Fréttablaðið - 28.03.2017, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
...fyrir alla muni
SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR
Hágæða amerísk heilsurúm
sem auðvelt er að elska
Sofðu rótt í alla nótt
Söngkonan Salka Sól Eyfeld var á laugardagskvöldið áreitt af gesti á árshátíð Icelandair sem fram fór í Laugardalshöll. Salka greindi frá áreitninni á
Twitter og viðbrögðin létu ekki á sér
standa enda virðast margir skemmti-
kraftar og fólk almennt hafa lent í
álíka atvikum.
Plötusnúðurinn og skemmti-
krafturinn Margrét Erla Maack er
ein þeirra. Margrét hefur starfað sem
plötusnúður og skemmtikraftur í
rúman áratug og snemma á ferlinum
áttaði hún sig á að áreitni af ýmsum
toga af hálfu drukkinna einstaklinga
væri partur af starfinu. „Þetta er alveg
helmingur af þeim giggum sem ég
tek, þá lendi ég í einhvers konar
káfi, áreitni eða óviðeigandi athuga-
semdum,“ segir Margrét.
„Í langan tíma tók ég ekki plötu-
snúðagigg ein, ég fór sem sagt alltaf
í fylgd með karlkyns plötusnúð,“
útskýrir Margrét. Hún segir það
hafa verið bölvað vesen. „Já, það er
vesen. Og maður fær auðvitað minna
borgað því það þurfa tveir að deila
laununum.
En núna þegar ég er ráðin þá segi
ég oft í gríni: „Ég kosta þetta en ef það
kemur dónakall þá er það 30.000
krónur auka.“ Þá eru allir meðvitaðir
um hver staðan er.“
Margrét segir algeng viðbrögð
fólks við „dónaköllum“ eins og hún
kýs að kalla þá að fólk reyni að þagga
umræðuna niður. „Maður hefur oft
lent í því að fólk segir: „Æi, hann er
bara alltaf svona. Það vita það allir.“
Þannig að má hann þetta bara? Af
því að allir vita það?“ spyr Margrét.
Hún segir líklegast að um einhverja
meðvirkni sé að ræða, þegar fólk
bregst svona við.
„Ég hef verið á samkomu þar sem
hópur af stelpum var búinn að sam-
mælast um að taka fimm mínútur
af dónakallinum. Þannig að ef hann
mætti þá myndu þær hjálpast að við
að hafa ofan af honum, svo hann
væri ekki að éta einhverja eina alveg
upp. Í staðinn fyrir að stoppa hann
bara alveg af og mögulega banna
honum að mæta.“
Þess má geta að fyrir um tíu árum
var Margrét Erla ráðin sem plötu-
snúður á árshátíð Icelandair og
lenti þá í svipuðu atviki og Salka
Sól um síðustu helgi. Það sem kom
Margréti helst á óvart voru viðbrögð
talsmanna fyrirtækisins þegar hún
bloggaði um atvikið, án þess þó að
nafngreina manninn sem áreitti
hana. „Ég skrifaði á bloggið mitt
eitthvað álíka: „Var að taka ógeðs-
lega skemmtilegt gigg, allir í rosa
stuði, en eins og gengur og gerist
var einn dónakall sem var ógeðs-
lega leiðinlegur og skemmdi fyrir
öllum hinum.“ Þá fékk ég símtal frá
Icelandair og mér var sagt að mann-
eskja sem væri ráðin af fyrirtækinu
ætti ekki að haga sér svona o.s.frv. Ég
hélt náttúrulega að það væri verið
að tala um hann. En svo áttaði ég á
mig að það var verið að tala um mig.
Mér var sagt að taka bloggfærsluna
út og mér var hótað að ég yrði aldrei
ráðin aftur. Ég vona heitt og innilega
að Salka Sól fái afsökunarbeiðni, að
hún fái ekki sama skít og ég fékk á
sínum tíma.“
Reiðar miðaldra konur líka
vandamál
Margrét Erla skrifaði á sínum
tíma pistil um áreitni sem
hún hefur orðið fyrir,
m.a. í vinnunni sem
s k e m m t i k ra f t u r .
Margt fólk í svipaðri
vinnu brást við og
hafði svipaða sögu
að segja.
„Til dæmis, þegar
maður er að dj-a, þá
ertu fastur á bak við
borð og kemst ekkert
í burtu. Þú getur ekkert
hlaupið í burtu og ákveðið
að fara heim, því þú ert bara ráðin
til klukkan eitthvað x,“ segir Mar-
grét sem hefur orðið vör við að karl-
kyns skemmtikraftar verði líka fyrir
áreitni í vinnunni.
Plötusnúðurinn Atli Viðar Þor-
steinsson, gjarnan kallaður Atli
Kanill, kannast við það. „Ég lendi
sjaldnast í einhverju kynferðislegu,
fyrir utan eina konu á Thorvaldsen
sem kleif yfir pottaplöntu og upp á
pall til að geta klipið í rassinn á mér,“
útskýrir Atli sem verður oftar fyrir
barðinu á reiðum konum í vinnunni.
„Á árshátíðum og fínni skemmti-
stöðum leynist oftar en ekki ein
virkilega reið kona um fertugt. Þær
eru fínt klæddar og þær krefjast þess
að þú spilir öll lögin sem þær biðja
um. Ef þú gerir það ekki þá verða
þær reiðar, alveg svakalega reiðar
og láta jafnvel fingur renna yfir háls
eins og þær séu að fremja sjálfsmorð
úr leiðindum. Ég var með um 250
manns dansandi um daginn, fullur
salur, fyrir utan eina konu um fertugt
sem öskraði á mig að spila eitthvað
„mainstream“ sem allir fíla því það
væri enginn að dansa. Lagið sem
ég var að spila á þeim tímapunkti
var 9 to 5 með Dolly Parton. Önnur
sturlaðist af reiði þegar hún heyrði í
Aron Can. Það komu tár.
Konurnar virðast frekar leyfa sér
að verða reiðar við okkur karlkyns
plötusnúðana, karlmennirnir láta
sjaldnast á sér bera og þetta gerist
aldrei á skemmtistöðum og sam-
komum yngra fólksins. Ég tek fram
að langflestir gestir eru komnir
til að skemmta sér og gera
það af krafti, en það
virðist alltaf leynast
þessi eina reiða,
fulla frænka í
hópnum og þá er
plötusnúðurinn
hentugasta skot-
markið,“ segir Atli.
gudnyhronn@365.is
Dónakallar og reiðar
konur til vandræða
Að verða fyrir áreitni af ýmsu tagi er ömurlegur partur af starfi
skemmtikrafta að sögn Margrétar Erlu Maack. Salka Sól sagði frá
áreitni á Twitter um helgina og Margrét Erla hefur lent í svipuðu.
Reiðar konur verða oft
á vegi Atla Viðars í starfi
hans sem plötusnúður.
Í langan tÍMa tók
ég Ekki plötusnúða
gigg Ein.
Margrét Erla Maack
Margrét Erla Maack hefur oft á ferli sínum orðið fyrir áreitni í vinnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2 8 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r22 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð
2
8
-0
3
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
8
B
-C
1
6
C
1
C
8
B
-C
0
3
0
1
C
8
B
-B
E
F
4
1
C
8
B
-B
D
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K