Lystræninginn - 01.05.1979, Page 37

Lystræninginn - 01.05.1979, Page 37
Leiðrétting á Tilburðum Kristins Reyrs í 11. hefti Blaðsíður 33, 36 og 37 brengluðust í uppsetningu Hér eru þær réttar Við biðjumst afsökunar á þessum mistökum. Fer eg út í fússi til að slá fyrir cinum inni á næstu krá til að helia hclvítin í dá - hallelújá. Nesay liggur á bekknum - syfjuð: Vertu ekki að söngla þetta - vekur mann. Barvin Og hvað . . . hvcr - Nessy? Fór eg þá heim með þessari elsku, { nótt. Sendir þú mig framúr eftir einhverju? Nessy Þú crt í stólnum - æ, sofum. Barvin Eg skreiðist þá aftur uppí til þín. Nessy Hann Gestur er hjá mér. Barvin Tókstu hann líka? Okkur báða heim mcð þér? Nessy Við erum í kránni. Og kúrðu þig. Barvin Kránni - ha, kránni? Og því er þá myrkur? Kallar: Hanki, crt þú þarna? Þarna frammi? Hanki frammi - við dyr: Hvað viltu? Barvin við Hringborð: Nú, Ijós og . . . Láttu mig hafa einn tvöfaldan. Og kveiktu sezt. Herrann Eg skal kveikja. Gengur að glugganum, dregur frá og lítur á úrið. LJÓS Dagsbirta á sviði. Herrann Komið fram á dag teygir úr sér - að Langborði, þuklar vasa og tinir upp vasabók og rissblöð. Sezt: Eg hef svei mér ætlað að birgja mig upp af pappír. Flettir vasabók, rifur blöð úr og krypplar: Og hvað hef eg skrifað hér? Barvin Meinarðu skáldskap? Ertu með tilburði í þá átt? Þögn: Það skyldi enginn gera Þögn: Nema þá séní. Hann ekur sér af kláða undan gigtarplástri á baki. Nessy við Barvin: Jæja, stjúpi. Eigum við þá ekki að... Eftir pásuna: Koma að bera meira niður. Barvin ekur sér. Vlð Frúna: Ah - klóraðu mér yfir plásturinn. Frúin klórar bonum - annars hugar: Og því létuð þið Hringborðið hingað inn? Barvin Ah - nei, ekki þarna, kona - við hægra herðablaðið Frúin Haldið þið að rúmstæðið þurfi ekki gólfpláss - geti hangið uppi ( lofti? Nessy Þá það - þá það fer með borðið fram - kemur aftur inn. Hanki með útvarpstæki í pappakassa - inn: Héma - útvarpið fer. Frúin við Barvin: Skiptu snöggvast um klóna, svo mað- ur heyri kvöldfréttirnar. Nýja klóin er { kassanum og skrúfjárn. Barvin fæst við klóna: Maður lifði nú kvöldfréttaleysið af i verkfallinu. Frúin rykkir langborðinu tik Það verða sömu þrengslin hér og ( hinu kjallara- greninu. Herrann stendur upp og saeldr blöð sin á borðið: Hún er bara {svaka stuði, ha? Sezt við vegg tv. með blððin á hnjánum og slcrifar. Frúin Svo sefur pabbi gamli héma inni hjá okkur - en þú á vindsænginni ( eldhúsinu, Níelsína. Nessy Nei, takk, eg fengi jú aldrei að sofa út þar. Barvin Þú ert nú að verða of. . . Já, ferð að verða of. .. Til að . . . Innanum okkur. Nessy Haldið þið að maður viti ekkert? Frúin Einsog hvað? Þðgn. Einsog hvað þykistu vita? Nessy Nú, cinsog . . . Einsog hvemig fólk elskast. Frúin Elsk . . .? Uuu - hvemig fólk . . .? Elskast? Rigsar um: Þetta hefst uppúr skólasetunum - og (jölmiðlakjaftæðinu. Barvin fram í sal: Ah - nú, þá veit hún það, þessi elska, hvernig mannkynið er formað milli hnés og mittis. Frúin Nema þú hangir niðri á Hallærisplani, þegar þú segist vera heima hjá stclpum? Og þá kannski að - að fiaðra uppum stráka? Svaraðu. Já segi eg . . . Nessy Já - nei, þcir húkka okkur. Nema stelpur, sem ná sér sjálfar i stegg. Frúin Nei, nú er mælirinn fullur, Nielsína. Þú steinþcgir eða cg . . . Nessy Já, já - já, já. En þetta er ckkert mál, mamma. Frúin Ekkert mál . . . HLJÓÐ Skruðnlngur og glerbrot frammi. Frúin Er hjallurinn að hrynja yfir hausinn á manni? Þýtur fram - og aftur inn: Hér slórið þið, pexandi og þrefandi og látið hann pabba gamla missa balann með leirtauinu niður allan stiga. Við Nessy: Viltu drattast - og undir og eins - að tína það upp. Nessy ókei - ókei fer fram. Frúin brettir upp ermarnar. Við Barvin. Reyndu að sofna ekki yfir þessu. Og koma þér að bjarga búslóðinni inn - undan þjófum ogskemmd- arvörgum. Eg fer að þrífa upp klóscttið Þögn. Það hefur verið meira helvitis sóóapakkið sem hírðist héma. Hlandstækjuna leggur á móti manni langt útá götu fer fram. Barvin fær sér í pípu: Ah - mig þyrstir. Einsog eg hef þó reynt að sloka um dagana. Og ekki ein einasta sjoppa I nágrenninu, þó maður vildi fá sér einn pilla. Svo hjartastyrkjandi sem hann er nú. Nessy i dyrum: Stjúpi, það er verið að spyrja eftir þér fer svo. Barvin Mér? Láttu hann koma hingað inn. Tínir seðla uppúr vösum: Það ætlar ekki að standa á honum að rukka inn húsaleiguna. Og maður ! óða önn að . . . Sjalla er - i kápu með tösku. Kennd. Inn og dregur fyrir til hálfs: Hver cr hún þessi? Barvin stendur upp - lætur pípuna á stólinn - hvislar: Sjalla - uss. Hvað ertu að gera hingað? Hingað heim? Sjalla Eg er í bfl, clskan. Leigjandi þinn sagði mér {síma, að þú værir að fiytja hingað - en kerlingin að gera hrcint þar, svo að eg dreif sko ! því að ná til þín. Barvin með Sjöllu fram á svið: Já, en . . . En hún er héma - frammi á klói. Sjalla Eg stoppa ekkert - datt I það og er skítblönk. Og vantar fyrir einni. Geturðu það, elskan? Eða fyrir hálfri? Barvin fær henni peninga: Láttu niður hjá þér. Sjalla lætur peningana í vasann: Húkirðu alltaf heima hjá henni? Þú ert hættur að sjást - komdu I kvöld. Komdu . . . Faðmar hann og kyssir. Eg sakna þín svo - sver það. Frúin með gúmmíhanzka og handslcrúbb: Við dyratjald, gægist inn. Barvin losar sig: Svona - svona nú . . . Ekki - ekki. . . Frúin inn: Ja-há. Hve... ? Hver ert þú? Helvltis mellan þín - að sleikja manninn minn? Og hér í mínum húsum. Sjalla setur hendur á mjaðmir: Nei, bíddu nú hæg. Eg fer sko ekki af sporinu, þó þú gjammir. Við erum kammeratar - síðan við Sigöldu. Frúin óðamála: Mér er sama um Migöldu . . . Herrann uppúr skrift sinni: Nci, Sig-öldu. Frúin tekur sig á: Sigöldu. Hann varð ekki mosavaxinn þar. Gengur og steytir hnefann. Við Barvin: 36 37 Herrann Honum lízt ekki á, að cg leggi fyrir mig skáldskap, nci. Hugsi - og skrifar á rissblöðin. Frúin Breyttur klæðnaður: í snjáðum kjól og kápu - hárið ótilhaft. Með sængurfatnað og rósótt teppi i fangi. Frammi við Hanka: Láttu ckki kassana svona í gangveginn, pabbi. Hanki Breyttur klæðnaður: I jakkafotum og ullar- vesti. Frammi. Þeir cru svo þungir, kem þcim ekki lengra. Frúin Taktu útvarpstækið næst. Inn - lætur byrðina detta og kastar kápunni. Við Barvin: Og seztur - rétt einu sinni. Heldurðu að fiutningarnir gangi með því að sitja? Húka drollandi á stól og hafast ekki að? Barvin Ah - það er gigtin, kona. Frúin Gigtin já, gigtin. Er verið að vorkenna mér, þegar eg fæ fyrir hjartað? Barvin reynir að klóra sér á bakinu: Og hvað . . . Ertu búin að gera hreint? Frúin Hvað heldur þú? Eg sat ekki við það sér Nessy á bekknum: Og liggur þú þarna einsog skata, Níelsína? Það er ekki á ykkur logið, þig og hann stjúpa þinn, með heivítis letina. Ætlið þið að sliga hann pabba gamla? Láta hann einan um að kimla búslóðinni inn afgangstéttinni? Nessy rís upp af bekknum: Veiztu, hvað viðstreðuðum svakalega að koma langa borðinu og sófanum niður þcnnan hænsnastiga? Frúin Já, þctta er önnur rottuholan frá einog eg sagði strax. Þeir ættu að halda fieiri hrókaræður um velferð, valdhafarnir. Og svo er þetta timburhjallur - einsog eg er eldhrædd kveikir í sigarettu. Barvin Nú, það er brunahani við dymar, ef þú ferð óvar- lega mcð eld. Frúin kastar logandi eldspýtu á gólfið: Eg - óvarlega með eld? Sagðirðu brunahani? Við dyrnar? Er kannski meiningin að drekkja manni { vatnsflóði. Þá fengirðu að svalla ( friði. Já, komdu kvendinu út. Bendir: Dymar - og út með . . . Barvin Ah- hún . . . Hún fer sjálf. Er - er farin. Hama- gangur er þetta - einsog útaf balanum áðan. Frúin kallar: Pabbi, pabbi gamli. Æpir: Pabbi-pabbi. Hanki hratt inn: Hvað - hvað viltu? Frúin Hentu henni á dyr - þessari... Já, þessari líka . .. Hanki tekur um handlegg Sjöllu: Út - út með þig. Sjalla hristir hann af sér: Káfarðu á mér - kámugur upp fyrir haus þokast fram. Hanki á eftir henni fram: Dóni-dóni, svín-svín. Frúin grýtir handskrúbbnum i gólfið. Við Barvin -æf: Mátulegt - eg he(ði hent í hausinn á þér, helvltið þitt. Og snautaðu úr mlnum húsum. Eg heimta tafarlaust skilnað. Barvin andvarpar: Ja, þá urðu nú tvær sálir fegnar. Nessy með pappakassa - inn: Hvað er nú að ykkur? Tekur upp kjól, ber við sig, setur á herðatré og hengir á nagla eða gluggakistu. Frúin Hvað? Hann dregur hingað dræsu af götunni. Enda skal hann burt, að mér heilli og lifandi. Eg vil ekki skitnýta hann. Barvin f^rarsnið: Var ekki teppið frá henni móður minni_. . . ? Jú, það liggur þama. Brýtur rósótta teppið samu. Af stmð, en snýr við: Nei - eigðu það, Nessy. Frá mér. Nessy tekur við teppinu - og kyssir hann: Þakka þér fyrir þögn: Og fyrir allt.

x

Lystræninginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.