Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 10
Vikublað 19.–21. janúar 2016
Gamli GluGGinn úr
nýi GluGGinn í
svo einfalt
er það!
súðarvoGur 3-5, reykjavík
GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is
s: 5666630 / GluGGaGerdin.is Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Við bjóðum uppá allar
gerðir merkivéla og
prentara sem henta inná
hvert heimili og fyrirtæki
Komdu við og kíktu
á þetta frábæra úrval
sem við höfum upp
á að bjóða
H
ávær orðrómur og kenn-
ingar um raðmorðingja í
Manchester fá byr undir
báða vængi, „Hrindarinn“
(e.Pusher) er maður sem
grunaður er um að hafa banað allt
að 85 manns í ensku borginni frá ár-
inu 2004. Hann er grunaður um að
fylgjast vel með ám, síkjum og skipa-
skurðum og finna fórnarlömb sín þar.
Lögreglan segir ekkert hæft í þess-
um kenningum, en prófessor í sál-
fræði við Birmingham-háskóla segir
að fjöldi fórnarlamba, sem hafi látist
í vatni á þessu tímabili, geti ekki verið
tilviljun. Hann hefur sagt að orð sín
séu tekin úr samhengi, en samfélags-
miðlar hafa logað vegna málsins og
verður bresk heimildamynd sýnd af
þessu tilefni þar sem farið verður yfir
málin og reynt að komast til botns í
því hvort eitthvað sé hæft í þessum
kenningum. Verður meðal annars
rætt við fjölskyldur einstaklinga sem
hafa drukknað í borginni á undan-
förnum árum.
Einn þeirra sem lést við þessar
voveiflegu aðstæður er Souvik Pal.
Hann fannst látinn Bridgewater-
skipaskurðinum í janúar 2013. Hann
var aðeins átján ára og hafði verið
að skemmta sér með vinum sínum á
gamlárskvöld. Hann hafði verið mjög
ölvaður og verið vísað út af skemmti-
stað. Á öryggismyndavélum sést
hann á ferli um borgina, með manni
sem enginn kann deili á. Við réttar-
rannsókn kom fram að hann hefði
drukknað, en að aðdragandi andláts
hans væri óljós. Faðir hans telur að
Souvik hafi verið myrtur, enda er ekki
er hægt að segja hvar hann féll í vatn-
ið eða hvers vegna. Rætt er við fleiri
aðstandendur í myndinni sem telja
að ástvinir sínir hafi verið myrtir.
Heimildamyndargerðarmaðurinn
Darren Lovell segist ætla að skoða og
kanna hvort sannleikskorn geti reynst
í „Twitter orðrómnum“. „Við hittum þá
sem eru í sorg, leitum svara, spyrjum
sérfræðinga og þrýstum á yfirvöld
um að rannsaka þetta opinberlega,“
segir hann. Rithöfundurinn Thomas
Sheridan segist sannfærður um til-
vist raðmorðingjans, en telur ekki víst
að hann beri ábyrgð á öllum málun-
um 85. Sjálfur segist hann hafa verið
eltur af hettuklæddum, grunsamleg-
um karlmanni á þessum slóðum.
Lögreglan stendur föst á sinni
skoðun, það er að flest málanna
megi rekja til slysa og sjálfsvíga.
Ekkert bendi til þess að um sé að
ræða raðmorðingja sem leiki laus-
um hala. Lögreglan segir mikil-
vægast að hlúa að aðstandendum,
þeim sem hafi misst ástvini sína.
Lögreglan er mótfallin heimilda-
myndinni og segja hana sérstak-
lega erfiða fyrir þá sem eigi um sárt
að binda. „Ég er sannfærður um að
það eru engin sönnunargögn sem
benda til þess að það sé raðmorðingi
að verki,“ segir yfir lögreglustjórinn
Russ Jackson. n
Grunur um
raðmorðinGja
n Kalla hann „hrindarann“ n mynd varpar ljósi á málið
Óútskýrð dauðsföll
Getur verið að raðmorðingi
leiki lausum hala í Man
chester? Mynd RÓbeRt Reynisson
10 Fréttir Erlent