Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 9
þeirrar skoðunar að þýski bankinn
hafi aldrei verið raunverulegur eig-
andi að bankanum. Hann fundaði
meðal annars með Ríkisendurskoðun
og kynnti fyrir mönnum þar ný gögn
og upplýsingar um söluna árið 2006.
Vilhjálmur segir að það sem skipti
máli í rannsókn á málinu sé að fólk
hafi verið blekkt með tilkynningum.
Í tilkynningu frá 16. janúar 2003 hafi
verið sagt að traustur erlendur banki
tæki þátt í að fjárfesta í íslenskri fjár-
málastofnun. „Ef þetta fyrirtæki á Jóm-
frúaeyjum er kaupandinn, þá er þessi
fréttatilkynning lygi frá upphafi.“
Vilhjálmur bætir við að tilkynn-
ing Hauck & Auf häuser í kjölfar við-
skiptanna hafi þá einnig getað verið
lygi. Í henni segir meðal annars að
Búnaðarbankinn sé vænleg fjárfest-
ing en þýski bankinn telji sig einnig
hafa hag af því að miðla af sérþekk-
ingu sinni til BÍ. Vilhjálmur segir að
hagsmunir bankans hafi þess í stað
verið þóknun fyrir að koma fram fyrir
hönd kaupenda.
Vilhjálmur telur þetta mál sér-
staklega áhugavert í ljósi fregna sem
eru að berast núna vegna sölu á hlut
í Arion banka. „Það er forsenda fyrir
því að hlutirnir séu rétt gerðir að
menn fái þær upplýsingar sem máli
skipta í þessu.“
Kjartan Bjarni Björgvinsson hér-
aðsdómari, sem fer með rannsóknina
á vegum rannsóknarnefndar Alþing-
is, leggur áherslu á að niðurstaðan í
málinu komi ekki fram í bréfinu sem
vitnað var í í frétt gærdagsins um
málið. „Það er fyrst og fremst verið
að reyna að afla upplýsinga með
bréfunum, endanleg niðurstaða er
ekki kynnt með þeim.“ Hann segir að
það sé ekki nefndarinnar að stjórna
afleiðingum af niðurstöðunum. „Við
erum ekki að taka afstöðu til lögbrota.
Okkar verkefni er bara að upplýsa um
hvað gerðist,“ segir Kjartan.
Óljóst er hvort um lögbrot hafi
verið að ræða eða hvort málið sé
fyrnt þar sem svo langt er frá því að
atburðirnir áttu sér stað. Að sögn
lögfræðings sem Fréttablaðið ræddi
við er erfitt að segja til um það fyrr
en skýrslan liggur fyrir þar sem skoða
þurfi regluverk hverju sinni, hvernig
eignarhaldinu var háttað og ef það
var falið, í hvaða tilgangi það hafi
verið gert. Í sjálfu sér þurfi ekki að
vera lögbrot að eiga eignir í gegnum
aflandsfélög og „fela“ þannig eignar-
hald við kaup ef gætt er að tilkynn-
ingarskyldu, skattskyldu og reglum að
öðru leyti. Hins vegar kunni að hafa
þýðingu ef ætlunin var að blekkja
viðsemjanda eða markaðinn með
þessum hætti. Þá megi velta fyrir sér
hvort hafi verið kallað eftir þessum
upplýsingum. Þetta muni skýrast
þegar skýrslan kemur út.
Ítrekað var reynt að ná sambandi,
án árangurs, við Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, Valgerði
Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, og Ólaf Davíðsson,
fyrrverandi formann Framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu, við
vinnslu þessarar fréttar.
Steingrímur J. Sigfússon, sem var
einn leiðtogi stjórnarandstöðunnar
á tíma sölunnar, og Ólafur Þ. Hauks-
son,héraðssaksóknari vildu ekki tjá
sig um málið fyrr en skýrslan kemur
út. saeunn@frettabladid.is
Audi Q7 e-tron var valinn jeppi ársins 2017
af bílablaðamönnum á Íslandi. Hann er
fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll sem sameinar
krafta rafmagnsmótors og dísilvélar.
Q7 e-tron quattro er sparneytinn, umhverfismildur og eldsneytis-
notkunin er aðeins 1,9 lítrar á hverja 100 km. Mættu nýrri árstíð
með grænni samvisku og allt að 56 km drægni á rafmagni.
Komdu við og upplifðu Q7 e-tron quattro í hversdagslífinu.
Kvika banki hf. hefur gefið út sex mánaða víxla
að fjárhæð 2.000 milljónir króna. Um er að
ræða útgáfu í víxlaflokknum KVB 17 0921
og er heildarheimild flokksins 2.000 m.kr.
Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna
umsóknar um töku víxlanna til viðskipta,
þann 24. mars 2017, og sótt hefur verið um
töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.
Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast
í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuð
stöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík.
Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku.
https://www.kvika.is/um_kviku/#tab2
kvika.is
Kvika gefur út sex mánaða víxla
Reykjavík, 28. mars 2017
Ef þetta fyrir-
tæki á
Jómfrúa-
eyjum er
kaupandinn,
þá er þessi
fréttatil-
kynning lygi
frá upphafi.
Vilhjálmur
Bjarnason, þing-
maður Sjálfstæð-
isflokks-
ins
Tilkynningin um sölu á hlutnum
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 9Þ r i ð J U D A G U r 2 8 . m A r s 2 0 1 7
2
8
-0
3
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
8
B
-C
6
5
C
1
C
8
B
-C
5
2
0
1
C
8
B
-C
3
E
4
1
C
8
B
-C
2
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K