Lystræninginn - 01.05.1979, Qupperneq 35
Halldór Stefánsson látinn
Halldór Stefánsson, einn af frumherjum Róttækra
Penna og síðar Máls og menningar, er nýlega látinn í
hárri elli. Hann var einn merkasti smásagnahöfundur
þjóðarinnar, vandvirkur og mikilsmetinn rithöfundur.
Frá upphafi var Halldór Stefánsson náinn samstarfs-
maður Kristins E. Andréssonar. Mál og menning var
stofnuð á heimili Halldórs að Barónstíg 55 árið 1937.
Allar frumsamdar bækur Halldórs, nema sú fyrsta, sem
hann lét prenta í Berlín, komu út hjá Máli og Menningu
og Heimskringlu, og hann þýddi fyrstu skáldsöguna
sem Mál og menning gaf út, Móðurina eftir Maxím
Gorkí.
Ný bók
I maímánuði er væntanleg ný ljóðabók eftir
Bjarna Bernharð Bjarnason. Bjarni Bernharður
hefur áður sent frá sér tvær ljóðabækur: Upp
og ofan (1975) og Hanafætur í regnboganum
(1977). Hægt er að fullyrða að með hverri nýrri
bók hafi hróður Bjarna Bernharðs vaxið sem skálds, og
þess vegna bíða margir spenntir eftir nýrri bók frá hans
hendi. Lystræninginn mun sjá um dreifingu bókar
Bjarna Bernharðs.
Stundarfriður
er fjórða leikrit Guðmundar Steinssonar, sem Þjóð-
leikhúsið tekur til sýningar. Leikritið var frumsýnt í lok
marzmánaðar og hefur síðan verið sýnt fyrir fullu húsi
og við frábærar móttökur áhorfenda. Gagnrýnendur
hafa farið lofsamlegum orðum um sýninguna. Stund-
arfriður fjallar um firringuna, stressið og spenn-
una í nútíma neysluþjóðfélagi og það fjallar um mann-
leg samskipti á heimili sem varla getur þó talist heimili
nema að nafninu til. Frammistaða leikrannaermeðþví
besta sem lengi hefur sést í Þjóðleikhúsinu. Einnig á
Stefán Baldursson leikstjóri mikið hrós skilið.
ÓO
Þið græðið!
Við fáum veltu!
Matstofan lifir!
r
30 réttir á 35 þús.
15 réttir á 18 þús.
35