SÍBS blaðið - 01.01.2007, Blaðsíða 38
8
Nú eru að hefjast framkvæmdir við að
setja lyftu í SÍBS húsið, en það hefur lengi
verið sjúklingum þyrnir í augum hvað erf-
iðir stiginn upp á aðra hæð getur verið.
Þetta er snigillyfta frá HÉÐINN Schindler
og er með mjúkstarti sem dregur úr höggi
eða hristingi þegar hún fer af stað.
Yfirsmiður við undirbúningsframkvæmdir
er Hallbjörn Þorbjörnsson sem hefur verið
þúsundþjalasmiður og ráðgjafi SÍBS um
langt árabil, hvort heldur við framkvæmdir
innan eða utandyra
Hér má sjá Hallbjörn á vettvangi.
Lyfta verður sett í SÍBS húsið
F
r
á
S
ÍB
S
Þar sem tryggingar
snúast um fólk
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 www.vis.is
Seljendur, látið okkur bera ábyrgðina með ykkur
Söluvernd tryggir seljendur fasteigna fyrir skaðabótakröfum
sem upp kunna að koma í allt að 5 ár frá afhendingu eignarinnar.
Seljandi sem ekki er með Söluvernd þarf:
Að taka á þeim kröfum sem upp kunna að koma.
Að taka á sig lækkun söluverðs ef galli kemur upp.
Að greiða allan lögfræðikostnað.
Kaupendur, verið vissir um að eignin sé með Söluvernd
Kaupandi fasteignar hefur kröfurétt á seljanda fasteignar vegna galla sem upp kunna
að koma í allt að 5 ár frá afhendingu eignar. Söluvernd er því tvímælalaust gæðastimpill
á fasteignaviðskipti.
Kostir Söluverndar fyrir fasteignakaupendur:
Ef fram kemur leyndur galli greiðir VÍS bæturnar í einni greiðslu.
Kaupandi fær greitt óháð greiðslugetu seljanda.
Kaupandi fær ítarlegri upplýsingar um ástand eignarinnar.
Kannaðu á soluvernd.is hvaða fasteignasölur bjóða upp á Söluvernd
og hvort seljandi eignarinnar sem þú ætlar að kaupa sé með Söluvernd.
Söluvernd er ekki eignatrygging heldur ábyrgðartrygging sem tryggir
seljanda vegna krafna sem upp kunna að koma.