Fréttablaðið - 28.03.2017, Qupperneq 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Í dag verður síðari umræða á Alþingi um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem er mikilvægasta þingskjal kjör-tímabilsins. Í henni felst skuldbinding um hvernig haga
eigi skatta- og útgjaldastefnu stjórnvalda allt kjörtímabilið.
Stjórnvöld þurfa að fylgja henni eftir og ströng skilyrði eru
fyrir endurskoðun hennar. Aðeins má endurskoða fjár-
málastefnuna ef grundvallarforsendur hennar bresta vegna
efnahagsáfalla, þjóðarvár eða annarra aðstæðna, sem óger-
legt er að bregðast við með tiltækum úrræðum.
Ef ekkert svo stórkostlegt gerist þá eiga stjórnvöld að
grípa til aðgerða sem leiða til þess að markmiðum fjármála-
stefnunnar verði náð hvort sem er á tekjuhlið, gjaldahlið
eða með niðurgreiðslu skulda. Þess vegna er mikið áhyggju-
efni að í stefnunni sé ekki skapað svigrúm fyrir aukin
útgjöld ef forsendur hagspárinnar breytast á tímabilinu
og að ekki sé horft til þess að auka tekjuöflun frá efnaðasta
fólki landsins og þeim fyrirtækjum sem nýta sameiginlegar
auðlindir okkar í sjávarútvegi, orkuframleiðslu, stóriðju
og ferðaþjónustu. Útgjaldareglan sem ríkisstjórnin setur
verður til þess að ekki verður mögulegt að afla tekna til að
rétta af stöðuna ef hagstæðar spár ganga ekki eftir, heldur
verður að ráðast í niðurskurð á ríkisútgjöldum.
Fjármálaráð á samkvæmt lögum að leggja mat á fjár-
málastefnuna. Hvorki ríkisstjórnin né meirihluti fjárlaga-
nefndar bregst við skýrum athugasemdum fjármálaráðs.
Athugasemdirnar lúta m.a. að því að marka þurfi ferða-
þjónustunni skýrari ramma og að afla þurfi frekari tekna
frá hinum sívaxandi ferðamannafjölda. Fjármálaráðið
gerir alvarlegar athugasemdir við að áætlunin tekur ekki
mið af hagsveifluleiðréttingu. Væri það gert ætti áætlaður
afgangur af opinberum fjármálum að vera meiri en stefnan
segir til um. Af umsögn fjármálaráðs má ráða að afla þurfi
aukinna tekna svo að velferðarkerfið verði ekki fórnar-
lamb niðurskurðar ef aðstæður breytast í hagkerfinu og
að stjórnvöld geti lent í spennitreyju fjármálastefnunnar.
Fara á gamalkunna leið í ríkisfjármálum sem hægri-
stjórnir hafa farið með íslenskt samfélag aftur og aftur.
Niðurstaðan verður sú að ekki verður ráðist í aðkallandi
úrbætur á samgöngukerfinu eða í heilbrigðis-, mennta- og
velferðarmálum. Það er óásættanlegt og ekki í samræmi
við kosningaloforð.
Fjármálastefna til 5 ára
Oddný G.
Harðardóttir
formaður þing-
flokks Samfylk-
ingarinnar
Útgjalda
reglan sem
ríkisstjórnin
setur verður
til þess að
ekki verður
mögulegt að
afla tekna
til að rétta
af stöðuna
ef hagstæðar
spár ganga
ekki eftir.
569 6900 www.ils.is
Málþing um
hagkvæmar íbúðir
Leitast verður við að svara því hvernig byggja
má sem flestar íbúðir, með þeim ármunum
sem ríkið leggur til í stofnframlög.
Staður: Íbúðalánasjóður, Borgartúni 21.
Stund: Fimmtudaginn, 30. mars, kl. 13–16.
Skráning á ils.is.
Íþessari viku mun fjármála- og efnahagsráðherra birta sérstaka áætlun í ríkisfjármálum sem tekur mið af áður birtri ríkisfjármálastefnu. Ríkis-stjórnin ætti að setja sér metnaðarfyllri markmið og skila meiri afgangi af ríkissjóði.Samkvæmt tillögu til þingsályktunar um fjár-
málastefnu ríkisins fyrir árin 2017-2022 er gert ráð fyrir
að afgangur af rekstri ríkissjóðs verði 1,0-1,6 prósent af
vergri landsframleiðslu á tímabilinu.
Á þessum vettvangi hafa áður verið færð rök fyrir
því að ríkisfjármálastefnan endurspegli ekki nægilega
mikinn metnað. Fjármálastefnan er byggð á þjóðhagsspá
Hagstofunnar sem gerir ráð fyrir miklum hagvexti allt
tímabilið. Lítið má út af bregða til að ríkissjóður verði
aftur rekinn með halla á tímabilinu eins og fram kemur
í umsögn Samtaka atvinnulífsins um tillöguna. Ef hag-
vaxtarforsendur breytast til hins verra mun þurfa að
grípa til aðgerða til að mæta tekjutapi.
Tekjur ríkisins eru miklar og skattar háir og því hefur
verið gott svigrúm til að skila miklum afgangi og greiða
niður skuldir sem söfnuðust upp árin eftir banka- og
gjaldeyrishrunið. Kerfisbundið hefur verið unnið að því
að greiða niður skuldir og lækka vaxtabyrði ríkissjóðs.
Hins vegar hefur þetta gengið mun hægar en aðstæður
buðu upp á af því að auknum tekjum hefur oft verið
varið í aukin útgjöld.
Hvar stendur Ísland í samanburði við hinar Norður-
landaþjóðirnar í ríkisfjármálum? Gert var ráð fyrir halla
á rekstri danska ríkisins á síðasta ári sem nam 4,6 pró-
sentum af vergri landsframleiðslu og 0,8 prósenta halla í
Svíþjóð. Afgangurinn var hins vegar áætlaður 5,8 prósent
af vergri landsframleiðslu í Noregi. Ísland kemur ágæt-
lega út úr þessum samanburði.
Hvað með önnur ríki? Þýskaland er langöflugasta ríki
Evrópusambandsins. Þýska ríkið skilaði á síðasta ári
mesta tekjuafgangi frá því að Berlínarmúlinn féll 1989.
Afgangurinn nam 23,7 milljörðum evra eða sem nemur
0,8 prósentum af vergri landsframleiðslu Sambandslýð-
veldisins Þýskalands.
Setja þarf tölfræði um ríkisfjármál í samhengi við
stöðu efnahagsmála í þessum ríkjum. Ekkert þeirra ríkja
sem nefnd eru hér að framan státar af sambærilegum
hagvexti og hefur verið á Íslandi á síðustu árum og hvergi
í Evrópu hefur verið jafn hraður uppgangur í efnahags-
lífinu og hér á landi ef marka má hagtölur ríkja í álfunni.
Rekstur ríkissjóðs þarf að nálgast eins og hvert annað
heimilisbókhald. Það þarf að forgangsraða til brýnna
verkefna. Vel er hægt að auka útgjöld til heilbrigðiskerfis-
ins og vegagerðar en sýna aðhald annars staðar til að ná
metnaðarfullum markmiðum um sparnað. Aukið aðhald
gerir Seðlabankanum einnig betur kleift að lækka vexti
því aðhald í ríkisrekstri myndi þýða að Seðlabankinn
væri ekki einn í þeirri stöðu að hafa taumhald á þenslu
í hagkerfinu.
Núna þegar ferðaþjónustan er að slá öll met og mikill
uppgangur er í efnahagslífinu ætti ríkissjóður að búa í
haginn og setja sér metnaðarfyllri markmið í ríkisfjár-
málum og skila meiri afangi. Þá verður raunverulegt svig-
rúm til að auka útgjöldin í næstu niðursveiflu. Það væri
ábyrg ríkisfjármálastefna.
Búum í haginn
Rekstur
ríkissjóðs
þarf að
nálgast eins
og hvert
annað
heimilis
bókhald.
Talað undir rós
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son mætti á Sprengisand á
sunnudag og ýjaði að því að sér
hefði verið boðið fé til að hætta
að angra erlenda kröfuhafa. For-
maður stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar, Brynjar Níelsson,
sagði að ráðherrann fyrrverandi
þyrfti að segja hreint út hvort
svo væri. Í gær sagði Sigmundur
svo að hann hefði ekki verið
eini ráðherrann í ríkisstjórn
sinni sem fengið hefði tilboð frá
aðilum á vegum vogunarsjóða.
Mátti skilja það sem svo, án þess
að Sigmundur Davíð segði það
berum orðum, að þeir hefðu á
einhverjum tímapunkti reynt að
múta forsætisráðherranum fyrr-
verandi, til þess að fá fram hag-
fellda niðurstöðu í viðræðum
sínum við íslensk stjórnvöld.
Gamli MSN-statusinn
Sigmundur lét orð Brynjars sem
vind um eyru þjóta og sagði í
Bítinu á Bylgjunni frá því að
hann ætti samtölin við lobbíista
kröfuhafanna niðurskrifuð og
að annar ráðherra hefði einnig
fengið slíkt boð. Hann vildi samt
ekki segja hver það var. Orð
hans minna mjög á gamla MSN-
dramastatusinn „er pirraður
– ekki spyrja“. MSN var eins og
margir muna forveri Facebook-
spjallsins og þar mátti, líkt og á
Facebook-spjallinu, segja margt.
Það er spurning hvort ekki sé
rétt að láta dramakastið eftir
þingmanninum. joli@365.is
2 8 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
2
8
-0
3
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
B
-C
1
6
C
1
C
8
B
-C
0
3
0
1
C
8
B
-B
E
F
4
1
C
8
B
-B
D
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K