89x51cm 1,2mm* 25.890 Oulin Florens eldhústæki 11.890 Schutte Falcon eldhústæki 7.790 Oulin stálvaskur F302A 1 hólf 59x53cm 1,2mm* 19.790 SCHÜTTE * þykkt á stáli product design award fornleifar Guðbrandur Jónsson, sem í fyrrasumar gerði mælingar aust- ast á Hafnarskeiðinu nærri Þorláks- höfn  til að finna fallbyssurnar af danska herskipinu Gautaborg, mun fá atbeina sveitarfélagsins Ölfuss til að sækja um styrk í Danmörku til að halda leitinni áfram. Gautaborg fórst haustið 1718 er það átti að fylgja kaupskipum frá Íslandi til Danmerkur. Talið er að fjórir menn hafi farist en aðrir úr áhöfninni sem var á bilinu 250 til 300 manns komust í land. Þeir höfðu vetursetu þar sem öll skip voru farin utan það haustið. Flestum var komið fyrir á bæjum um Suðurlandið og eignuðust sumir þar börn. „Sú staða hefur komið upp að fall- byssurnar fimmtíu og annað sem fór í sjóinn tilheyrir ennþá Konungsrík- inu Danmörk og eða ríkisstjórn Dan- merkur samkvæmt upplýsingum frá IMO stofnun Sameinuðu þjóðanna, þar sem skipið er herskip,“ segir í bréfi Guðbrands Jónssonar til Ölfuss. Hann hafi leitað eftir styrk frá Danmörku, fyrir milligöngu sendiráðs Dana á Íslandi. „Ég sendi inn erindi til Dronning Margrethe II's Arkæologiske fond, með fyrirspurn um það hvort sjóður- inn gæti styrkt mælingu og leit að munum á hafsbotni. Svar barst fyrir jólin, þar sem fram kom að ekki væri útilokað að styrkur fengist, ef eftir því væri leitað,“ segir Guðbrandur sem biður sveitarfélagið og Byggðasafn Ölfuss að fara fyrir umsókninni. „Það er mín skoðun að það væri farsælast, ef við finnum muni, að varðveita þá á safninu í nafni eigenda, danska ríkis- ins eða Konungsríkisins Danmerkur, á Byggðasafni Ölfuss,“ skrifar Guð- brandur. Menningar- og markaðsnefnd Ölf- uss samþykkti ósk Guðbrands með því skilyrði að sveitarfélagið beri engan kostnað af málinu. „Þetta er mjög áhugavert,“ segir Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir, menn- ingar- og markaðsfulltrúi Ölfuss. „Tæknilega séð er skipið ennþá í eigu danska konungsríkisins. Við sjáum jafnvel fyrir okkur að hafa þessa muni til sýnis á byggðasafninu en svo getur vel verið að danska ríkið, ef það vill styrkja okkur, krefjist þess að fá mun- ina til sín.“ Aðspurð segir Katrín ámóta hluti sem tengjast skipsskaða ekki að finna á byggðasafninu. „Þetta yrði mjög sérstakt og með stærri sögulegum munum. Þótt það séu margir munir sem tengjast sjósókn á byggðasafn- inu þá eru engir af þessu kalíberi,“ segir Katrín sem kveður fallstykkin því mundu verða mikinn feng. „Þau mundu trekkja mikið að.“ Katrín segir lítið vitað um hugsan- legt ástand fallbyssanna. „Og ég held að sé ekki hundrað prósent öruggt að þær leynist þarna.“ gar@frettabladid.is Leita að fallbyssum undan Hafnarskeiði Menningarnefnd Ölfuss hefur fallist á að sveitarfélagið fari fyrir umsókn um styrk frá fornleifasjóði Margrétar II Danadrottningar til að leita að fimmtíu fall- byssum úr herskipinu Gautaborg sem fórst undan Hafnarskeiði haustið 1718. Herfang Dana Göteborg (Giothenborg, Gotten- borg) var sænskt herskip sem Danir hertóku í Norðurlandaófriðnum mikla og var það nýtt af danska sjó- hernum en hélt nafninu. Það fylgdi dönskum kaupskipum til Íslands vorið 1718 en herskip höfðu fylgt þeim í siglingum til og frá landinu frá árinu 1714 vegna sjórána Svía. Skipið var línuherskip smíðað í Karlskrona og sjósett árið 1696. Það var um 900 tonn að stærð með 44 til 50 fall- byssur og bar 250-300 menn. Heimild: Wikipedia. Þótt það séu margir munir sem tengjast sjósókn á byggðasafninu þá eru engir af þessu kalíberi. Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi Ölfuss  Heimsmeistarinn á meðal ungra aðdáenda Heimsmeistari kvenna í skák, hin úkraínska Mariya Muzychuk, gaf aðdáendum sínum eiginhandaráritanir áður en hún tefldi blindskák gegn ungum skákmönnum í Valencia á Spáni. Fréttablaðið/EPa fiskeldi Sigurður Pétursson, fram- kvæmdastjóri Arctic Sea Farm, telur ályktun Landssambands veiðifélaga (LV) um fyrirætlanir fyrirtækisins um eldi í Ísafjarðardjúpi og rekstur stórs eiganda þess, Norway Royal Salmon (NRS), byggða á rangfærslum og mis- skilningi. LV lýsti þungum áhyggjum af fyrirætlunum Arctic Sea Farm um stóraukið laxeldi í sjókvíum í Ísa- fjarðardjúpi og Arnarfirði. Ekki síður gagnrýndi LV að NRS stundaði „grænt eldi“ í heimalandinu Noregi, en ekki hérlendis. Sigurður segir að LV fullyrði að fyrir tæki hans óski eftir leyfi til notk- unar á norskum laxastofni. Stað- reyndin sé sú að „hingað til lands hafi ekki verið flutt seyði til laxeldis í meira en 30 ár, þótt uppruni seiðanna sé upphaflega norskur. Hann segir að ályktun LV megi skilja sem svo að meginstarfsemi NRS felist í eldi á ófrjóum laxi í Noregi. Það sé alrangt. „Vissulega er NRS leiðandi aðili á þessu sviði í Noregi. Hér er þó enn sem komið er aðeins um tilraunaverk- efni að ræða sem NRS hefur metnað til að kanna til hlítar, einnig hér á landi í verkefni sem nú er í burðar- liðnum á vegum Arctic Sea Farm, NRS og fleiri aðila,“ segir Sigurður. „Að notkun geldstofna ryðji sér nú mjög til rúms í Noregi eins og fullyrt er í ályktun LV virðist því einungis ætlað að afvegaleiða umræðuna,“ segir Sigurður og bætir við. „Við lítum svo á að með NRS sem kjölfestueiganda að Arctic Sea Farm verði unnt að standa eins vel að verki og nokkur kostur er fyrir uppbygg- ingu atvinnugreinarinnar í heild hér við land enda er dýrmæt sérfræði- þekking stjórnenda NRS óumdeild á alþjóðavísu. Með aðstoð NRS byggist upp enn frekari þekking á því hvern- ig best er að byggja upp sjálfbæra atvinnugrein í sátt við samfélag og umhverfi.“ – shá Eldismenn segja veiði- félög fara með fleipur Eldismenn segja norskættað eldiskyn þeirra ekki ógna íslenska laxinum. Fréttablaðið/Eyþór 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 3 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 8 -0 D E 8 1 C 3 8 -0 C A C 1 C 3 8 -0 B 7 0 1 C 3 8 -0 A 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.