Femina - 01.08.1946, Page 8

Femina - 01.08.1946, Page 8
1 í Sevilla á Spáni árið 1830. Carmen er fegursta verkastúlkan í vindlaverksmiðjunni. Karlmennirnir hafa varla augun af lokkandi vaxtarlagi hennar, en hún skeytir ekki um neinn annan en riddara- liðann Don José, sem hún hefur töfrað með fegurð sinni og yndisþokka. 2 Carmen lendir í deilum við eina af verk- smiðjustúlkunum. Zigeuna-eðlið blossar upp í henni, og hún rekur túlkuna í gegn með skærum. José á að fara með hana í fangelsið, en hjálpar henni til að flýja í staðinn. Óperan Carmen eftir George Bizet hefur farið sigurför um allan heim síðastliðin hundrað ár. Hér á landi er hún vel þekkt úr útvarpinu. ítalskt kvikm'yndafélag hefur nýlega lokið við að gera kvik- mynd eftir sögunni, sem texti óperunnar er byggður á. — Leikararnir eru flestir franskir og leikstjórinn sömuleiðis. Að- alhlutverkið, hina fögru og blómlegu Carmen, leikur Vivien Romance, er hef- ur getið sér góðan orðstír fyrir leik sinn í kvikmyndum nú á síðari árum. Hún er af spönskum œttum.’Sagt er, að þetta sé dýrasta kvikmyndin, sem tekin hefur verið á Italíu. José er hnepptur í varðhald, af því að hann hefur hjálpað henni. Þegar hann lósnar aftur úr fangelsinu, biður hún hann að hjálpa sér og smyglaraflokk nokkrum, sem hún hefur lagt lag sitt við, til þess að brjótast inn í vindlaverksmiðj- una, þar sem hann á að vera á verði. Riddaraliðsforingjanum heppnast að klófesta flesta meðlimi smyglaraflokksins. Hann er sjálfur ástfanginn í Carmen, leitar hana uppi og finnur hana loks í örmum Don José. Þeir heyja einvigi, sem endar með þvj, að José drepur liðs- foringjann. 8 FEMINA

x

Femina

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Femina
https://timarit.is/publication/1227

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.