Femina - 01.08.1946, Page 19

Femina - 01.08.1946, Page 19
^ Fyrverandi foringi smyglaranna, sem hefur auknefnið „sá eineygði“, situr í fangelsi og hefur verið dæmdur til dauða vegna innbrotisins i vindlaverksmiðjuna. Félagar hans leysa hann úr haldi. José sér, að ekkert rúm er fyrir þá báða innan flokksins og myrðir hann. ^ José verður að flýja upp i óbyggðir. Carmen og leifarnar af smyglaraflokknum fylgja hon- um. Þau lifa á því að ræna vegfarendur og verða brátt • illræmdir raeningjar. En José unir þessu lífi illa. Y José er nú foringi ræningjanna, en þjáist af samvizkubiti og hefur í hyggju að fara til Ameríku til þess að byrja þar nýtt líf og betra líf. Hann sendir Carmen til borgarinnar Ronda, en þar á hún að dvelja, meðan hann er að undirbúa för þeirra vetur um haf. En Carmen hefur megna fyrirlitningu á þessu afturhvarfi José og eignast því nýjan elskhuga í Ronda, nautabanann Esca- millo. . i Æf-n O José eltir Carmen til Ronda og býst við að hún biða hans þar, trú og trygg sem fyrr. Hann fréttir um samband hennar við nautabanann og verður frávita af reiði. En Escamillo særist alvar- lega í nautaatinu, og Carmen vitjar hans á banasænginni. Persónur: Carmen ............. Viviane Romance Don José............ .............Jean Marais Riddaraliðsforinginn Adriano Rimolde Sd eineygði ............ Lucien Coedel Q Þessi atburður fær mikið á Carmen. José nær henni rétt fyrir utan leiksvæðið, og hún fer með honum, þótt hún viti, hvað refsing bíður hennar. Hann fer með hana út á eyðimörk nokkra skammt frá bænum, dregur hníf sinn úr slíðrum og rekur hana í gegn án þess að segja eitt einasta orð. Á meðan færist hófadynurinn frá hestum lögreglunnar nær og nær. femina

x

Femina

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Femina
https://timarit.is/publication/1227

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.