Femina - 01.08.1946, Qupperneq 3

Femina - 01.08.1946, Qupperneq 3
E F N I 1. ÁRG. 1. TBL. HEIMILIS O G KVENNABLAÐ ÁGÚST, 1946. Ameriskur blaðamaður segir jrá: BAK VIÐ GRÍMUR KVIKMYNDALEIKARANNA Ég gat aldrei sagt nei. o Bak við grímu kvikmyndaleik- aranna. o Maðurinn við arinn. o Sólböð. o Carmen. o Or tízkusölum Parísarborgar. o Svefn barnanna. o í Ensku húsi. o Forsíðumynd er tekin af Þorsteini Jósepssyni. Ritstjóri: Frú Sigríður Ingimarsdóttir. Otgefandi: Blaðaútgáfan, Reykjavík. Hafnarstrœti 5. (Herbergi 47) Pósthólf 7. BORCARPRENT Kvikmyndavélin lýgur ekki, segir gamalt máltæki. Oft gerir hún það þú í Hollywood með dyggilegri aðstoð fegrunarsérfræðinga, hárgreiðslumeist- ara, klæðskera og kjólateiknara. Líkamslínum kvikmyndadísanna er oft breytt svo gjörsamlega, að erfitt reyn- ist að finna nokkra líkingu með hinni óaðfinnanlegu veru, sem stendur fyrir framan kvikmyndavélina, og stúlk- unni sjálfri, eins og hún kom frá hendi skaparans. Fáar af þessum feg- urðargyðjum komast hjá því að láta afnema hrukkur á óhentugum stöð- um öðru hverju og halda vaxtarlag- inu við með því að „stoppa“ kjólana hér og þar. Nýlega birtist í amerísku blaði falleg auglýsingamynd af þeim Ann Sheridan, Alexis Smith, Jane Wyman og Irene Manning. Þær leiddust allar og báru höfuðið hátt yfir hvelfduni barmi. Fáum hefur líklega dottið í hug, að hinar heillandi línur í líkama þeirra væru að nokkru gerðar af lán- uðum fjöðrum. Öll kvikmyndafélögin eiga við sömu vandamál að stríða í þessari grein. Flestar leikkonurnar verða að bæta úr vaxtarlaginu með koddum af mismunandi stærðum, einkum þó, ef þær eru látnar leika í baðfötum eða aðskornum kvöldkjólum. Betty Hutt- on veldur klæðskeranum oft mikilla örðugleika, því að*á hénni tolla ekki einu sinni koddarnir á sínum stað. Þegar hún á að fara að leika, grípur hún oft í koddan^ í mesta ofboði og hrópar: „Hjálp! Nú er ég að týna öllu utan af mér!“ Þær leikkonur, sem berast mest á í klæðaburði, verða að nota þessi fegrunarbrögð jafnt utan leiksviðsins sem innan. Flerðarnar eru breikkað- ar, mittið gert eins mjótt og spengi- legt og mögulegt er og barmurinn lagaður til með ýrnsu móti. Þá er og gert allt sem hægt er til þess að dylja óþarflega mikil hold. Rosalind Russel var eitt sinn álitin bezt klædd af öll- um konum í Hollywood, en er þó ákaflega flatbrjósta og verður að beita ýmsum brögðum til þess að dylja það. Norma Shearer verður að hylja hand- Fáar leikkonur geta státaS aj eins jallegum fót- leggjum og Marlene Dietrich. pHMINA 3

x

Femina

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Femina
https://timarit.is/publication/1227

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.