Lystræninginn - 01.05.1979, Qupperneq 24

Lystræninginn - 01.05.1979, Qupperneq 24
Dizzy Gillespie. - Ljósm. Róska. Dizzy og kompaní - Ó, ég þrái rúm, sönglaði Sheyvonne Wright og kærastinn hennar hummaði undir. Þetta voru söngkona og bassaleikari Dizzy Gillespies á leið til Reykjavíkur. Síðasta viðkomustaðarins á löngum og ströngu tónleikaferðalagi. Örþreytt. Upp klukkan sex. Rúta, flugvél, rúta, hótel, tónleikar, samkvæmi, hótel, rúta, flugvél, tónleikar viku eftir viku. Þrír eða fjórir tímar í rúminu. Gera sitt besta á hverjum tónleikum. The show must go on. Tónleikar Dizzy Gillespies í fullu Háskólabíói voru stórkostlegt sjóv. Þeir sem komu til að hlusta á djass- leikarann Dizzy urðu fyrir vonbrigðum. Hann er helst að finna núorðið á tónleikum sem Norman Grazskipu- leggur. Þó er það með hann einsog ísjakann, einn tíundi stendur uppúr og margir fallegir sólóar hljómuðu úr skökku horni meistarans, sem hafði mestaráhyggjuraf örlögum trúbræðra sinna, Bahæja í Iran. Sheyvonne Wright. - Ljósm. Róska. 24

x

Lystræninginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.