Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 7
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Fréttir 7
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
TANITA FITUMÆLINGAVOGIR
Nauðsynleg hjálpartæki eftir jól
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
Tengist við iPhone
með Bluetooth
en ódýrastar voru þær í utanríkis-
ráðuneytinu, sem er með langflesta
starfsmenn. Tekið skal fram að allir
ráðherrar, nema utanríkisráðherra,
fengu líka sömu jólagjafir frá ráðu-
neytunum og aðrir starfsmenn.
Vín frá WOW
Í svörum við fyrirspurn DV vekur
athygli að flugfélagið WOW air var
eina íslenska fyrirtækið sem gaf ráð-
herrum ríkisstjórnarinnar jólagjaf-
ir; þeim Bjarna Benediktssyni, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, og
Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra. Bæði fengu
þau vínflösku að gjöf frá flugfélagi
Skúla Mogensen.
Ragnheiður Elín, sem er ráðherra
ferðamála, þáði boðsferð til Was-
hington-borgar í Bandaríkjunum
frá WOW air í maí í fyrra. Tilefnið
var jómfrúarflug WOW til Baltimore
Washington-flugvallar. Stundin,
sem fjallaði um boðsferðina,
greindi frá því að flugfélagið hefði
greitt fyrir flugmiða ráðherrans en
flugvöllurinn staðið straum af kostn-
aði við hótelkostnað ráðherrans í
tvær nætur.
DV sendi fyrirspurn sína á upp-
lýsingafulltrúa allra ráðuneyta. Svör
bárust frá sjö ráðuneytum af átta.
Ekkert svar hafði borist frá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu
þegar blaðið fór í prentun. n
Velferðarráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra, fengu hvort um sig
vínflösku frá indverska sendiráðinu og
dagatöl frá sendiráðum Þýskalands,
Japan og Kína.
Gjafir ráðuneytis til starfsmanna
Starfsmenn velferðarráðuneytisins fengu debetkort með 12 þúsund króna innistæðu.
Um var að ræða 102 einstaklinga, þar með taldir ráðherrarnir og aðstoðarmenn þeirra.
Heildarkostnaður: 1.224.000 kr.
Forsætisráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fékk
vín, konfekt og dagatöl í jólagjöf frá erlendum sendi-
ráðum hér á landi. Samkvæmt svari frá ráðuneytinu
liggur ekki fyrir sundurliðun á hvað barst frá hverju
sendiráði en tekið er fram að gjafirnar hafi í öllum tilvik-
um verið smávægilegar og verðmæti þeirra óverulegt.
Gjafir ráðuneytis til starfsmanna
Starfsfólk forsætisráðuneytisins fékk blandara að
andvirði 13.500 króna í jólagjöf samkvæmt svari við
fyrirspurn DV. Um var að ræða 48 starfsmenn, þar með
talinn forsætisráðherra.
Heildarkostnaður: 648.000 kr.
Fjármála- og efna-
hagsráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra,
fékk gjafir og jólakveðju frá fimm erlendum sendiráðum
á Íslandi. Gjafirnar voru vínflöskur og/eða dagatöl. Þá
fékk Bjarni einnig vínflösku frá flugfélaginu WOW air.
Gjafir ráðuneytis til starfsmanna
Starfsmenn fengu pönnu og matarpakka í jólagjöf að
verðmæti 21.750 króna. Um var að ræða 81 einstakling, þar með talinn ráðherra.
Heildarkostnaður: 1.761.750 kr.
Atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
fékk tvær vínflöskur. Aðra frá sendiráði Rússlands og hina frá
indverska sendiráðinu. Þá fékk hann dagatöl frá sendiráðum Kína,
Japan og Þýskalands.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fékk
þrjár vínflöskur. Eina frá sendiráði Rússlands, aðra frá indverska
sendiráðinu ásamt kexi og súkkulaði, og þá þriðju frá flugfélaginu
WOW air. Þá fékk hún bók um Kanada frá sendiráði Kanada og þrjú
dagatöl frá öðrum sendiráðum.
Gjafir ráðuneytis til starfsmanna
Starfsmenn atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fengu
púða með myndum úr náttúru Íslands ásamt tveimur vínflöskum að verðmæti 11.464
króna. Um var að ræða 62 starfsmenn, þar með taldir ráðherrar.
Heildarkostnaður: 710.768 kr.
Utanríkisráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
fékk talsvert magn af áfengi í jólagjöf frá sex
erlendum sendiráðum hér á landi. Hann fékk
vodkaflösku frá Rússlandi og aðra til frá Pól-
landi. Matarkörfu og viskíflösku frá Indlandi,
vínflösku frá Bandaríkjunum, matarkörfu frá
Katar og konfektkassa frá Noregi. Einnig fékk
hann þrjú dagatöl.
Gjafir ráðuneytis til starfsmanna
Starfsmenn utanríkisráðuneytisins fengu íslenskan mat í jólagjöf. Lambalæri og krydd,
grafinn nautavöðva og jólaköku að verðmæti 7.164 króna. Um var að ræða 140 starfsmenn,
en ráðherra fékk ekki gjöfina þar sem hún var í hans nafni.
Heildarkostnaður: 1.002.932 kr.
Innanríkis
ráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Ólöf Nordal innan-
ríkisráðherra fékk
rauðvínsflösku frá
bandaríska sendi-
ráðinu og dagatöl
frá sendiráðum
Kína og Japan.
Gjafir ráðuneytis
til starfsmanna
Starfsmenn innanríkisráðuneytisins fengu
Vivo Charge-heilsuúr að verðmæti 14.495
króna. Um var að ræða 80 einstaklinga, þar
með talinn ráðherra.
Heildarkostnaður:
1.159.600 kr.
Umhverfis- og
auðlindaráðuneytið
Gjafir til ráðherra
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráð-
herra, fékk léttvínsflösku frá indverska sendiráð-
inu, dagatöl og ársrit frá ýmsum aðilum og litla
konfektöskju frá umhverfisverndarsamtökunum Bláa
hernum, sem Tómas J. Knútsson er í forsvari fyrir.
Gjafir ráðuneytis til starfsmanna
Starfsmenn umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
fengu ostakörfu, rauðvínsflösku og bókamerki að
verðmæti 13.773 króna. Um var að ræða 41 starfsmann, þar með talinn ráðherra.
Heildarkostnaður: 564.691 kr.